|
Posted on 09.29.08 by steini @ 18:14
Ef fréttir af glitni voru stórfréttir í nótt og í morgun, þá hljóta þessar fréttir um að öldungaþingdeild Bandaríkjanna hafi fellt tillöguna um björgunaráætlun að vera RISAfréttir. Skráð sem: Dagleg skrif og Heimsmálin og USA Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:37
Var að skoða hsi vefinn aðeins áðan. Komst þá að nokkrum áhugaverðum atriðum varðandi landsliðsmenn sem ég vissi ekki en voru smá áhugaverðir. Í fyrsta lagi heitir Ólafur Stefánsson fullu nafni Ólafur Indriði Stefánsson og svo ef hann er alveg hættur núna með landsliðinu, þá hættir hann með 1337 skoruð mörk (nördinn blundar stundum í manni ) Annars er nú ksi vefurinn skemmtilegri yfirlitum og mætti hsi endilega taka þá til fyrirmyndar varðandi upplýsinga söfnun og miðlun upplýsinga. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og íþróttir Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:03
Það hefur í nokkurn tíma verið til skoðunar að leyfa byggingu mosku í Reykjavík. Eitthvað eru þó skipulagsmál að flækjast fyrir og hugmyndir um flatarmál lóðar og hæð turna er eitthvað sem er endalaust verið að fara yfir. Í dag hefur töluverð umræða verið á netinu og víðar um hvort gott og gilt sé að veita múslimum hérlendis leyfi til byggingar á þessari mosku. Sjálfur sé ég ekkert að því að aðrir en kristnir fái að byggja sér safnaðarhús (svona fyrir utan að mér finndist mun gáfulegra ef engin safnaðarhús yfir höfuð væru byggð), en það er þó eitt sem ég vona svo sannarlega að fái ekki að ganga í gegn. Bænastundir í kallkerfi fyrir utan moskur væru eitthvað sem ég teldi algjört klúður. Við skulum alls ekki vera að bæta óþarfa hljóðmengun við það sem kirkjuklukkurnar valda nú þegar. — HHS djammið á laugardaginn tókst held ég bara frábærlega. Mætingin var töluverð og ég held að ég geti fullyrt að fólk hafi almennt skemmt sér konunglega. Partýið stóð til svona hálf þrjú þegar síðustu gestir fóru í bæinn. Ég kíkti með fríðum hóp djammara á Sssól ball á NASA og komst að því að ég þekki eiginlega ekkert af lögunum þeirra. Ekki alveg nógu sniðugt, samt ágætt. Á föstudaginn kíkti ég aftur á móti í staffadjamm í Hafnarfjörðinn þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt við og fara heim þegar aðrir færu í bæinn. Veðrið var aftur á móti mjög slæmt þannig að enginn vildi fara niður í bæ. Ég fór því heim á sama tíma og aðrir, í kringum 5 leitið. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, en varð svo bara að fínustu skemmtun. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og Trúmál Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 09.18.08 by steini @ 19:24
Alltaf áhugavert að heyra fréttir frá Kóreu. Sérstaklega finnst mér fréttir um mótmæli þarlendis vera áhugasöm, en Kóreubúar hafa verið iðnir við kolann í þeim efnum og oftar en ekki fengið athygli erlendis frá fyrir sérstakar leiðir til að mótmæla. Hér má t.d. sjá nokkur dæmi um það. Á eyjunni í dag er svo ný frétt um blinda nuddara, en blindir eru víst þeir einu sem mega nudda í Kóreu (þetta vissi ég ekki) og mótmæli þeirra gegn því að aðrir en blindir og sjóndaufir megi starfa við það að nudda. Til að leggja áherslu á baráttu sína hótuðu þeir t.d. að hoppa fram af brú! Hvað getur maður sagt, alltaf lærir maður eitthvað nýtt. — Fór með Lóu frænku á tælenska veitingastaðinn Siam í Hafnarfirði í gær. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir. Það voru ekkert mjög margir í salnum, þó eitthvað hafi verið um fólk sem kom að sækja mat, en sú sem var að afgreiða var ekkert að fylgjast um of með kúnnunum svo við þurftum t.d. að bíða töluvert eftir að fá drykki, glös o.s.frv. Maturinn aftur á móti bætti það heldur betur upp og ég hef aldrei smakkað svona góðan thailenskan mat hér á íslandi áður. Fékk mér Pad Thai sem ég bað um að yrði gert töluvert sterkara en venjulega og djöfull hitti kokkurinn í mark með því sem ég fékk - vel sterkt, en enn pad thai bragðið. Rétturinn hennar Lóu var einnig rosalega góður og báðir réttirnir voru ríflega skammtaðir þannig að ekki var séns fyrir mig nema að klára tæplega 2/3 af matnum þó ég væri glorhungraður. Verðið er svo ekki neitt neitt, en rétturinn var á held ég 1290 með hrísgrjónum og salati. Þetta er allavega staður sem ég mun fara aftur á og get hiklaust mæla með fyrir alla þá sem finnst thailensk matargerð góð. Annars, mæli með þessu fyrir alla hina líka, frábær matur. — Það er vonandi að það verði æfingaleikur á föstudaginn hjá Heimsliðinu og svo á laugardaginn verður heljarinnar HHS-partý. Allt bara að gerast. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og matur og íþróttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.11.08 by steini @ 0:41
Sá sem uppgötvaði manna fyrstur að matarolía væri tilvalin í að þrífa harpix af höndum er/var snillingur, en umfram allt held ég að hann hafi verið mjög pervertískur einstaklingur sem uppgötvaði áhrif töframeðalsins fyrir slysni. Ekki ólíkt því þegar Alexander Flemming uppgötvaði (enduruppgötvaði?) áhrif pensilíns. Það fer þó engum sögum hér hvort Flemming þessi hafi verið pervertískur eður ei. Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.04.08 by steini @ 0:33
Heimsliðið tók sína fyrstu æfingu á þessu ári í kvöld. Gaman að vera byrjaður að spila aðeins aftur, en það er á hreinu að það verða útihlaup næstu vikurnar. Þetta gengur ekki upp svona til lengdar. Maður þarf að setja raunhæft markmið um að vera farinn að hlaupa 7km fyrir jól, er það ekki? Held að það sé ágæt byrjun allavega. Skráð sem: Dagleg skrif og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 09.03.08 by steini @ 20:31
Rosalega finnst mér þetta vera langt út fyrir öll velsæmismörk hjá Google. Að ætlast til þess að þeir fái ótakmarkaða heimild til að nota allt sem þú lætur frá þér á veraldarvefnum (gegnum Chrome vafrann þeirra) í þeirra þágu. Þannig að þú basically gefur frá þér þinn einka eignarrétt yfir hlutum sem þú postar á netinu. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 09.02.08 by steini @ 1:01
Stundum gerir maður alveg hræðileg mistök. Í gær horfði ég á nýju X-files myndina (elskaði gömlu þættina) og það er eitthvað sem ég get því miður ekki tekið til baka. Ekki bara að þetta hafi verið tímaeyðsla, þá eyðilagði þetta rosalega nostalgíuhugsunina við X-files hjá manni - ekki sniðugt. Fyrir utan slappt handrit, lélega díaloga og ótrúverðuga persónusköpun, þá var Gillian Anderson alveg hræðileg í þessari mynd. Hvað hefur eiginlega komið fyrir, hún var alltaf fínasta leikkona í gömlu þáttunum, en þarna er hún bara plain slæm. Mæli öllum frá að sjá þessa hörmung. *1/2/***** — Byrjaði í dag að vinna hjá Landsbankanum í Hamraborg. Verð þar gjaldkeri í þessu nýlega sameinaða útibúi (Hamraborgin og Háaleitið). Get ekki sagt annað en að mér lítist ágætlega á þetta, hresst fólk og þægileg staðsetning. Dagurinn í dag var reyndar frekar busy (fyrsti mánaðarins) þannig að ég komst ekkert vel inní neina hluti, en það kemur vonandi í vikunni. — Næsta helgi verður helguð útskriftarveislum. Helgina eftir það er pæling um að kíkja á Upplyftingarball á Bifröst. Helgina eftir það verður svo HHS partý hérna heima þar sem nýir og gamlir hhs-ingar munu hittast og vonandi skemmta sér frameftir nóttu. Þannig að nóg að gera næstu helgar. — Heimsliðið er komið á stjá aftur. Komnir með tíma í mýrinni og stefnan er sett á utandeildina í ár. Ef fram heldur sem horfir þá verður þetta massa lið hjá okkur sem ætti að geta ýtt frá sér og látið önnur lið finna aðeins fyrir því. Stefnir í góðan vetur Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og íþróttir Svör: 1 svar komið |
