mistök!

Stundum gerir maður alveg hræðileg mistök. Í gær horfði ég á nýju X-files myndina (elskaði gömlu þættina) og það er eitthvað sem ég get því miður ekki tekið til baka. Ekki bara að þetta hafi verið tímaeyðsla, þá eyðilagði þetta rosalega nostalgíuhugsunina við X-files hjá manni - ekki sniðugt. Fyrir utan slappt handrit, lélega díaloga og ótrúverðuga persónusköpun, þá var Gillian Anderson alveg hræðileg í þessari mynd. Hvað hefur eiginlega komið fyrir, hún var alltaf fínasta leikkona í gömlu þáttunum, en þarna er hún bara plain slæm. Mæli öllum frá að sjá þessa hörmung. *1/2/*****

Byrjaði í dag að vinna hjá Landsbankanum í Hamraborg. Verð þar gjaldkeri í þessu nýlega sameinaða útibúi (Hamraborgin og Háaleitið). Get ekki sagt annað en að mér lítist ágætlega á þetta, hresst fólk og þægileg staðsetning. Dagurinn í dag var reyndar frekar busy (fyrsti mánaðarins) þannig að ég komst ekkert vel inní neina hluti, en það kemur vonandi í vikunni.

Næsta helgi verður helguð útskriftarveislum. Helgina eftir það er pæling um að kíkja á Upplyftingarball á Bifröst. Helgina eftir það verður svo HHS partý hérna heima þar sem nýir og gamlir hhs-ingar munu hittast og vonandi skemmta sér frameftir nóttu. Þannig að nóg að gera næstu helgar.

Heimsliðið er komið á stjá aftur. Komnir með tíma í mýrinni og stefnan er sett á utandeildina í ár. Ef fram heldur sem horfir þá verður þetta massa lið hjá okkur sem ætti að geta ýtt frá sér og látið önnur lið finna aðeins fyrir því. Stefnir í góðan vetur :)

Comments (1)

anneSeptember 3rd, 2008 at 5:31

Til hamingju med nyja starfid. Kvedjur hedan fra ollum i Finnlandi, er i tolvuna hja Matias sem eg a ad passa i dag og a morgun. Hitti Johanna og Noah ovart i baeinn i gaer og hun skilar lika kvedjur. Ertu farinn ad sakna mig?

Leave a comment

Your comment