chrome
Rosalega finnst mér þetta vera langt út fyrir öll velsæmismörk hjá Google. Að ætlast til þess að þeir fái ótakmarkaða heimild til að nota allt sem þú lætur frá þér á veraldarvefnum (gegnum Chrome vafrann þeirra) í þeirra þágu. Þannig að þú basically gefur frá þér þinn einka eignarrétt yfir hlutum sem þú postar á netinu.
Hvað ef t.d. tónlistarmaður eða vefhönnuður notar vefmail og sendir sína nýjustu afurð á annan einstakling (samverkamann, kaupenda eða álíka) í gegnum Chrome. Ef ég skil þetta rétt, þá ætti google að eiga rétt til að nýta sér þessar hugmyndir í sína þágu. Vel gert google, þetta er skref í rétta átt ef þið viljið fá hinn almenna notenda upp á móti ykkur og verða óvinsælt og hatað vörumerki, í stað þess að vinna með kúnnanum.
