mótmæli í Kóreu og thai matur á Siam
Alltaf áhugavert að heyra fréttir frá Kóreu. Sérstaklega finnst mér fréttir um mótmæli þarlendis vera áhugasöm, en Kóreubúar hafa verið iðnir við kolann í þeim efnum og oftar en ekki fengið athygli erlendis frá fyrir sérstakar leiðir til að mótmæla. Hér má t.d. sjá nokkur dæmi um það.
Á eyjunni í dag er svo ný frétt um blinda nuddara, en blindir eru víst þeir einu sem mega nudda í Kóreu (þetta vissi ég ekki) og mótmæli þeirra gegn því að aðrir en blindir og sjóndaufir megi starfa við það að nudda. Til að leggja áherslu á baráttu sína hótuðu þeir t.d. að hoppa fram af brú! Hvað getur maður sagt, alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
—
Fór með Lóu frænku á tælenska veitingastaðinn Siam í Hafnarfirði í gær. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir. Það voru ekkert mjög margir í salnum, þó eitthvað hafi verið um fólk sem kom að sækja mat, en sú sem var að afgreiða var ekkert að fylgjast um of með kúnnunum svo við þurftum t.d. að bíða töluvert eftir að fá drykki, glös o.s.frv. Maturinn aftur á móti bætti það heldur betur upp og ég hef aldrei smakkað svona góðan thailenskan mat hér á íslandi áður. Fékk mér Pad Thai sem ég bað um að yrði gert töluvert sterkara en venjulega og djöfull hitti kokkurinn í mark með því sem ég fékk - vel sterkt, en enn pad thai bragðið. Rétturinn hennar Lóu var einnig rosalega góður og báðir réttirnir voru ríflega skammtaðir þannig að ekki var séns fyrir mig nema að klára tæplega 2/3 af matnum þó ég væri glorhungraður. Verðið er svo ekki neitt neitt, en rétturinn var á held ég 1290 með hrísgrjónum og salati. Þetta er allavega staður sem ég mun fara aftur á og get hiklaust mæla með fyrir alla þá sem finnst thailensk matargerð góð. Annars, mæli með þessu fyrir alla hina líka, frábær matur.
—
Það er vonandi að það verði æfingaleikur á föstudaginn hjá Heimsliðinu og svo á laugardaginn verður heljarinnar HHS-partý. Allt bara að gerast.
