|
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:03
Það hefur í nokkurn tíma verið til skoðunar að leyfa byggingu mosku í Reykjavík. Eitthvað eru þó skipulagsmál að flækjast fyrir og hugmyndir um flatarmál lóðar og hæð turna er eitthvað sem er endalaust verið að fara yfir. Í dag hefur töluverð umræða verið á netinu og víðar um hvort gott og gilt sé að veita múslimum hérlendis leyfi til byggingar á þessari mosku. Sjálfur sé ég ekkert að því að aðrir en kristnir fái að byggja sér safnaðarhús (svona fyrir utan að mér finndist mun gáfulegra ef engin safnaðarhús yfir höfuð væru byggð), en það er þó eitt sem ég vona svo sannarlega að fái ekki að ganga í gegn. Bænastundir í kallkerfi fyrir utan moskur væru eitthvað sem ég teldi algjört klúður. Við skulum alls ekki vera að bæta óþarfa hljóðmengun við það sem kirkjuklukkurnar valda nú þegar. — HHS djammið á laugardaginn tókst held ég bara frábærlega. Mætingin var töluverð og ég held að ég geti fullyrt að fólk hafi almennt skemmt sér konunglega. Partýið stóð til svona hálf þrjú þegar síðustu gestir fóru í bæinn. Ég kíkti með fríðum hóp djammara á Sssól ball á NASA og komst að því að ég þekki eiginlega ekkert af lögunum þeirra. Ekki alveg nógu sniðugt, samt ágætt. Á föstudaginn kíkti ég aftur á móti í staffadjamm í Hafnarfjörðinn þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt við og fara heim þegar aðrir færu í bæinn. Veðrið var aftur á móti mjög slæmt þannig að enginn vildi fara niður í bæ. Ég fór því heim á sama tíma og aðrir, í kringum 5 leitið. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, en varð svo bara að fínustu skemmtun. Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og Trúmál Svör:
|

Takk kærlega fyrir að hýsa okkur, æðislegur hittingur:)
Comment by Telma — September 23, 2008 @ 21:59