|
Posted on 10.26.08 by steini @ 21:44
Skráð sem: Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 10.25.08 by steini @ 15:31
Þegar aðrir eru að pakka saman og draga úr umsvifum sínum á alþjóðavísu, þá blása Baggalútsmenn til sóknar og koma í loftið nýrri fréttaveitu, New Iceland, en þar eru einmitt fréttir ritaðar á alþjóðamálinu og tengingar við þekkta íslenska ráðamenn og auðjöfra sem hafa verið ofarlega í umræðunni varðandi kreppuna hér heima. Skráð sem: Dagleg skrif og Netið Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 10.23.08 by steini @ 19:56
Mogginn var að benda á húmor frá Herald Sun blaðinu í Ástralíu en ákvað eins og venjulega að linka ekki á fréttina, heldur þýddi í staðin greinina. Eins og oft vill gerast með brandara sem notast við orðaleiki varð útkoman ekki jafn góð og hún var upprunalega. Hér eru brandararnir á ensku af síðu Herald Sun: THE credit crunch has helped me get back on my feet. The car’s been repossessed. WHAT’S the capital of Iceland? About $1.50. WHAT have an Icelandic bank and an Icelandic streaker got in common? They both have frozen assets. A DIRECTOR decided to award a $100 prize for the best idea to save the company money during the credit crunch. It was won by a young executive who suggested reducing the prizemoney to $10. HOW do you define optimism? A banker who irons five shirts on a Sunday. WHAT’S the difference between an investment banker and a large pizza? The pizza can still feed a family of four. WHY have real estate agents stopped looking out the window in the morning? Because otherwise they’d have nothing to do in the afternoon. WHAT’S the difference between an investment banker and a pigeon? The pigeon is still capable of leaving a deposit on a new Ferrari. WHAT do you say to a hedge fund manager who can’t sell anything? A Quarter-pounder with fries, please. THIS credit crunch is worse than a divorce. I’ve lost half my net worth and I still have a wife. THE bank returned a cheque to me this morning, stamped: “Insufficient funds.” Is it them or me? MONEY talks. Trouble is, mine knows only one word: “Goodbye.” Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og grín Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 10.22.08 by steini @ 23:45
Maður er orðinn gamall þegar maður fer í pínu gannislag og fær í bakið. Skráð sem: Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 10.22.08 by steini @ 0:44
Að fara á Max Payne myndina er með því vitlausara sem ég hef gert í lengri tíma. Það er vanhelgun á mannlegri reisn að fara á og eyða tíma í svona tilgangslaust rusl. Eftir á að hugsa hefði verið skynsamlegra að læra að syngja Mambo nr 5 afturábak, en að fara á þessa mynd. Þvílík sóun, þvílík hörmung og þvílík mannvonska. Skráð sem: Kúltúra Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 10.21.08 by steini @ 21:23
Þetta lag var flutt 7. feb 2008 í Borgarbókasafninu á ljóðaslammskeppninni. Stelpan heitir Halldóra Ársælsdóttir og er greinilega helvíti öflug og björt von uppá hnittna texta að gera. Áhugavert líka hvað þetta hefur ræst mikið hjá henni. (fundið á eyjunni) Skráð sem: Dagleg skrif og Netið og grín Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 10.20.08 by steini @ 19:48
Hér er ágætis samantekt á kóreskum drykkjuvenjum. Ég allaveg brosti út í annað þegar ég las þetta. Með þessu fylgir svo video sem sýnir tvo haugadrukkna kóreubúa á almannafæri. Ég verð þó að segja að þó maður hafi oftar en ekki séð blindfulla kóreubúa, þá voru þeir sjaldnast með einhverja ofbeldistilburði eins og manni sýnist vera í þessu myndbandi Skráð sem: Kórea og Netið Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 10.14.08 by steini @ 17:38
Áhugavert að sjá viðbrögð fólks við fréttum sem þessari. Þið getið ímyndað ykkur hvað gerist þegar einn dag flestar/allar millifærslur eru stöðvaðar vegna þess að erlendir bankar neita að eiga viðskipti við landið og allar þessar færslur koma til baka. Nokkrir starfsmenn sem hafa haft nóg að gera við að leiðrétta mistök og vitlaus IBAN númer hingað til fá allt í einu langflestar færslur sem gerðar eru og eiga að redda því bara einn tveir og bingó. Auðvitað er fólk að gera sitt besta að reyna að bakfæra þetta, en það tekur tíma að matcha færslur saman. Ekki bætir úr skák að 300 manns var nýlega sagt upp úr fyrirtækinu og því ekki jafn líklegt að hlaupa til aðstoðar annarsstaðar frá þegar mikið er að gera. Þetta er bara svipað og þegar það verða álagstímar í fyrirtækjum, byrjun mánaðar í bönkum eða þegar fyrsta hálkan kemur á veturnar og allt fyllist á dekkjaverkstæðum. Fólk þarf bara að bíða meðan röðin minnkar og það verður hægt að afgreiða alla. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 10.13.08 by steini @ 17:50
Á baksíðu Morgunblaðsins í dag kemst fréttamaður að því að það er dýrara að borða á veitingastöðum en heima hjá sér. Bendir á að þó hann kaupi pasta, tómatsósu, hakk og jafnvel parmasan ost í bónus, þá sé það ódýrara en að fara út að borða með fjölskyldunni. Vel gert herra blaðamaður, vel gert, þvílík framúrskarandi blaðamennska hefur sjaldan sést á síðum íslenskra blaða. Auðvitað kostar ekkert að halda úti veitingastað með húsnæðiskostnaði, launakostnaði o.s.frv. Hver samþykkti eiginlega þetta rugl sem frétt? Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 10.12.08 by steini @ 16:06
Meðan bretar kaffærðu Kaupþing, misnotuðu hryðjuverkalöggjöf o.s.frv. þá ákvað ég að snúa vörn í sókn og valta yfir þá á öðrum vettvangi. Ákvað að vera Wales og á nokkrum klst var England orðið að engu og í þessum töluðu orðum er Skotland að falla um koll (hefnd fyrir fótboltann á dögunum). Fljótlega mun ég svo væntanlega stjórna öllum bresku eyjunum og þá geta Englendingar séð hvar Davíð keypti ölið Skráð sem: Dagleg skrif og tölvur og nördismi Svör: Ekkert ennþá |
| previous posts » |

