hvað er Egill að pæla?
Sjaldan hefur maður séð Egil Helgason jafn lélegan og í Silfrinu áðan. Viðtalið við Jón Ásgeir byrjaði ágætlega og hann kom með nokkra punkta á Jón Ásgeir og sagði hann bera töluverða ábyrgð á því sem hefði gerst hérlendis. Strax og Jón Ásgeir stoppaði aftur á móti Egil og sagði að öll þeirra félög hefðu verið í skilum og að þau hefðu verið að ganga upp þegar (alþjóðlega) hrunið fór af stað, þá fór Egill bara að gagga “Þetta er þér að kenna Jón, þetta er þér að kenna”, bara á mismunandi hátt án þess að koma með nein rök fyrir því. Meðan Egill missti sig svo í góðan tíma og gaggaði bara að þetta væri allt Jón Ásgeiri og félögum að kenna hélt Jón Ásgeir sig rólegum og kom mun betur út úr viðtalinu, allavega ef miðað er við þær forsendur sem uppi eru og hvernig maður bjóst við að hann ætti varla að geta varið sig í þessu viðtali.
Það verður bara að segjast eins og er að Egill varð sér algjörlega til skammar þarna áðan í viðtali sem fyrirfram hefði átt að vera unnin orusta.

Reyndur fjölmiðlamaður eins og Egill ætti að vita að ef þú ferð of harkalega þá skaparðu samúð með viðmælandanum. Sem hann gerði. Hann var mjög slappur og furðulegt að hann hafi ekki getað feisað Jón með betri skotum en Gumball.