|
Posted on 10.14.08 by steini @ 17:38
Áhugavert að sjá viðbrögð fólks við fréttum sem þessari. Þið getið ímyndað ykkur hvað gerist þegar einn dag flestar/allar millifærslur eru stöðvaðar vegna þess að erlendir bankar neita að eiga viðskipti við landið og allar þessar færslur koma til baka. Nokkrir starfsmenn sem hafa haft nóg að gera við að leiðrétta mistök og vitlaus IBAN númer hingað til fá allt í einu langflestar færslur sem gerðar eru og eiga að redda því bara einn tveir og bingó. Auðvitað er fólk að gera sitt besta að reyna að bakfæra þetta, en það tekur tíma að matcha færslur saman. Ekki bætir úr skák að 300 manns var nýlega sagt upp úr fyrirtækinu og því ekki jafn líklegt að hlaupa til aðstoðar annarsstaðar frá þegar mikið er að gera. Þetta er bara svipað og þegar það verða álagstímar í fyrirtækjum, byrjun mánaðar í bönkum eða þegar fyrsta hálkan kemur á veturnar og allt fyllist á dekkjaverkstæðum. Fólk þarf bara að bíða meðan röðin minnkar og það verður hægt að afgreiða alla. Skráð sem: Dagleg skrif og Fréttir Svör:
|

Jah, ég skil svosem að þetta sé erfitt - treystu mér, ÉG TÓK EFTIR ÞESSU. En ég lét færa peninga til Þýskalands fyrir tæpri viku síðan, og þeir peningar hafa aldrei komið fram hér. Byr kennir Deutsche Bank um, og Deutsche Bank kannast ekkert við málið. Þetta voru 57.000 kr sem ég hafði ekki efni á að tapa, og enginn virðist vita hvað varð af þeim…
Kv. Elín.
Comment by Elín Arna — October 14, 2008 @ 19:40
Voðalega eru menn eitthvað rólegir yfir þessu…þetta er ævisparnaður fólks í sumum tilfellum.
Comment by Júlli — October 14, 2008 @ 22:55
júlli, þó maður sé ekki að missa sig algjörlega í hysteríunni, þá þýðir það ekki að manni sé sama um hvernig ástandið er. Sé bara ekki alveg afhverju fólk fer í fjölmiðla og öskrar að bankinn sé búinn að týna peningunum þeirra þegar það er búið að útskýra fyrir þeim afhverju þetta er í lamasessi og að það sé verið að vinna í að greiða úr þessu. Og sérstaklega skil ég ekki afhverju bankinn er að slá þessu upp sem fyrirsögn á þennan hátt. Finnst það nokkuð óábyrgt af þeim.
Ég geri svo heldur ekki ráð fyrir að fólk sé að senda allan ævisparnaðinn sinn út gegnum swift greiðslur á þeim tíma þegar krónan er í lágmarki. Þú ert að rugla þessu saman við peningabréfin, hlutabréfin og önnur skuldabréf. Það er allt annað og ég er ekki að setja út á gagnrýni fólks og fjölmiðla á það. En hvernig mbl er að kasta fram upphrópunum um að bankinn sé að týna peningum þegar eðlilegar skýringar liggja á bakvið það, finnst mér vera slæmt.
Comment by steini — October 15, 2008 @ 0:16