kóresk ölvun
Hér er ágætis samantekt á kóreskum drykkjuvenjum. Ég allaveg brosti út í annað þegar ég las þetta. Með þessu fylgir svo video sem sýnir tvo haugadrukkna kóreubúa á almannafæri. Ég verð þó að segja að þó maður hafi oftar en ekki séð blindfulla kóreubúa, þá voru þeir sjaldnast með einhverja ofbeldistilburði eins og manni sýnist vera í þessu myndbandi

Ein mynd sem að ég held að þú hafir gaman af. Þetta mun sjást á strætisvögnum í London á næstunni
http://static.guim.co.uk/sys-images/Guardian/Pix/pictures/2008/10/20/atheistbus.jpg
Jebb var búinn að sjá þetta, voru um daginn að safna fyrir þessu á netinu. Algjör snilld