Þegar aðrir eru að pakka saman og draga úr umsvifum sínum á alþjóðavísu, þá blása Baggalútsmenn til sóknar og koma í loftið nýrri fréttaveitu, New Iceland, en þar eru einmitt fréttir ritaðar á alþjóðamálinu og tengingar við þekkta íslenska ráðamenn og auðjöfra sem hafa verið ofarlega í umræðunni varðandi kreppuna hér heima.
Þessi fyrirsögn hjá þeim er gott dæmi um einstaklega öflugt hugmyndaflug hjá drengjunum:
“I have to admit – I’ve never been too keen on Iceland
God – On the Iceland-situation”

Þakka annars fyrir allar kveðjurnar í gær, ánægjulegt að heyra að aðrir samfagni með manni þegar maður eldist svona. Aðrir sem ekki sendu mér kveðju, takk fyrir ekkert. Tók annars skref í áttina að því að fullorðanast á þessum tímamótum og prufaði að nota linsur. Helvíti þægilegt og fólk talar um að ég sé bara orðinn hálf myndalegur aftur eftir að hafa tekið niður gleraugun, en ég skil ekki ennþá hvernig maður á að komast uppá lagið með að pota puttanum í augað löngum stundum til að koma linsunum fyrir. Það getur ekki talist heilbrigt
bleck jeck net casino…
explanatory!transplanting ranged!mutatis …
Trackback by bleck jeck net casino — November 10, 2008 @ 3:37