|
Posted on 11.02.08 by steini @ 13:56
100 handteknir í Bretlandi. Ætli meirihlutinn af þeim sé ekki frá Íslandi? — Annars er ég sammála honum Steingrími í Silfrinu. Ekki vitlaust að kjósa þegar kemur fram á vor. Held að kosningar akkúart núna séu aðeins of erfiðar og þá muni fljóttekin geðþóttaákvörðun einstaklinga ráða hvað mestu um hver verði kosin, en ekki upplýst ákvörðun þegar fleiri bein eru komin til grafar varaðndi það sem gerðist, afhverju það gerðist o.s.frv. Sjálfur mun ég allavega vandlega þurfa að íhuga hvað ég kýs næst og næstum allir flokkar standa á sama stað í huga mínum núna (fyrir utan einn) varðandi möguleika á að ég kjósi þá. Ég vil aftur á móti fá betri upplýsingar um það hverjir voru að klikka og hverjir voru að taka rangar ákvarðanir áðru en ég geri upp huga minn og kýs nýja stjórn til 4 ára. Þessi 4 ára regla einmitt hefur ups and downs. Flokkar geta tekið ákvarðanir sem eru nauðsynlegar, en ekkert gífurlega vinsælar í blöðum og annari umræðu þar sem þrýstihópar geta farið í hart. Á móti kemur að í erfiðum aðstæðum sem þessari þá halda þeir velli, svo framalega sem ríkisstjórnin haldi velli, jafnvel þótt meirihluti almennings sé ósáttur. — Það er mjög áhugavert að uppgötva í draumi að mann sé að dreyma og geta í framhaldinu ákveðið að fara að stýra atburðarásinni í draumnum og gera allskonar rugl hluti sem manni langar að gera. Það er allavega frekar funky upplifun. Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík Svör:
|
