After calculating that I wasted 6500 hours in church the first 25 years of my life, I vowed to spend 6500 hours doing volunteer work that would actually make a difference in the world.
Þessi litla saga, og þetta enn minna komment segir nú meira um ykkur og vitund ykkar á trú en nokkuð annað
Allir/flestir vita það að það er ekki nauðsynlegt að fara í kirkju til þess að lofa Guð. Hann elskar okkur ekkert minna fyrir vikið!
Einnig hafa kannanir sýnt fram á að fólk sem trúir á Guð, sé líklegra til að sinna samfélagshjálp af einhverri tegund, frekar en þeir sem trúa ekki (hér erum við að tala um almenna borgara sem eru ekki búnir að læra siðfræði!).
Þannig það að setja dæmið upp með kl.stundum í kirkju og stundum sem hægt væri að nota í annað er alveg tabú þ.e.a.s. ef það á að benda á tilgangsleysi þess að trúa þegar hægt er að gera betri hluti fyrir samfélagið í heild, í staðinn.
Nú skulum við ekki rugla saman trúarbrögðum og trú, því það eru trúarbrögðin sem eyðileggja fyrir trúnni.
Þar sem ég veit að annar ykkar er útskrifaður úr HHS og hinn stundar nám þar þá vil ég benda ykkur á það sem hagfræðingurinn Josep Schumpeter sagði svo listilega um lýðræðið “Kjósendur eru illa upplýstir og óskynsamir um stjórnmál, nema málið varði þá beint”. Þessi orð hans eiga svo sannarlega líka við um marga þá sem kjósa og segjast fylgja Guði. Staðreyndin er sú, að þó svo að fólk segist trúa á Guð, er það engin sönnun fyrir því að það viti nokkuð um hvað það er að tala (ekki frekar en sá sem fer á kjörstað á fjagra ára fresti). Ekki er nóg að játast honum með munni sínum. Frekar en að hafa skírst, fermst og farið í einstaka fermingar og brúðkaup til að vera orðinn sérfræðingur um Guð.
Því langar mig að benda þér á elsku vinur að ef að þú hefur eytt 6500 stundum af fyrstu 25 árum æfi þinnar(sem væir skrítið, því þá erum við farin að tala um að sáðfrumur og egg geti stundað kirkju.) í að sækja kirkju (nema að þú hafir hreinlega verið að skúra í henni), að þá hafir þú trúlega eytt öðrum eins tíma í að gera góðverk eða aðra hluti sem snerta samfélagið svo sannarlega á ekki verri hátt en sá sem varði tíma sínum í “opinbera” samfélagshjálp.
Ég er ekki að segja að það að játast Guði sé eina leiðin í átt að betri einstakling. Heldur að á meðan það er til leið sem gagnast sumum til að verða betri þegnar, Þá skulum við fara varlega í það að setja upp svona dæmi sem “illa upplýstir kjósendur” geta farið með á þann hátt sem hentar þeim best (fordómar).
Ágætt væri svona til tilbreittni að fólk sem fengi niðurgang á því að heyra þegar talað er um trú að það færi hreinlega að kynna sér trúarbrögðin og þá söfnuði sem í kringum þau eru… því ef einhverntíman er tilefni til að fordæma að þá er það á þeim stöðum, en ekki með “alhæfingu” um kirkjurnar allar í heild sinni.
Kveðja Halla
E.s vil ég þakka Júlíusi gamla fyrir þennan link, því eins og hann veit að þá þykir mér fátt eins skemmtilegt og að skiptast á skoðunum um trú.
Fyrir þá sem þurfa, þá bý ég í Hraunkoti ef w.c. pappírinn klárast…og um leið gæti ég látið ykkur hafa gagnlegar netslóðir um hin ýmsu trúarbrögð.
Comment by Hallveig Hörn — November 6, 2008 @ 1:44
jákvæður heilaþvottur er alltaf heilaþvottur
Hallveig Hörn. Lítið að gera. Ekkert illt meint með.
“Allir/flestir vita það að það er ekki nauðsynlegt að fara í kirkju til þess að lofa Guð. Hann hatar okkur ekkert minna fyrir vikið!”
Og hvað segir svo sem að hann hati okkur?
“Nú skulum við ekki rugla saman trúarbrögðum og trú, því það eru trúarbrögðin sem eyðileggja fyrir trúnni.”
Hvað er trú án trúarbragða, og trúarbrögð án trúar? Elur ekki annað af sér hitt í báðum tilvikum? eitur án áhrifa? Er ekki hægt að vinda þessu upp í anhverfu sína og segja að þeir trúhörðustu eyðileggi trúarbrögð með blindni sinni….
Elsku Steinar…hvað er nám? Þú vilt trúlea halda því fam að það sé bara til að auka þekkingu okkar. Þekkingu okkar á umheiminum…Það er reyndar þannig að margir þarfnast aukinnar þekkingu á því að verða betri manneskja. Ef telja á trú undir heilaþvott, þá segi ég nú að heilaþvottur á sér stað alls staðar í umhverfi okkar. Ég efast stórlega um að þú ætlir að fara að neita því…eins fróður og þú ert um heilaþvott.
Aldrei er talað um að Guð hati okkur, meira eða minna! Trúin snýst um það að læra að koma fram við aðra eins og maður vill að aðrir komi fram við sig…saman ber kenningu Kants! Hún kennir okkur einnig að það að breyta vel gagnvart náunganum gerir okkur gott, samanber “góðum vilja” (Kant), sýna öðrum kærleika. Bjóða hina kynnina samanber Sókrates “sá sem beitir aðra ranglæti er alltaf verr staddur en sá sem er beittur ranglæti”.
Ef Guð er ekki til og Biblían ekki orð drottins þá get ég ekki annað sagt en að hún er trúlega skrifuð af bestu siðfærði heimspekingum allra tíma… og því lang besta uppeldishandbók sem fólk kæmist í tæri við.
Það er alveg rétt hjá þér að þeir trúhörðustu eyðileggi trúarbrögð með blindin sinni. Þá skulum við líka hafa í huga BLINDI, það þýðir ekki að þeir hafi rétt fyrir sér. Til er fólk sem aðhyllist trú en ekki trúarbrög það elskar sinn Guð eða hefur sína barnatrú. Fólk skal ekki halda að það sé merkilegra ef það aðhyllist einhver trúarbrög því Guðinn er oftast sá sami. Í raun mætti eiginlega segja að halda mætti að við værum uppi á Viktoríu tímabilinu þar sem samkynhneigð og kynlíf var bælt eins vel og hægt var, nema nú snýst þetta ekki lengur um samkynheig og kynlíf heldur trú! Reyndar verð ég að segja að það er sama á hvað fólk trúir að þá er það ekki okkar mál, svo framarlega að það skaði ekki aðra með sinni trú (þá er ég ekki bara að tala um trúna á Guð).
Matt 7:7 Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. (Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir)
Já auðvita… það þýðir ekkert að sitja heima í volæði og væla í einhverjum aumingjaskap… ekki frekar en ef þú trúir á the secret!
Og í lokin… þá eru bara sumir sem hafa önnur áhugamál en að spila borðtennis eða fótbolta svo það er kannski ekki hægt að tala um að það sé eitthvað lítið að gera… ég eyði bara mínum tíma í annað ☺… svo eru líka 24 tímar í sólahring og spurning um að eyða honum ekki öllum í svefn…
Kv.
Comment by Hallveig Hörn — November 10, 2008 @ 16:29
Djöfull sé ég eftir að hafa eytt tíma í að lesa þetta allt…..
Ég hélt því fram að jákvæður heilaþvottur væri þegar allt er talið saman, alltaf heilaþvottur, hvernig sem á það er litið. Hvernig þú ferð að því að blanda námi saman við heilaþvott, og gerir mér upp skoðanir á því öllu saman er mér dulin ráðgáta. Ætla í rauninni ekki að fara lengra með það en bara segja, Heilaþvottur, hvort heldur er til góðs eða ills, er alltaf heilaþvottur. og kannski játa því að trúarbrögð eru út um allt ergo heilaþvottur er til út um allt;)
Biblíuna les hver með sínu nefi, og hún er alls engin dásemdarsmíð að því leiti að fólk hefur í gegnum tíðina lesið það sem það vill úr henni og notað það sér til framdráttar. Oftar en ekki með skelfilegum afleiðingum fyrir annað fólk. Það er vissulega ekki hægt að neita því að það er margt gott sem í skruddunni stendur, en það er líka margt sem þar stendur sem í túlkum sumra virkar se mstökkpallur á hörmungar.
Í góðu uppeldisriti stendur
“Konur, verið undirgefnar eiginmönnum ykkar eins og sómir þeim er Drottni heyra til.”
Ég breytti nú ást í hatur í tilvitnun til þín því það er alltaf sjálfsagður hlutur í svona umræðum nánast að guð elski okkur, en það er ekki sjálfsagt að hann hati okkur. Hvar er munurinn. Er ástin komin að því að hann bjó til himin og jörð og mennina með í sinni eigin mynd. Ákvað í bríaríi að það væri upplagt að gefa okkur frjálsan vilja, og bjó til stað eilífs elds og hörmunga sem við færum á ef við þóknuðumst ekki vilja HANS? Er það ótakmörkuð ást ? ekki smá hatur þar á ferð?
Annars vildi meina þegar ég sagði að ég hefði lítið að gera, að það væri lítið að gera í vinnunni hjá mér og því væri ég að rökræða um hluti sem engan botn er hægt að fá í. Ég vinn á fjöllum aldrei minna en 12 tíma vinnudag 10 daga í einu, og það er oftast þannig háttað að mér gefst ekki tími til langlokuskrifa á netinu.Mín persónulega trú á Guði er ekki hægt að rökræða í endanlega niðurstöðu, meðan það eru fleiri á rökstólunum nema ég sjálfur.
Sæl Hallveig, hafði mig loksins í að fara í gegnum þetta textaflóð allt til að svara þér. Biðst afsökunar á því hvað það tók langan tíma. Allavega voru hjá þér nokkrar setninga sem stoppuðu mig aðeins og kölluðu á andsvör auk þess sem ég hennti pínu samantekt neðst.
“Allir/flestir vita það að það er ekki nauðsynlegt að fara í kirkju til þess að lofa Guð. Hann elskar okkur ekkert minna fyrir vikið!”
Hér staðhæfiru að guð sé til. Ertu með einhverja meiri sönnun á tilvist hans en einhver annar? Væri nær að tala um að þó að ekkert vísindalegt bendi til tilveru guðs, þá sé ekki hægt að afsanna tilvist hans (svipað og að ég get ekki afsannað tilvist spagettískrímslisins).
“Einnig hafa kannanir sýnt fram á að fólk sem trúir á Guð, sé líklegra til að sinna samfélagshjálp af einhverri tegund, frekar en þeir sem trúa ekki (hér erum við að tala um almenna borgara sem eru ekki búnir að læra siðfræði!).”
Endilega benntu mér á rannsóknir sem staðfesta þetta. Finnst einmitt að ég hafi séð niðurstöður sem benda til þess að enginn marktækur munur sé á þessu milli trúaðra eða ótrúaðra.
“Því langar mig að benda þér á elsku vinur að ef að þú hefur eytt 6500 stundum af fyrstu 25 árum æfi þinnar(sem væir skrítið, því þá erum við farin að tala um að sáðfrumur og egg geti stundað kirkju.) í að sækja kirkju (nema að þú hafir hreinlega verið að skúra í henni), að þá hafir þú trúlega eytt öðrum eins tíma í að gera góðverk eða aðra hluti sem snerta samfélagið svo sannarlega á ekki verri hátt en sá sem varði tíma sínum í “opinbera” samfélagshjálp.”
Á hverju byggiru það að þeir sem sæki kirkju í x-klst eyði sömu x-klst í samfélagshjálp? Þarna ertu væntanlega að byggja á þessum fyrrnefndu rannsóknum sem þú vitnaðir í en ég stórlega dreg í efa. Aftur, endilega bentu á rannsóknir sem sýna fram á þetta.
“Reyndar verð ég að segja að það er sama á hvað fólk trúir að þá er það ekki okkar mál, svo framarlega að það skaði ekki aðra með sinni trú (þá er ég ekki bara að tala um trúna á Guð).”
Mjög svo sammála þér þarna, en málið er að það eru einmitt kristnir söfnuðir þessa lands með þjóðkirkjuna (ríkiskirkjuna) í farabroddi sem hafa verið hvað duglegust að troða sér og sínum skoðunum fram. Það þarf ekki mikið meira en að benda á trúarinnrætingu sem á sér stað á opinberum leikskólum, mikinn áherslumun á kristinfræðslu og trúarbragðarfræði tímum í grunnskóla (þar sem töluverðir fordómar eru oft gegn öðrum trúarbrögðum í námsefni), allskonar kirkjuathafnir fyrir opinbera starfsmenn, kirkjuheimsóknir grunnskóla, skólapresta o.s.frv. Mottó kirkjunnar ýtir svo bara enn meira undir þetta
“ekki frekar en ef þú trúir á the secret!”
Hér hlýnaði mér aðeins um hjartaræturnar
En já, svona í lokin þá langar mig að zoom-era aðeins það sem ég meinti með því að setja inn þessa tilvitnun. Fyrir mér merkir hún einmitt það að það að tíminn (og reyndar peningar ef við viljum fara út í það) sem fari í kirkjuheimsóknir sé mun betur eytt í eitthvað sem virkilega skiptir máli. Ég var með þessu ekki að setja út á að fólk hafi sína trú eða á hvaða guð það trúir. Ef ég man rétt segir biblían líka að fólk eigi ekki að tilbiðja guð í bænarhúsum, heldur í einrúmi með sjálfu sér án þess að upphefja trúna sem slíka í eitthvað veraldlegt (sem er einmitt það sem trúarbrögðin hafa búið til í kringum trúnna).
Þannig að ef ég skil rétt, þá erum við nokkuð sammála um að tíminn sem fer í kirkjuheimsóknir og slíkt sé ekki of vel nýttur, meðan skoðun okkar á trúnni sem slíkri er mjög ólík, en það var aldrei meiningin með þessari færslu að fara útí
E-mail birtast ekki. Html til að gera url og annað minniháttar fúnkerar. Verið annars bara góð og ekki skrifa eitthvað ljótt!
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.
Undirsíður Myndir Mússík Eldri Myndir Dvd Safnið Ég á Last-Fm
Afskrá ?
Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar.
Nánar hér
Heheh…..þessi litla saga segir allt sem þarf að segja!
Comment by Júlli — November 5, 2008 @ 23:16
Þessi litla saga, og þetta enn minna komment segir nú meira um ykkur og vitund ykkar á trú en nokkuð annað
þ.e.a.s. ef það á að benda á tilgangsleysi þess að trúa þegar hægt er að gera betri hluti fyrir samfélagið í heild, í staðinn.
Allir/flestir vita það að það er ekki nauðsynlegt að fara í kirkju til þess að lofa Guð. Hann elskar okkur ekkert minna fyrir vikið!
Einnig hafa kannanir sýnt fram á að fólk sem trúir á Guð, sé líklegra til að sinna samfélagshjálp af einhverri tegund, frekar en þeir sem trúa ekki (hér erum við að tala um almenna borgara sem eru ekki búnir að læra siðfræði!).
Þannig það að setja dæmið upp með kl.stundum í kirkju og stundum sem hægt væri að nota í annað er alveg tabú
Nú skulum við ekki rugla saman trúarbrögðum og trú, því það eru trúarbrögðin sem eyðileggja fyrir trúnni.
Þar sem ég veit að annar ykkar er útskrifaður úr HHS og hinn stundar nám þar þá vil ég benda ykkur á það sem hagfræðingurinn Josep Schumpeter sagði svo listilega um lýðræðið “Kjósendur eru illa upplýstir og óskynsamir um stjórnmál, nema málið varði þá beint”. Þessi orð hans eiga svo sannarlega líka við um marga þá sem kjósa og segjast fylgja Guði. Staðreyndin er sú, að þó svo að fólk segist trúa á Guð, er það engin sönnun fyrir því að það viti nokkuð um hvað það er að tala (ekki frekar en sá sem fer á kjörstað á fjagra ára fresti). Ekki er nóg að játast honum með munni sínum. Frekar en að hafa skírst, fermst og farið í einstaka fermingar og brúðkaup til að vera orðinn sérfræðingur um Guð.
Því langar mig að benda þér á elsku vinur að ef að þú hefur eytt 6500 stundum af fyrstu 25 árum æfi þinnar(sem væir skrítið, því þá erum við farin að tala um að sáðfrumur og egg geti stundað kirkju.) í að sækja kirkju (nema að þú hafir hreinlega verið að skúra í henni), að þá hafir þú trúlega eytt öðrum eins tíma í að gera góðverk eða aðra hluti sem snerta samfélagið svo sannarlega á ekki verri hátt en sá sem varði tíma sínum í “opinbera” samfélagshjálp.
Ég er ekki að segja að það að játast Guði sé eina leiðin í átt að betri einstakling. Heldur að á meðan það er til leið sem gagnast sumum til að verða betri þegnar, Þá skulum við fara varlega í það að setja upp svona dæmi sem “illa upplýstir kjósendur” geta farið með á þann hátt sem hentar þeim best (fordómar).
Ágætt væri svona til tilbreittni að fólk sem fengi niðurgang á því að heyra þegar talað er um trú að það færi hreinlega að kynna sér trúarbrögðin og þá söfnuði sem í kringum þau eru… því ef einhverntíman er tilefni til að fordæma að þá er það á þeim stöðum, en ekki með “alhæfingu” um kirkjurnar allar í heild sinni.
Kveðja Halla
E.s vil ég þakka Júlíusi gamla fyrir þennan link, því eins og hann veit að þá þykir mér fátt eins skemmtilegt og að skiptast á skoðunum um trú.
Fyrir þá sem þurfa, þá bý ég í Hraunkoti ef w.c. pappírinn klárast…og um leið gæti ég látið ykkur hafa gagnlegar netslóðir um hin ýmsu trúarbrögð.
Comment by Hallveig Hörn — November 6, 2008 @ 1:44
jákvæður heilaþvottur er alltaf heilaþvottur
Hallveig Hörn. Lítið að gera. Ekkert illt meint með.
“Allir/flestir vita það að það er ekki nauðsynlegt að fara í kirkju til þess að lofa Guð. Hann hatar okkur ekkert minna fyrir vikið!”
“Nú skulum við ekki rugla saman trúarbrögðum og trú, því það eru trúarbrögðin sem eyðileggja fyrir trúnni.”
Hvað er trú án trúarbragða, og trúarbrögð án trúar? Elur ekki annað af sér hitt í báðum tilvikum? eitur án áhrifa? Er ekki hægt að vinda þessu upp í anhverfu sína og segja að þeir trúhörðustu eyðileggi trúarbrögð með blindni sinni….
Guð hjálpar bara þeim sem hjálpa sér sjálfir
Comment by steinar mar — November 8, 2008 @ 10:54
Elsku Steinar…hvað er nám? Þú vilt trúlea halda því fam að það sé bara til að auka þekkingu okkar. Þekkingu okkar á umheiminum…Það er reyndar þannig að margir þarfnast aukinnar þekkingu á því að verða betri manneskja. Ef telja á trú undir heilaþvott, þá segi ég nú að heilaþvottur á sér stað alls staðar í umhverfi okkar. Ég efast stórlega um að þú ætlir að fara að neita því…eins fróður og þú ert um heilaþvott.
Aldrei er talað um að Guð hati okkur, meira eða minna! Trúin snýst um það að læra að koma fram við aðra eins og maður vill að aðrir komi fram við sig…saman ber kenningu Kants! Hún kennir okkur einnig að það að breyta vel gagnvart náunganum gerir okkur gott, samanber “góðum vilja” (Kant), sýna öðrum kærleika. Bjóða hina kynnina samanber Sókrates “sá sem beitir aðra ranglæti er alltaf verr staddur en sá sem er beittur ranglæti”.
Ef Guð er ekki til og Biblían ekki orð drottins þá get ég ekki annað sagt en að hún er trúlega skrifuð af bestu siðfærði heimspekingum allra tíma… og því lang besta uppeldishandbók sem fólk kæmist í tæri við.
Það er alveg rétt hjá þér að þeir trúhörðustu eyðileggi trúarbrögð með blindin sinni. Þá skulum við líka hafa í huga BLINDI, það þýðir ekki að þeir hafi rétt fyrir sér. Til er fólk sem aðhyllist trú en ekki trúarbrög það elskar sinn Guð eða hefur sína barnatrú. Fólk skal ekki halda að það sé merkilegra ef það aðhyllist einhver trúarbrög því Guðinn er oftast sá sami. Í raun mætti eiginlega segja að halda mætti að við værum uppi á Viktoríu tímabilinu þar sem samkynhneigð og kynlíf var bælt eins vel og hægt var, nema nú snýst þetta ekki lengur um samkynheig og kynlíf heldur trú! Reyndar verð ég að segja að það er sama á hvað fólk trúir að þá er það ekki okkar mál, svo framarlega að það skaði ekki aðra með sinni trú (þá er ég ekki bara að tala um trúna á Guð).
Matt 7:7 Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. (Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir)
Já auðvita… það þýðir ekkert að sitja heima í volæði og væla í einhverjum aumingjaskap… ekki frekar en ef þú trúir á the secret!
Og í lokin… þá eru bara sumir sem hafa önnur áhugamál en að spila borðtennis eða fótbolta
svo það er kannski ekki hægt að tala um að það sé eitthvað lítið að gera… ég eyði bara mínum tíma í annað ☺… svo eru líka 24 tímar í sólahring og spurning um að eyða honum ekki öllum í svefn…
Kv.
Comment by Hallveig Hörn — November 10, 2008 @ 16:29
Djöfull sé ég eftir að hafa eytt tíma í að lesa þetta allt…..
Comment by Júlli — November 11, 2008 @ 1:12
Hallveig
Ég hélt því fram að jákvæður heilaþvottur væri þegar allt er talið saman, alltaf heilaþvottur, hvernig sem á það er litið. Hvernig þú ferð að því að blanda námi saman við heilaþvott, og gerir mér upp skoðanir á því öllu saman er mér dulin ráðgáta. Ætla í rauninni ekki að fara lengra með það en bara segja, Heilaþvottur, hvort heldur er til góðs eða ills, er alltaf heilaþvottur. og kannski játa því að trúarbrögð eru út um allt ergo heilaþvottur er til út um allt;)
Biblíuna les hver með sínu nefi, og hún er alls engin dásemdarsmíð að því leiti að fólk hefur í gegnum tíðina lesið það sem það vill úr henni og notað það sér til framdráttar. Oftar en ekki með skelfilegum afleiðingum fyrir annað fólk. Það er vissulega ekki hægt að neita því að það er margt gott sem í skruddunni stendur, en það er líka margt sem þar stendur sem í túlkum sumra virkar se mstökkpallur á hörmungar.
Í góðu uppeldisriti stendur
“Konur, verið undirgefnar eiginmönnum ykkar eins og sómir þeim er Drottni heyra til.”
Ég breytti nú ást í hatur í tilvitnun til þín því það er alltaf sjálfsagður hlutur í svona umræðum nánast að guð elski okkur, en það er ekki sjálfsagt að hann hati okkur. Hvar er munurinn. Er ástin komin að því að hann bjó til himin og jörð og mennina með í sinni eigin mynd. Ákvað í bríaríi að það væri upplagt að gefa okkur frjálsan vilja, og bjó til stað eilífs elds og hörmunga sem við færum á ef við þóknuðumst ekki vilja HANS? Er það ótakmörkuð ást ? ekki smá hatur þar á ferð?
Annars vildi meina þegar ég sagði að ég hefði lítið að gera, að það væri lítið að gera í vinnunni hjá mér og því væri ég að rökræða um hluti sem engan botn er hægt að fá í. Ég vinn á fjöllum aldrei minna en 12 tíma vinnudag 10 daga í einu, og það er oftast þannig háttað að mér gefst ekki tími til langlokuskrifa á netinu.Mín persónulega trú á Guði er ekki hægt að rökræða í endanlega niðurstöðu, meðan það eru fleiri á rökstólunum nema ég sjálfur.
Lifðu heil Kæra Hallveig
Ég
Comment by steinar — November 11, 2008 @ 19:08
Sæl Hallveig, hafði mig loksins í að fara í gegnum þetta textaflóð allt til að svara þér. Biðst afsökunar á því hvað það tók langan tíma. Allavega voru hjá þér nokkrar setninga sem stoppuðu mig aðeins og kölluðu á andsvör auk þess sem ég hennti pínu samantekt neðst.
“Allir/flestir vita það að það er ekki nauðsynlegt að fara í kirkju til þess að lofa Guð. Hann elskar okkur ekkert minna fyrir vikið!”
Hér staðhæfiru að guð sé til. Ertu með einhverja meiri sönnun á tilvist hans en einhver annar? Væri nær að tala um að þó að ekkert vísindalegt bendi til tilveru guðs, þá sé ekki hægt að afsanna tilvist hans (svipað og að ég get ekki afsannað tilvist spagettískrímslisins).
“Einnig hafa kannanir sýnt fram á að fólk sem trúir á Guð, sé líklegra til að sinna samfélagshjálp af einhverri tegund, frekar en þeir sem trúa ekki (hér erum við að tala um almenna borgara sem eru ekki búnir að læra siðfræði!).”
Endilega benntu mér á rannsóknir sem staðfesta þetta. Finnst einmitt að ég hafi séð niðurstöður sem benda til þess að enginn marktækur munur sé á þessu milli trúaðra eða ótrúaðra.
“Því langar mig að benda þér á elsku vinur að ef að þú hefur eytt 6500 stundum af fyrstu 25 árum æfi þinnar(sem væir skrítið, því þá erum við farin að tala um að sáðfrumur og egg geti stundað kirkju.) í að sækja kirkju (nema að þú hafir hreinlega verið að skúra í henni), að þá hafir þú trúlega eytt öðrum eins tíma í að gera góðverk eða aðra hluti sem snerta samfélagið svo sannarlega á ekki verri hátt en sá sem varði tíma sínum í “opinbera” samfélagshjálp.”
Á hverju byggiru það að þeir sem sæki kirkju í x-klst eyði sömu x-klst í samfélagshjálp? Þarna ertu væntanlega að byggja á þessum fyrrnefndu rannsóknum sem þú vitnaðir í en ég stórlega dreg í efa. Aftur, endilega bentu á rannsóknir sem sýna fram á þetta.
“Ef Guð er ekki til og Biblían ekki orð drottins þá get ég ekki annað sagt en að hún er trúlega skrifuð af bestu siðfærði heimspekingum allra tíma… og því lang besta uppeldishandbók sem fólk kæmist í tæri við.”
Bíddu nú við… mæli með að þú kíkir t.d. á þetta:
http://www.vantru.is/2008/08/01/10.00/
http://www.vantru.is/2008/02/21/13.00/
http://www.vantru.is/2007/10/31/08.00/
http://www.vantru.is/2006/11/26/07.30/
http://www.vantru.is/2003/10/21/00.16/
http://www.vantru.is/2003/09/29/13.05/
Veit að þetta er allt af vantrúarvefnum sem sumir telja full hlutdrægan, en ég gæti svo sem einnig flett þessu upp á öðrum vefmiðlum (eða bara blaðað í gegnum biblíuna sjálfa og vísað í ákv. Vers þar, en þetta má duga í bili. Í versta falli geturu leitt þig áfram út frá skrifum þeirra, þeir eru oftast duglegir í að heimilda.
“Reyndar verð ég að segja að það er sama á hvað fólk trúir að þá er það ekki okkar mál, svo framarlega að það skaði ekki aðra með sinni trú (þá er ég ekki bara að tala um trúna á Guð).”
Mjög svo sammála þér þarna, en málið er að það eru einmitt kristnir söfnuðir þessa lands með þjóðkirkjuna (ríkiskirkjuna) í farabroddi sem hafa verið hvað duglegust að troða sér og sínum skoðunum fram. Það þarf ekki mikið meira en að benda á trúarinnrætingu sem á sér stað á opinberum leikskólum, mikinn áherslumun á kristinfræðslu og trúarbragðarfræði tímum í grunnskóla (þar sem töluverðir fordómar eru oft gegn öðrum trúarbrögðum í námsefni), allskonar kirkjuathafnir fyrir opinbera starfsmenn, kirkjuheimsóknir grunnskóla, skólapresta o.s.frv. Mottó kirkjunnar ýtir svo bara enn meira undir þetta
“ekki frekar en ef þú trúir á the secret!”
Hér hlýnaði mér aðeins um hjartaræturnar
En já, svona í lokin þá langar mig að zoom-era aðeins það sem ég meinti með því að setja inn þessa tilvitnun. Fyrir mér merkir hún einmitt það að það að tíminn (og reyndar peningar ef við viljum fara út í það) sem fari í kirkjuheimsóknir sé mun betur eytt í eitthvað sem virkilega skiptir máli. Ég var með þessu ekki að setja út á að fólk hafi sína trú eða á hvaða guð það trúir. Ef ég man rétt segir biblían líka að fólk eigi ekki að tilbiðja guð í bænarhúsum, heldur í einrúmi með sjálfu sér án þess að upphefja trúna sem slíka í eitthvað veraldlegt (sem er einmitt það sem trúarbrögðin hafa búið til í kringum trúnna).
Þannig að ef ég skil rétt, þá erum við nokkuð sammála um að tíminn sem fer í kirkjuheimsóknir og slíkt sé ekki of vel nýttur, meðan skoðun okkar á trúnni sem slíkri er mjög ólík, en það var aldrei meiningin með þessari færslu að fara útí
Comment by steini — November 13, 2008 @ 0:58