|
Posted on 11.13.08 by steini @ 22:18
á tímum sem þessum er Blóðbankinn einstaklega þægilegur staður til að fara á. Þægilegt andrúmsloft, vingjarnlegt starfsfólk og “kúnnahópur” sem er kominn þarna af eigin vilja en ekki til að tuða eða vera með vesen. Held einmitt að þetta síðarnefnda geri Blóðbankann að frábærum stað til að vinna á. Jújú, auðvitað fær maður mis súrt fólk þarna inn, en það eru allir komnir þangað á sínum forsendum, afþví að þeir vilja hjálpa, en ekki afþví að þeir voru neyddir til þess eða álíka. Þetta gerir það að verkum að Blóðbankinn er hálfgerður griðarstaður fyrir fólk sem lendir nokkrum sinnum á dag kúnnum sem ekki eru sáttir eða koma til þín vegna þess að þeir verða að gera það, ekki afþví að þá langar að gera það. Tók annars líka fyrstu æfinguna í sporthúsinu í 2 ár eða svo í dag. Það er einnig viss hugarró að vera bara í eigin heimi þar með ipod og pæla ekkert í fólkinu kringum mann. Skráð sem: Dagleg skrif Svör:
|

Ég er nú ekki par sáttur við nýja blóðbankann. Enginn kósíheit. Bara spítali og eitthvað iðnaðar mötuneyti.
Comment by Róbert — November 14, 2008 @ 9:58
eg vill einnig benda á það að þú hefðir frekar átt að fá þér kort í ásgarði og koma þangað að rífa í lóð með heimsliðinu!
Comment by Rúrik — November 14, 2008 @ 17:42