|
Posted on 11.13.08 by steini @ 1:48
Merkilegt hvernig sumir fréttamenn/dálkahöfundar eigna sér efni sem aðrir hafa nýverið skrifað um. Á bls 18 í fréttablaðinu á þriðjudaginn (pdf - html)er t.d. Freyr Gígja Gunnarsson með stuttan pistil um Tékkóslóvakíu 1989 og flauelsbyltinguna og fann út úr því nýtt orð sem passar við íslenskar aðstæður “Flísbylting”. Eða var þetta kanski eitthvað sem hann tók upp hér. Fólk á endilega að skiptast á skoðunum, dreifa skoðunum og hugmyndum sem það telur vera góða eða áhugaverða, en það ætti að vera almenn vinnuregla að geta heimilda. Þetta mætu margir fréttamett taka til sín — Á sunnudaginn hélt Heimsliðið í víking til Selfoss til að etja kappi við Selfyssinga í handknattleik. Eftir mikla baráttu og framúrskarandi karakter stóðu heimsliðsmenn uppi sem sigurvegarar og lönduðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu (eftir töp gegn Víking og Júmboys). Lokatölur voru 27-28 og hálfleikstölur 17-13 (fyrir Selfoss). Þeir austanmenn náðu hæst 6 marka forystu í stöðunni 24-18, en þá fór maskínan í gang, Ástþór átti t.d. 3 heimsklassamörk - slánna inn allt saman og Heimsliðið kláraði síðustu 10-12 min leiksins með 10 mörkum gegn 3 hjá Selfoss. Í kvöld var svo annar leikur gegn Aftureldingu B. Í framhaldi af góðum sigri á sunnudaginn voru allir tilbúnir í annan slíkan og því var byrjað af krafti gegn Mosfellingum og strax var komist í um 5 marka forystu sem hélst út fyrri hálfleik (16-11). Í seinni hálfleik misstum við reyndar aðeins einbeitingu og hleytum Aftureldingu í jafna stöðu (22-22) þegar um 15 min voru eftir. Þá var tekið stutt leikhlé, mannskapurinn róaður og strengir stilltir og uppfrá því var leiðin bara uppá við. 10 mörk gegn 2 hjá Mosfellingum og lokaniðurstöður 32-24. Heimsliðið er því komið með 4 stig af 8 mögulegum og ætti að vera í kringum 5-6 sætið þegar umferðinni verður lokið. — Segja eitthvað um hrunið? Nei, pass. — Á föstudaginn ákváðum ég, Árný, Stjáni og Sandra að skreppa uppá Bifröst og kíkja á hátíðarkvöldverð HHS deildarinnar. Halló halló, djöfull var það gaman. Nostalgía, góður matur og mikið skrall. Mjög sáttur með ferðina og þynnkulaugardag í sveitinni. Held að ég muni áfram kalla Bifröst “heima” í smá tíma, frábær staður. — Spurning hvað eigi svo að gera þessa helgi. Grill hjá Stjána, afslöppun, ræktin og heilsusamlegt húllumhæ (og reyna að vinna að því að taka við af Krumma sem aðallínumaður liðsins), bíó (Bond), djamm eða eitthvað allt annað? Held ég reyni allavega að troða Bond og ræktinni þarna einhverstaðar. — Vá hvað þetta hefði verið mikið stærri frétt ef þetta hefði gerst fyrir 2 mán síðan (þ.e. fréttin komið fram) — Það má margt gott segja um þær hugmyndir að taka upp einhliða aðra mynt en krónu hérlendis, en hefur fólk ekkert velt því fyrir sér að með tilheyrandi hækkunar lána vegna verðbólgunnar undanfarið, þá mun slæm gengisstaða gera það að verkum að hækkunin á lánum verður töluvert meiri ef farið verður út í þessar aðgerðir. Djöfullsins, gat ekki setið á mér að nefna eitthvað tengt hruninu — Langar í lokin að benda á nokkra áhugaverða tengla sem maður hefur ratað á með netvafri síðustu daga: Africa, skattar í us, mcdonalds, god - a god?. og nokkur fyndin: rational?, skrípó, kveðjur frá nördum, wtf?, us forsetar, it’s the hat, indy, fail, kandídatar, svekkjandi að sjá þetta svona Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og grín og íþróttir Svör:
|

Gaman að skoða linkana. Vá hvað ég sakna stumble upon hér í netleysinu:D
Comment by Halldór Berg — November 13, 2008 @ 7:35