full-control zone í N-Kóreu
Hvet sem flesta til að lesa eina eða fleiri af eftir farandi greinum sem segja frá raunum einstaklings sem flúði úr vinnubúðum í N-Kóreu og komst yfir til Kína þaðan sem komst svo til S-Kóreu og hefur náð að segja frá reynslu sinni. Hann fæddist sem sagt í vinnubúðum þar sem móðir hans og faðir voru pólitískir fangar. Af lýsingu að dæma hljómar þetta eins og útgáfa af útrýmingarbúðum þriðja ríkisins þar sem gasklefunum er sleppt.
Manni svíður alveg að lesa þessar lýsingar þar sem öll mannréttindi, virðing og traust er brotið.
A Glimpse of Horror
Child born in a secret labour camp tells of torture and beatings (time online)
Born and Raised in a North Korean Prison Camp (abc news)
North Korean defector speaks out
Born and raised in a North Korean gulag
North Korean Gulag Escapee Speaks Out
Vesturveldin töluðu um að láta aldrei neitt í líkingu við það sem gert var við gyðinga, sígauna, fatlaða o.fl. í þriðja ríkinu endurtaka sig. Það gerist samt ennþá og enginn veit af neinu.

Suður-Kóreumenn eru áróðursmeistarar eins og forustumenn þriðja ríkisins.
Þannig að S-Kóreumenn eru að ljúga þessu til um N-Kóreumenn til að gera “mannorð” (hefur þjóð mannorð?) þeirra verra en það er nú þegar á alþjóðavettvangi? Held að stjórnvöld í N-Kóreu hafi verið nógu dugleg sjálf að skíta á sig án þess að nágrannarnir í suðri hafi þurft að hjálpa mikið til. Þú kanski útskýrir samt þessa afstöðu þína aðeins betur svo maður skilji hvert þú ert að fara.