áhugavert myndasafn og tónleikar.
Þetta samstarfsverkefni LIFE og Google er algjör snilld. Fullt af sögufrægum myndum frá 1750. Þessi síða er t.d. með smá samantekt af merkilegum myndum sem eru þarna inni.
—
Fór annars á FM Belfast og Ratatat tónleikana í gær. 2klst og 20 min eftir auglýstan byrjunartíma var hvorug hljómsveitin sýnileg til að vera að fara á svið og einhver dj sem var ekki auglýstur og spilaði afskaplega leiðigjarna mússík var ennþá að hamast á spilurunum. Við Maggi ákváðum þá að fara, enda nenntum við ekki að bíða fram á morgun eftir sveit sem maður hafði borgað sig til að sjá. Þetta var því skítleg framkoma við áhorfendur.
Fór aftur á móti líka á tónleika Ólafs Arnalds í Fríkirkjunni á fimmtudaginn með Guðgeiri og Rúrik. Það var massa konsert. Ólöf Arnalds, frænka Ólafs, var frábær sem upphitun og mjög skemmtileg á sinn kærulausa hátt með “opnu æfinguna sína” meðan tónlist Ólafs fékk mann til að svífa um afslappaður í draumaheimi tónlistarinnar og njóta hverrar sekúndu. Hreinlega frábærir tónleikar og ég mæli með að fólk kynni sér Ólaf betur.
