yfirlit dagsins, héðan og þaðan
Áhugaverður dagur, Elín bankastjóri Landsbankans segir frá því að hún hafi alltaf vitað um þátt Tryggva í málum Baugs og Landsbankans, seinna um daginn er svo send yfirlýsing frá bankanum um að bankastjórastaðan verði auglýst laus til umsóknar. Það er þó ekki víst að það hafi tengst téðu atviki varðandi Tryggva, heldur voru allar ríkisbankastöðurnar auglýstar til umsóknar nokkrum mínútum seinna. Þetta eru að vissu leiti vatnaskil í post-hrun sögunni, en Elín ætlar ekki að sækja um stöðuna að nýju, Finnur hjá Kaupþingi ætlar að gera það og Birna er ekki búin að ákveða sig enn.
Geiri vill meina, eins og Wade gamli, að það versta eigi enn eftir að koma og frekari niðursveiflna sé að vænta.
Í öðrum fréttum er það helst að frétta að Ingibjörg treystir ekki vinum sínum og gerir stór PR mistök. Enn er svo verið að berjast í Gaza, en nýjar fréttir benda til að viðbrögð Ísraelsmanna og framganga þeirra við Palestínumenn sé ekki bara grimmdarleg og ofsafengin, því þeir hafi víst átt frumkvæðið að uppþotunum og í ofan á lagið ekki viljað fallast á vopnahlé sem Hamas buðu fram. Ólafur nokkur Hauksson var svo ráðinn sérstakur saksóknari sem á að “…rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og kjölfar bankahrunsins, hvort sem það tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga, og eftir atvikum fylgja rannsókn eftir með saksókn.”
Að auki gæti ESB verið skaðabótaskylt gagnvart Íslenska ríkinu útaf einhverjum lagabókstaf um innistæðuábyrgð og annað gúmmelaði, rosalega áhugavert og frískandi.
DV er einnig með frétt um meintar lygar og illt eðli Gunnars bæjarstjóra Kópavogs varðandi óeðlilegt og leynilegt eignarhald yfir fyrirtæki sem vann mikið fyrir bæinn. Kæmi kanski ekkert rosalega á óvart miðað við umræður manna á milli síðustu árin, en engu að síður slæmt ef satt reynist.
Já, það liggur næstum við að maður þurfi að sleppa því að mæta í vinnu til að hafa tíma í að fylgjast með fréttum! Áður fyrr hefðu einnig eitt til tvö svona atriði þótt nægjanleg til að gera góða fréttadagskrá út daginn, en ekki lengur. Flóðið er reyndar orðið svo mikið að maður er orðinn ónæmur fyrir stórfréttum sem munu væntanlega snerta líf manns töluvert næstu ár og áratugi.
