“sorpblaðamennska”

Rakst við lestur minn á Morgunblaðinu í dag á merkilega grein. Kanski ekki merkilegt fyrir efnið sem verið er að tala um heldur loka setninguna sem fær að fylgja með. Þetta er grein Arnars Eggerts á afþreyingarsíðunum þar sem hann fær Kjartan í Sigur rós til að segja skoðun sína á gengisvísitölugrafinu sem birtist fyrir nokkrum dögum síðan um sveitina. Eftir að hafa farið í gegnum grafið með honum lætur Eggert þessa beinu tilvitnun í Kjartan fylgja með:

»Æi…þetta er nú meiri vitleysan, svona blaðamennska. Ég hef svo litla þolinmæði fyrir svona æfingum. Að setja feril fólks upp í einhver gröf. Þetta er sorpblaðamennska á hæsta stigi (hlær). En svona er þetta. Tímarnir breytast…og Mogginn með.«

Það er erfitt að setja kaldhæðni eða “mómentið” inní skrifaðan texta og því getur þetta alveg táknað algjöra kaldhæðni og að þeir séu bara að grínast með þetta, eða þá að Kjartan hlæi lítilega að fyrri setningunni, en verði svo alvarlegur og segi óbeint að mogginn sé að verða að sorpblaði. En allavega finnst mér merkilegt að blaðamenn séu byrjaðir að skjóta inní greinar í mogganum tvíræðnum málsgreinum sem geta útlags sem níður á blaðið :)

Leave a comment

Your comment