mixset og bílafail
Í gær þegar ég ætlaði á æfingu vildi bíllinn ekki starta sér, bara eins og rafgeymirinn væri allt í einu orðinn alveg tómur. Það kom ekki einu sinni smá hljóð um að hann væri að reyna að starta sér. Þetta var mjög furðulegt þar sem ég hafði verið að keyra bílinn 2 klst áður og líkurnar á því að geymirinn væri orðinn alveg tómur á þeim tíma fannst mér ekki miklar. Þar sem ég var að drífa mig fékk ég að skreppa á bílnum hennar mömmu. Þegar ég kom svo heim var klukkan orðin töluvert margt, svo ég bað bara um að fá far með pabba daginn eftir. Strax og pabbi vakti mig sá ég auðvitað eftir því, enda vill pabbi vera mættur 1klst fyrr í vinnuna en ég. Ég var því hálf þreyttur og tussulegur allan daginn í vinnunni. Svo þegar heim var komið og við ætluðum að kíkja á bílinn stekkur pabbi út og tékkar rétt svo á bílnum og kemur aftur inn með þessum orðum “Þorsteinn, þú veist að þú getur ekki startað bílnum þegar hann er ekki í park!” …. fail
—
Þórður ákvað fyrir nokkrum mánuðum að setja inn svona mix lista þar sem hann setti saman lista með nokkrum lögum sem hann var að hlusta mikið á þann tímann. Ég ákvað einnig að framkvæma svipaðan gjörning og kynni hér með tvö slík mixset. Fyrra settið myndi örugglega flokkast sem aðeins rokkaðra meðan hitt er með meiri elektronik og öðru, en allur gangur er á því. Annars er þetta bara ágæt samantekt á því helsta sem ég hef verið að hlusta á síðustu mánuðina.
Lögin eru saman í rar fælum, en allir sjóaðir tölvunotendur ættu að kunna að redda sér með það og ná að hlusta á lögin.
—
Tókum leik við utandeildarlið FH í kvöld. Unnum leikinn 32-26 þrátt fyrir slappan dag. Maður mun á næstu dögum reyna að halda áfram að komast í form til að geta spilað meira með, það er allavega markmiðið.
—
Skemmtilegur pistill þar sem forsetatíð Al Gores er gerð upp. Auðvitað smá “þá hefði allt verið betra” fílingur í þessu, en mér fannst þetta engu að síður smá kómískt, þó þetta hefði örugglega aldrei endað jafn vel og pistlahöfundur spáir. En maður veit aldrei.
—
Mig langar í ferðalag! Bæði innanlands og erlendis. Einhver game í að fara með mér í ferð á Hornstrandir í sumar, þá væntanlega með Ferðafélagi Íslands?

Ég skal!