undanúrslitin
Heimsliðið er komið í undanúrslit bikarkeppni utandeildarinnar eftir frækilegan sigur gegn Kíklópunum að Varmá í gær. Lokatölur voru 28-29 fyrir Heimsliðið og varði Fúsi glæsilega síðasta skot leiksins og kom því í veg fyrir að um framlengingu yrði að ræða. Klárlega bæting á hópnum frá síðasta leik, sem klárlega var botninn, en við eigum enn mikið inni og það verður gaman að sjá næstu leiki.
Óli Þór fékk heldur óskemmtilega útreið í leiknum, en eftir að honum lenti saman við einn leikmann Kíklópanna í hraðaupphlaupi vankaðist hann töluvert og fór alveg í ruglið. Vissi varla hvar hann var, hvernig hann hefði komist að Varmá eða hvað Fúsi héti svo eitthvað sé nefnt. Endaði líka uppá sjúkrahúsi (sem hann rétt man eftir) og var úrskurðaður þar með nettan heilahristinn. Hann man svo ekkert eftir leiknum sjálfum, sem er frekar leiðinlegt þar sem þetta var hinn skemmtilegast leikur

Til hamingju
Lætur mig vita þegar næsti leikur er