góð byrjun…
Það verður auðvitað að flokkast sem lélegt pr hjá nýju ríkisstjórninni að boða til blaðamannafundar kl fjögur í dag á sama tíma og úrslitaleikur hm í handbolta var að hefjast. Íslendingar eru handboltaunnendur og þeir vilja sjá sinn handbolta á stórmótum (jafnvel þótt íslenska landsliðið sé ekki að spila) og þá á bara að færa fréttamannafundi aðeins til. Hvernig hefði verið ef þau hefðu bara byrjað aðeins fyrr eða strax eftir leik! Annars var merkilega mikið sem Jóhanna sagði sem maður er mjög sáttur við. Á reyndar eftir að kíkja betur á þetta, en það hljómaði vel svona í fyrstu atrennu. Steingrímur virtist aftur á móti vera hálf uppblásinn þarna á þessum fundi, loksins kominn í stjórn og var duglegur að segja að verkin munu tala eins og alvöru stjórnmálamönnum er einum lagið. Það verður svo að koma og sjá hvort það gangi upp hjá honum eða ekki.
