Ekkert breytist, eða hvað?
Er ég ekki að skilja þessa frétt rétt á þann veg að starfsmenn Straums, sem er almenningshlutfélag, hafi með þessari ákvörðun fengið rétt til þess að kaupa hlutabréf fyrir 650 milljónir (nafnverð) í félaginu einhverntíman á næstu 5 árunum á mjög lágu gengi félagsins rétt eftir hrun markaða. Þ.e. ef allt verður á uppleið eftir 3-5 ár og bréfin hækkað, í segjum 10 eða 20, þá geta starfsmennirnir ákveðið að nýta sér kaupréttinn, keypt fyrir allan peninginn og selt strax (eða fljótlega) og margfaldað hagnaðinn á mjög skömmum tíma.
Hélt að svona hugmyndir um risa kaupréttarsamninga á gengi langt aftur í tímann væru alveg að hverfa eftir hrunið, en svo virðist ekki vera…
