áframhald neysluhyggjunnar

Fór í Kringluna áðan til að versla mér nokkra hluti. Þar á meðal voru tvenn skópör. Þar með ætti skóinnkaupum næstu tveggja ára að vera lokið (ef frá eru talin hugsanleg kaup á útihlaupaskóm í sumar).
Merkilegt annars hvað svona verslunarmiðstöðvar virðast höfða lítið til karlmanna sem eru bara að leita sér að frekar plain fötum. Vantaði t.d. svona bómullar-tau föt einhverskonar sem þægilegt væri að vera í, en það var enginn búð með svipaða vöru, nema þá útilíf.

Comments (2)

RúrikFebruary 22nd, 2009 at 2:39

heyrðu, steini, til að fá þér þægileg bómullarföt þá ferðu ekki í kringluna… þú ferð í Exodus á hverfisgötunni.

kv, rurfjon

Sigga LóaFebruary 28th, 2009 at 22:12

Ef GAP er á Íslandi..þá eru þeir alltaf með svakalega mjúk og þægileg bómullarföt…

Leave a comment

Your comment