Pínu fiðringur
Í dag keypti ég 3x lonely planet bækur. Middle East, Syria & Lebanon og Jordan. Lagðist strax í lestur og er búinn með inngangs- og almennt kaflann í fyrstnefndu bókinni. Á morgun ætla ég að fara að endurnýja passann og um mánaðarmótin er stefnt á að fjárfesta í flugmiða. Eftir það verða sprautumál og vegabréfsáritanir skoðaðar.

Má ég koma með tillögu?
Það er til Lonely Planet bók sem heitir From Istanbul to Katmandu.
Lest yfir Tyrkland, Íran, Pakistan, Indlands og loks alla leið til Nepals.
Ódýrt dæmi miðað við hvað þetta er mikið ævintýri.
Farðu þetta og síðan geturðu gefið mér tips þegar ég ætla að fara að minni skólagöngu lokinni.
jamm, þetta lítur líka spennandi út. erum reyndar bræðurnir búnir að ákveða hina ferðina (tyrkland-syria-jordania(hugsanleg stopp í líbanon og ísrael)-egyptaland í þetta skiptið og þar er einnig ótrúlega mikið af stöðum sem sem mann langar að kíkja á. Aldrei að vita nema maður kíki á hitt við tækifæri