HEIMSLIÐIÐ Í HÖLLINA !!!

Í kvöld vann Heimsliðið Selfoss með 35 mörkum gegn 29 (í mjög spennandi leik, það var ekki fyrr en á síðustu 10 min sem fór að draga sundur með liðunum). Það þýðir að Heimsliðið er komið í úrslitaleik bikarkeppni utandeildarinnar sem fer fram á föstudaginn í Laugardalshöll kl 20:30. Þangað verða auðvitað allir að mæta og kvetja liðið til sigurs.

Tvö ný lög með snillingnum Zachary Francis Condon í hljómsveitinni Beirut af EP plötunni March of the Zapotec/Holland:
Beirut - The Shrew
Beirut - No Dice

Gaurinn er ekki nema 23 ára og hefur nú þegar gefið út snilldarverkin Gulag Orkestar og The Flying Club Cup. Og núna þessa diska. Vestrænni indie og balkneskri þjóðlagatónlist er blandað saman í mörgum af hans verkum og útkoman er líka svona svaðalega góð.

Comments (3)

LindaFebruary 25th, 2009 at 9:48

Til hamingju með sigurinn, ég reyni að koma á föstudaginn og horfa á ykkur :) Einhver sem er geim með mér??

MaggiFebruary 25th, 2009 at 17:30

Ég læt mig ekki vanta í Höllina.

…og Beirut diskurinn er æðislegur. Frábært að læra við þessa tónlist, nota hana sem dinner músik o.s.frv.

steinarmarFebruary 25th, 2009 at 18:41

ég lét mig nú hafa það að fara á selfoss til að sjá burst burstanna. kem í höllina

Leave a comment

Your comment