að leikslokum

Í gær spiluðum við í Heimsliðinu úrslitaleikinn í utandeildarbikarnum við Júmboys. Mættum grimmir til leiks og vorum með jafntefli við þá í hálfleik. Náðum svo ekki alveg að fylgja því eftir jafn vel í seinni hálfleik og misstum þá óþarflega langt fram úr okkur. Þetta endaði því í 4 marka sigri Júmboys, 26-22 í góðum og spennandi leik. Það var einnig gaman að fá að spila með alvöru dómara einu sinni í utandeildinni, þó þeir hefðu nú mátt vera réttilega duglegri á tvær mínúturnar á Júmboys. Engu að síður, flottur leikur hjá Heimsliðinu á okkar fyrsta ári á móti liði sem er hokið af reynslu. Líka gaman að fá að spila á dúknum í höllinni fyrir framan um 250 manns og góðan stuðning.
Nú er svo bara að klára deildina með trukki, stefna þar á 3. sætið og fara svo grimmir og vel stefndir í deildarbikarinn.
Þakka öllum sem komu á leikinn kærlega fyrir stuðninginn.

p.s. hendi svo vonandi fljótlega inn myndum frá Steinari ef hann veitir leyfi til.

Comments (1)

RúrikMarch 3rd, 2009 at 20:56

Djöfulli er þetta flottar myndir hjá Steinari. Hann á hrós skilið fyrir þetta kallinn.

kv, Rúrik.

Leave a comment

Your comment