Gamanmál Ólafs Sveins
Mér er alveg sama hvaða flokk þessi maður tilheyrir, ég er ekki enn búinn að lesa stefnumál hans, en það kemur ekki í veg fyrir að ég er búinn að gerast stuðningsmaður hans á facebook. Hversu ótrúlega mikill snillingur þarftu að vera til þess að setja heilan haug af gamanmáli (fimm aura bröndurum) inná kosningabaráttu síðuna þína. Btw, hann er að bjóða sig fram í 1-2. sæti í N-V kjördæmi, en ekki eitthvað 4-6 eða álíka. Og þvílíkur meistari sem maðurinn er. Mæli með að fólk renni yfir þetta gamanmál hans sem er einstaklega fyndið í lélegheit sinni.
Hvað gætirðu kallað léttklæddan Víkinga?
” Bolvíkingur. ”Hvernig te drakk Bruce Lee alltaf?
” Karate. ”Hvernig dó Bruce Lee?
” Hann Tækvondó. ”Hvernig dó Tóti tölvu karl?
” Hann Nintendó. ”Hvernig mörk nota fótboltamenn í Arabíu fyrir boltaleiki?
” Eyðimörk. ”Hvað geturðu kallað rafvirkja sem er týndur?
” Raflost. ”
Kallið mig shallow á húmor, en þetta finnst mér óborganlega fyndið í einfaldleika sínum.
Ég vil fá Ólaf Svein á þing, sé jafnvel fyrir mér að hann komi með eina svona skrítlu eftir hverja ræðu sem hann heldur. Og svo í lok fréttatíma á rúv kæmi (í stað einhverrar náttúrumyndar): “og í lok fréttatímans ætlum við að kíkja niður á Alþingi og hlusta á Ólaf Svein fara með gamanmál”

hahaha þetta er bara fyndið
Allir sem bjóða sig fram til verka í stjórnmálum detta inn í eitthvað hlutverk sem kalla má “Formlegur Pólitískur Þurrkeiki” þar sem skiptir mestu að segja sem minnst án þess að almenningur fatti það.
Þessi skrítlumaður hugsar greinilega ekki mikið á það og hann færi prik fyrir það.