Stjórnarskrárbreyting
Á Alþingi er nú til umræðu frumvarp um stjórnarskrárbreytingu. Fyrstu þrjár greinarnar finnst mér alveg fínar*, en svo kemur að þeirri fjórðu, stjórnlagaþingsgreininni. Ég er hreint út sagt ekki alveg sáttur með hana. Meðal annars má finna eftirfarandi klausu þar:
Stjórnlagaþing skal skipað 41 þjóðkjörnum fulltrúa og jafnmörgum til vara. Um kjörgengi og kosningu fulltrúa á þingið og skipulag þingsins skal mælt fyrir í sérstökum lögum sem sett verði að loknum alþingiskosningum vorið 2009. Stjórnlagaþing setur sér sjálft starfsreglur.
Mér skilst því að ef ég færi að kjósa um hvort ég vildi þessa stjórnarskrábreytingu eða ekki, þá fengi ég ekkert að vita um það fyrir fram hvernig fólk yrði valið á þingið, hverjir myndu velja og eftir hvaða reglum þingið starfaði. Þetta finnst mér frekar lélegt. Meina, á Alþingi að velja þessa 41, eða á Alþingi að nefna allskonar þrýstihópa og hagsmunahópa sem velja svo 1 mann hver, eða verður þetta algjörlega random úr þjóðskrá?
Þetta væru atriði sem mig myndi langa að vita áður en ég kýs um það hvernig þetta allt saman fer. Þar að auki finnst mér merkilegt að ekki sé leitað að samþykki og samstarfi allra flokka varðandi þetta frumvarp. Þó það virðist vera í tísku að úthúða Sjálfstæðisflokkinn, þá má ekki gleyma að hann hefur töluvert fylgi á bakvið sig og jafnvel þótt hann muni væntanlega dala í kosningum, þá mun hann hafa stórt hlutfall þjóðarinnar á bakvið sig. Það hefðu nú orðið uppi fótur og fit ef einhver annar flokkur hefði verið skilinn eftir í umræðum um breytingu á grunn lagastoð Íslenska ríkisins.
*Það hefði auðvitað bara mátt afmá 62. grein stjórnarskrárinnar með húð og hári. En lífið verður víst ekki fullkomið alveg strax.

Er ekki einsýnt af orðalaginu að þar sem fulltrúarnir 41 verða “þjóðkjörnir” þýði það að þeir séu kosnir í almennum kosningum.
Fulltrúar sem eru valdir af Alþingi teljast ekki þjóðkjörnir, og raunar ekki heldur fulltrúar sem eru valdir af handahófi. Jafnvel þótt báðar leiðirnar kunna að teljast lýðræðislegar.
heyrðu, vá, ég hef einhvernvegin ALGJÖRLEGA náð að horfa fram hjá þessu orði “þjóðkjörnir” við skoðunamyndun mína á þessu fyrirkomulagi. Það breytir heldur betur þessari gagnrýni minni sem ég hér með tek til baka (allavega í bili þangað til ég hef skoðað þetta betur).