Góð helgi að baki, en leiðinleg veikindi

Rosalega er þetta vel gert hjá Icebank. Segjast ekki vilja krónu úr ríkissjóð, já, þ.e. nema þeir vilja fá töluverða niðurfellingu skulda. Veit ekki alveg, en frá mínum bæjardyrum séð, þá er þetta allt það sama, styrking frá ríkinu, hvaða nafni sem fólk kallar það.

Þessi mynd fylgdi með frétt mbl.is um Sparisjóðina og fjölda þeirra. Ætli hún sé ekki fengin frá Sparisjóðunum, gæti trúað því. En takið eftir hvað margir bæir eru ranglega staðsettir á þessu korti. Höfuðborgarsvæðið er staðsett í Hvalfirði, Selfoss og Hveragerði eru langt austan við núverandi stað, Sauðárkrókur er miðja leið út á skaga og Borgarnes er einhverstaðar í Dölunum eða álíka.
Hægt er að nota þetta kort til viðmiðunar

Annars er það að frétta af manni að ég kíkti í leikhús á föstudaginn. Fór þar að sjá leikritið Rúsað með Ingvari E. og fleirum. Í stuttu máli sagt olli verkið vonbrigðum. Fannst það bara hálf tilgangslaust og með lítinn boðskap. Tilraunir til að shocka mann tókust ekki og það var oft á tíðum hálf asnalegt að sitja undir þessu verki.
Á laugardaginn var svo kíkt í bústað til Halldóru með Magga, Lindu, Grétu, Þórði og Rósu. Mjög góð ferð og þægileg þar sem mikið var spilað, farið í pottinn og góður matur borðaður. Ég náði svo reyndar að “týna” poka sem ég var með, en í honum var t.d. trefill, bók, hvítvínsflaska, slatti af tei o.fl. en honum hef ég væntanlega hennt í ruslagáminn í Grímsnesi á leiðinni heim …
Á sunnudaginn þegar komið var heim fór svo einhver helvítis pesti að gera vart við sig og ég er búinn að vera handónýtur síðan þá. Gat áðan loksins fengið mér samloku, klárað hana og fundist hún ágæt. Geri því ráð fyrir að þessi veikindi séu að verða aflögð.

Leave a comment

Your comment