Heimsliðið í undanúrslitin !

Uppá síðkastið hefur lögreglan haft hendur í hári margra kannabis ræktenda hérlendis. Miðað við afraksturinn á þessum þremur mánuðum sem jafnast á við það sem venjulega næst á 5 árum má spurja sig hverju sæti. Er lögreglan búin að vinna lengi að þessari rannsókn og tengjast allar/flestar þessara ræktunarstöðva á einhvern hátt þannig að ein vísar á aðra etc, eða er lögreglan að beita einhverjum nýjum aðferðum? Væri t.d. gaman að vita hvort þeir hafi farið í það að nota hitamyndir, skoða rafmagnsreikninga eða notast við einhverjar aðrar mælingar.

Í kvöld var háður einn mest spennandi handboltaleikur sem sögur fara af í Garðabæ. Heimsliðið komst þar í undanúrslit deildarbikarkeppni utandeildarinnar með sigur í hörkuspennandi leik gegn Kórdrengjunum. 29-29 eftir venjulegan leiktíma þar sem allt ætlaði að sjóða uppúr undir lokin og svo 32-31 eftir framlengingu. Heimsliðið mætir því Selfoss einhverntíman í næstu viku (væntanlega). Meira info um það síðar.

Síðustu daga og vikur hefur maður orðið alveg dofinn fyrir banka og fjármálafréttum. Þær eru alveg hættar að gera mann skelkaðann. En fréttir eins og þessi hrista enn uppí manni. Skemmtilegt líka að ESB hafi verið að henda inn tilskipunum til aðildarríkja um persónunjósnir!

Þessi Finni fær svo verðlaun fyrir að vera… Finni eða eitthvað. Hann fær allavega verðlaun. Í miðri kreppu ákveður hann að fara að reisa verslunarmiðstöð og full size eftirlíkingu af titanic!

Comments (1)

JúlliMarch 29th, 2009 at 19:26

Jesús……ég trúi þessu ekki upp á ESB. Heldur fólk þarna að þeir geti komið í veg fyrir hryðjuverk með því að vakta Facebook. Æji…..

En til hamingju með úrslitaleikinn!!

Leave a comment

Your comment