Pólitískur pervertismi - landsfundir helgarinnar og auðir seðlar
Það getur verið gaman að fylgjast með pólitík og pólitískri orrahríð. Ég hef töluverðan áhuga á þessari marg umtöluðu pólitík og fylgist töluvert með fréttum af þessum vettvangi (þótt að hafi komið stund í vetur þar sem ég sagði stopp og nennti ekki meir), les pólitísk blogg og pæli í því hver tengist hverjum og hver hefur hvaða hagsmuna að gæta til að fá aðeins meiri dýpt í allt saman.
Um helgina hefði átt að vera gósentíð fyrir pólitíska perverta eins og mig, landsþing hjá bæði sjöllum og samfylkingu. En vegna náms og matarboðs hafði ég takmarkaðan tíma og fylgdist rétt svo með aðalræðum sjálfstæðismanna á netinu og smá fréttamiðlunum á netinu. Við tækifæri á ég svo eftir að renna yfir fleiri ræður og lesa samþykktirnar, en eins og er, þá birtist þessi helgi mér svona:
- Byrjar mjög rólega, cheese-ý ræður og klapp fyrir öllum (flestum) þótt ræðurnar séu hálf innihaldslausar.
- Dagur kosinn varaformaður samfylkingar. Launar VG fyrir ályktunina af þeirra landsfundi með að segja hreint út að samfylkingin ætli í evrópusambandið eftir kosningar, punktur! Og afþví að samfó og sjallar verða væntanlega ekki tilbúin að mynda nýja stjórn, þá er voða lítið eftir annað en framsókn fyrir samfylkinguna. Gott fyrsta move.
- Davíð kemur og heldur rosalega ræðu. Þvílíkur kraftur og maður kinkar kolli með öllu sem hann segir. Stoppar reyndar stundum pínu þegar hann stuðar mann sem mest, en dettur strax út úr þeim pælingum þegar hann heldur svona áfram af krafti. Svo klárast ræðan og fólk stendur upp og klappar og maður hugsar með sjálfum sér hvað þetta var magnað. En svo fara þessi stuð-atriði að poppa upp aftur og maður renndi í gegnum ræðuna aftur í huganum. Ha?
Vá, hvernig tókst honum þetta? Þvílík blekking, maður einhvernveginn trúði að hann væri að gera upp gamla tíma en hann hennti bara kúk yfir allt og alla, nema auðvitað sjálfan sig. Ekki honum að kenna eitt boffs að bankinn sem hann stjórnaði er kominn á kúpuna, betra að dissa norsarann. Og nei, ekki heldur honum að kenna þegar hann var forsætisráðherra að dreifð eignaraðild bankanna var ekki tryggð. Það er öllum hinum að kenna.
Það má kanski taka undir einn og einn punkt hjá honum, en ræðan sem slík óð bara úr einu í annað og enginn grunnur (nema hann sjálfur sem píslavottur). Svo nær hann að rakka niður eigin félaga og starf þeirra á mettíma án atrennu, setja einstaklega mikið af myndmáli í ræðuna sem fólk misskilur svo sem jesús-komplexa. Mjög góður endir hjá kallinum í pólitík…
- Vilhjálmur og fleiri verða crazy yfir þessum látum og ofsagangi í Davíð, skiljanlega, jafnvel þótt Vilhjálmur mætti alveg skammast sín.
- Fréttamiðlar setja inn mjög mismunandi fyrirsagnir af ræðunni:
Eyjan: Davíð á landsfundinum: Óttast var að Björgvin og Össur lækju út upplýsingum um stöðu bankanna
Mbl: Útrásarvíkingar með Samfylkingunni
Vísir: Líkti starfslokum sínum við krossfestingu Krists
Hvaða miðill ætli standi með hverjum? Merkilegt líka að Eyjan hafi náð að vera tæplega 40 min á undan öðrum með þessa frétt (samt var þeirra frétt ekki stutt eða óýtarleg). Aðrir fréttamiðlar höfðu verið töluvert fljótir með aðrar fréttir.
- Geir kemur svo loks daginn eftir og gagnrýnir Davíð á mjög hógværan hátt. Allir sem klöppuðu fyrir Davíð daginn áður klappa nú fyrir Geir ??? Prik fyrir Geir, en voðalega var þetta samt aumt, virðist vera duglegur að gera upp hluti svona alveg á síðustu metrunum.
- Jóhanna kosin formaður og segir í ræðunni að sjallar eigi að vera áfram í stjórnarandstöðu (betri við VG en Dagur), en kemur svo líka inná ESB og evruna og bæjar þannig VG aftur frá sér. Aftur, framsókn og samfó ef allt gengur að óskum hjá þeim?
- Bjarni kosin formaður en Kristján kemur reyndar merkilega sterkur inn og annaðhvort augljóst að deigluhópurinn er áfram fáránlega öflugur í svona herkænsku og kosningaslögum, eða þá að fólk er ekki nægjanlega sátt með að Bjarni sé að koma inn.
- Þorgerður kosin varaformaður og heldur einhverja verstu ræðu sem ég heyrt. “berjast berjast berjast áfram ísland!!!” Jesús kristur, hræðilegt, fékk sama kjánahroll og þegar maður sá “játning til hildar myndbandið”.
- Bjarni fer í pontu og heldur voða litlausa ræðu þar sem ekkert nýtt kom fram í. Ræðan mun allavega gera lítið fyrir höfuðlausan her eins og ísland er í dag, land sem vantar einhverja von. Hann talar um endurnýjun og uppgjör flokksins við fortíðina sem enginn annar flokkur myndi gera. Held að mjög fáir séu að sjá þetta uppgjör nema flokksmenn sjálfir kanski. Allavega er ég ekki að skynja að flokkurinn og hans forystumenn séu að afsaka sig eða tilbúnir að taka á sig sök (ja, nema auðvitað Geir, daginn sem hann hættir!) Ég myndi allavega ekki kjósa Bjarna ef ég mætti bara dæma út frá þessari einu ræðu. Arfaslakt alveg hreint.
Svona eftir á að hyggja þá lítur þetta í stuttu máli þannig við mér að sjálfstæðismenn á þessum fundi sínum séu hjarðdýr sem klappa við öll möguleg tækifæri og haldi kjánalegar eða slakar ræður. Ef ræðan er ekki kjánaleg við fyrstu hlustun er aftur á móti mjög líklegt að innihaldið sé mjög kjánalegt þegar maður pælir nánar í hlutunum. Samfylkingin aftur á móti kemur töluvert betur út yfir höfuð, en byrjar samt á því að ýta nærtækasta samherjanum í burtu og heldur sig við það.
Fyrir mig sem útiloka nánast að kjósa frjálslynda og vg þá er lítið um góða kosti í komandi kosningum. Ég er ekki að sjá þennan voða kraft eins og landsfundarfulltrúar beggja flokkanna töluðu svo mikið um. Landsfundir þeirra staðfestu einnig áhugaleysi mitt á að kjósa þá. Ég er heldur ekki að fíla nýja pappakassann hjá framsókn og það virðist enginn vera með neinar lausnir eða geta unnið með öðrum flokkum að farsælli lendingu eftir kosningar. Merkilegt að á umbrotatímum eins og þessum sé auður seðill það besta sem maður sér í stöðunni!
—
Versta tímasetning helgarinnar er aftur á móti klárlega grein þessa gaurs. Mun örugglega alveg týnast og gleymast vegna pólitíkur helgarinnar.
Pólitísk kjánalegheit helgarinnar sem ekki tengjast samfó eða sjöllum er svo þessi frétt (reyndar spurning hversu stórvægilegt þetta er, en kjánaleg mistök samt sem áður)
