Gulli sér bara það sem hann vill sjá
Guðlaugur Þór hefur gaman af allskonar útreikningum. Á síðu sinni í dag reynir hann að verja Davíð Oddsson með reiknikúnstum og kemst að því að nýi bankastjórinn sé að standa sig hræðilega og að krónan sé í frjálsu falli hjá honum. Hann tekur dæmi um breytingu á gengisvísitölunni og erlendum skuldum og eignum þjóðarbúsins. Segir að skuldirnar hafi hækkað og gengisvísitalan hækkað einnig síðan nýi bankastjórinn tók við (á rúmlega einum mánuði). Það er reyndar alveg satt, en common, þetta finnst mér léleg finnska hjá ráðherranum. Með svipuðum rökum og hann notar væri auðvelt að sjá hversu mikið erlendar skuldir og gengisvísitalan hækkuð meðan Davíð var í sama stól. Nenni ekki að fletta upp skuldunum, en gengisvísitalan er töluvert auðveld.
Davíð byrjar sem bankastjóri (25 okt 04): GVT: 120,63
Davíð hættir (24 feb 09): 189,64
Hækkun: 57,2% eða 69,01 stig
Norsarinn Svein Harald Øygard (jamm, viðurkenni að hafa þurft að fletta upp eftirnafninu) byrjaði í sömu tölu og Davíð hættir í og síðan þá hefur GVT hækkað töluver:
24. feb 09: 189,64
31.03.09: 212,08
11,8% hækkun eða 32,44 stig
Þannig að samkvæmt aðferðafræði Guðlaugs ætti Davíð að vera mun verri en Svein. En þetta er auðvitað mjög gölluð aðferðafræði og að setja stuttan tímaramma við svona aðstæður eru bara útúrsnúningar.
Þess fyrir utan tekur Svein við mjög erfiðu búi með ónýtan gjaldmiðil þegar rýkja neiðarlög og Guðlaugur gefur honum 1 mánuð og 7 daga til að úrskurða um og gefa honum falleinkunn.
Í grein sinni segir Guðlaugur: “þá hefur krónan verið í frjálsu falli síðan að Davíð fór úr bankanum”. Til gaman má geta að krónan styrktist fyrsta hálfa mánuð seðlabankastjóra en hefur síðan veikst aftur.
Að lokum endar hann á þessum klassísku orðum “Spurningin er hvert sendum við reikninginn?”
Ég spyr á móti, Guðlaugur, hvert sendum við reikninginn fyrir því tjóni sem varð meðan síðasta ríkisstjórn (og seðlabankastjóri) var við stjórn? Er Háaleitisbraut 1 eitthvað verri addressa en hvað annað?
—
Þegar ég var að finna réttu dagsetningarnar fyrir hvarfi og upphafi starfsferils Davíðs í seðlabankanum notaði ég wikipediu.
Hann er einn sigursælasti og vinsælasti, en um leið umdeildasti, stjórnmálamaður Íslandssögunnar.
Ég væri nú alveg til í að sjá heimild fyrir þessu “vinsælasti”

Hehe….þetta er svo kjánalegt.
Svona málflutningur er gerður fyrir fólk sem nennir ekki að setja sig ofan í málin og hlustar bara á fyrirsagnir og það síast inn hvort sem fólk vill eða ekki.
Þessir stuttbuxna gæjar eru snillingar í því…það þarf bara að skoða ESB málflutninginn hjá þeim.
Þó besta fólkið sé í Sjálfstæðisflokknum þá er þetta ein af ástæðunum fyrir því að ég ætla aldrei að kjósa þá.