Góð íslensk tónlist

Fór á Nokia on ice tónleikana í gær. Missti reyndar af Bang Gang sem mig langaði að sjá, en sá Sudden Weather Change og Mammút. SWC voru góðir, en Mammút voru hreint út sagt frábær. Sveitin hefur verið ein af mínum uppáhalds íslensku í smá tíma núna og það varð enginn breyting á því eftir þessa tónleika. Frábær sveit sem kemur efninu vel til skila á tónleikum. Tónleikarnir voru á Sódóma Reykajvík (efri hæðin á gamla Gauknum) og ég er eiginlega bara dálítið hrifinn af þeim stað. Ég gerði þó þá breytingu á djammi niðrí bæ og var edrú í þetta skiptið. Það kom bara helvíti vel út og þægilegt að geta keyrt heim og ekkert vesen. Mun örugglega gera meira af þessu framvegis.

Meira um íslenskar hljómsveitir. Í kvöld var úrslitakvöld músíktilrauna. Ég hef lítið fylgst með þessu í ár og stillti óvart inná Rás2 í kvöld þegar það var verið að útvarpa frá viðburðinum. Heyrði lokin á Blanco (held ég) og svo allt prógramið hjá Bræðrum Svartúlfs. Eftir að hafa hlustað á það datt mér ekki annað í hug en að þessi sveit myndi standa uppi sem sigurvegarar, það hefði allavega þurft að vera helvíti góð tónlist. Ótrúlega töff rapprokk sem náði óskiptri athygli minni. Söng/rapp stíllinn hjá söngvaranum var mjög skemmtilegur og tónlistin per se var öflug á bakvið. Hljómaði einhvern vegin smá epísk. Sá svo núna þegar ég kom heim að sveitin stóð uppi sem sigurvegari. Þetta er klárlega hljómsveit sem maður þarf að veita athygli á næstunni.

Leave a comment

Your comment