krossfesting á föstudaginn langa? :)

Svona til að halda í hefðina væri nú ekki vitlaust hjá Andra Óttarsyni að koma með tilvitnun í krossfestinguna við það tilefni að hann sé hrakinn svona úr flokknum á ekki síðri degi en föstudeginum langa. Það væri svo hægt að misskilja hana duglega í fjölmiðlum og telja að Andri væri að líkja sér við Jessa kallinn.

Það er samt mjög skrítið að horfa svona uppá Sjálfstæðiflokkinn tæta sig sundur að innan á síðustu dögum. Allt að koma í ljós, allir benda í aðrar áttir en að sjálfum sér og hver reynir að bjarga sjálfum sér.
Greinilegt að Hume kallinn hafði rétt fyrir sér þegar hann talaði um að maður gæti aldrei verið viss um hvað myndi gerast, þótt það hefði gerst 100x áður og að samband orsakar og afleiðingar væru ekki alveg jafn traust og við höfum venjulega talið. Flestir töldu morgunblaðið og sjálfstæðisflokkinn vera eitt það traustasta í tilverunni ef frá er talið dauðann og skatta, en á síðustu misserum hefur annað komið í ljós.

Comments (2)

Halldór Berg HarðarsonApril 10th, 2009 at 20:16

Ég bind miklar vonir um að skattar leggist af á næstunni og að rannsóknir á stofnufrum leiði til þess að dauðinn verði sigraður.

steinar marApril 11th, 2009 at 11:50

hinsvegar eru hægðir eitthvað sem klikkar ekki í áreyðanleika

Leave a comment

Your comment