Kaupandi að exista bréfum!

Fékk bréf í dag þar sem mér var tilkynnt á fallegum pappír frá Logos lögfræðisstofu að nýtt félag í eigu Lýðs og Ágústs bakkabræðra væri tilbúið að taka yfir Exista bréfin mín á genginu 0,02 (fór það ekki hæðst í eitthvað 35-40?). Eftir að hafa staulast í gegnum bréfið og lagalegar ástæður þessa yfirtökutilboðs var svo loks komið að uppgjörinu. Þeir voru sem sagt til í að kaupa hlutina mína 160 á genginu 0,02 og = 3 ISK. Og til að gera tilboð í þessar 3 krónur, þá er öllu hennt á fallegan pappír, sent heim til mín í stóru umslagi og svo svarumslag og ég veit ekki hvað og hvað. Ég á bara að kvitta á þetta, láta votta undirritunina og labba út á næsta pósthús og senda svarið. Svar uppá 3 krónur um hvort ég vilji láta taka yfir bréfin mín eða ekki. Ég held í alvöru að fáir muni nenna að elta þetta tilboð þeirra, enda ekki einusinni 3 krónu virði að labba út á pósthús.

Comments (1)

steinarApril 16th, 2009 at 9:29

já ég sá þetta heima

ekkert smá flottur lögfræðiklausupési sem fylgdi með þessu. Kostaði örugglega 100 sinnum meira en þessar 3 krónur sem þér var boðið.

gott verð!

Leave a comment

Your comment