brostnar forsendur
Er að lesa mjög skemmtilega bók um framtíð utanríkisstefnu bandaríkjanna frá árinu 2006. Þar kemur meðal annars eftirfarandi fram (í lauslegri þýðingu):
“Ef miklar breytingar eiga að eiga sér stað í utanríkisstefnunni, þá þarf að koma til mikilla efnahagslegra eða pólitískra breytinga, helst beggja”
Svo er byrjað að tala um að það gerirst líklega ekki og nokkrar smávægilegar breytingar taldar upp sem líklegar séu að gerist.
Gallinn er að árið 2006 var ekki búið að kjósa Obama og það var ekki komin heimskreppa.
