Við upphaf ferðar
Þá fer að styttast í mið-austurlandaferðina mína. Flugtak eftir 6 klst og merkilegt nokk er allt komið í tösku og ready (að undanskildum ipodinum mínum sem ég er að hlaða inná). Skal alveg viðurkenna að spennan er orðið nokkur enda verður gaman að sjá hvernig þetta reddast allt saman. Er kominn með gistingu fyrstu 3 næturnar eða svo í heimahúsum og eftir það verð ég bara að sjá hvert vindurinn ber mig. Planið er að byrja í Beirut í Líbanon og taka svo smá tíma í Líbanon fyrir utan Beirut. Þaðan verður svo farið um norður landamærin til Sýrlands þar sem krossfarakastalinn Krak des Chevaliers er rétt hjá. Ætla svo að kíkja til Latika borgarinnar við Miðjarðahafsströndina áður en ég held til Aleppo (næst stærstu borgar Sýrlands). Sú borg á að vera gömul í háttum og bjóða uppá eldgamla markaði og slíkt.
Eftir Aleppo verður haldið hægt niður til Damascus, þar sem ég er ekki alveg viss hvað ég mun gera. Hvort ég stoppi þar, eða fari beint til Jordan þar sem ég ætla að taka bílaleigubíl í eina viku. Stefni í Jórdaníu á að skoða Petra, Dauðahafið, Wadi Rum og Kings Highway, áður en égskila bílnum og fer aftur til Damascus þar sem ég verð í fjóra daga u.þ.b. Þaðan er dagsferð til Palmyra líkleg. Held svo heim 3. júní.
Þetta gæti svo allt eins breyst án fyrirvara og eitthvað dottið út og/eða annað bæst inn.
Hef brennt mig áður á að vera með of mikið, þannig að ég reyndi að passa að halda þyngdinni á farangrinum í skefjum. Endaði engu að síður í 9kg aðalbakpoak og tæplega 4 kg litlum bakpoka. Það er aðeins of mikið finnst mér og hefði verið sáttur með að ná þessu aðeins lægra. Býst þó við að losna mjög fljótlega við 1,5-2 kg vegna gjafa og ísl nammi.
Aðalbakpokinn:
Gönguskór
Svefnpoki
Bolir 5x
Langermabolur 1x
Stuttbuxur
Sundbuxur
Sokkar 7x (tók 2x pör þykkari sokka ef það verður kalt í eyðimörkinni)
Nærbuxur 5x
Þunnur jakki
Buxur
Snyrtivörur
Lyf og plástra
Sólarvörn
Poncho
Vasaljós
Uppblásinn kodda
Zip poka
Blautþurrkur (með sótthreinsandi)
Frisbí
Gjafir handa gestgjöfum
Íslenskt nammi ef einhver gestgjafanna vill smakka
Litli bakpokinn:
Myndavél Canon 300d
Myndavél Ixus 500
Hleðslutæki 2x
Minniskort, auka rafhlöður, snúrur
Ipod + hleðslutæki
Símahleðslutæki
Ferðamiða
Allskonar skjöl (tryggingaskjöl, alþjóðl. ökuskýrteini, bólusetningarkort, auka passamyndir o.s.frv.)
Ferðahandbækur 2x
Aðrar bækur til að lesa 2x
Spil
Annað:
Peningamagabelti með peningum, vegabréfi og kreditkorti
Buff
Föt sem ég verð í á leiðinni.
Mun reyna að henda inn einhverjum orðum og jafnvel myndum eftir því sem ferðinni líður. Það verður samt bara að ráðast af netkosti og eljusemi í mér við bloggskriftir.
Svo kemur maður næstum beint heim í útskrift (þ.e. ef maður nær þessari ritgerð :)) sem á að vera 6. júní.

hehe, það er svo einmannalegt eitthvað að sjá að þú sért að taka með þér frisbý
Hvad meinaru? Vorum t.d. 4 saman inna campussvaedi AUB haskolans her i Beirut i gaer ad leika okkur i frisby
Eina sem vantadi til ad fullkomna tetta var hacky sack bolti