(ó)hæfi einstaklinga
Ég var nú búinn að viðra þessa skoðun mína áður fyrr (og þá örugglega á öðrum vettvangi), en rosalega finnst mér orðið leiðinlegt að lesa greinar eða blogg þar sem fólk getur commentað við þessa dagana. Ef einhver hefur sterka rökstudda skoðun, þá eru strax einhverjir sem hlaupa til handa og fóta og úthrópa viðkomandi sem óhæfan að tala um ákveðin mál, bara afþví að hann hafði sterkar skoðanir um það. Svona svipað og að ég væri óhæfur að taka þátt í umræðum um aðskilnað ríkis og kirkju afþví að ég hef talað með aðskilnaði áður fyrr. Það er eins og menn megi ekki hafa gert upp hug sinn áður, allt þarf að vera pure og hugurinn tandurhreinn og skoðanalaus, jafnvel þótt skoðun hafi áður verið mynduð að vel yfirförnu máli.
Annað hvort hættum við þessum sandkassaslag eða við gerum okkur grein fyrir því að enginn er hæfur út frá þessum skilgreiningum.
