Frá Hornströndum til Brighton

Loksins, fyrir þá sem ekki hafa séð myndirnar á facebook, þá er hér fyrsti pakkinn af myndum frá Hornstrandaferðinni í sumar. Læt fylgja með það sem ég skrifaði við albúmið á fésinu:
“Ferð á Hornstrandir með Ferðafélagi Íslands 5-12 júlí 2009. Fórum til Norðurfjarðar og sigldum þaðan til Hlöðuvíkur þar sem gist var í þrjár nætur. Farið var svo yfir til Hornbjargsvita í Látruvík og gist þar í 3 nætur einnig áður en haldið var til Norðurfjarðar aftur.”

Vonandi að ég verði ekki latur um helgina og hendi inn smá aukalega þá.

Annars er það að frétta af manni að fyrir rúmum tveimur vikum tók ég á móti tveimur stelpum frá Ísrael í gegnum couchsurfing.com. Þær voru hér í nokkrar nætur áður en þær héldu heim til landsins helga, en þær höfðu ferðast í 2-3 vikur hérlendis áður. Mjög gaman að fá þær í heimsókn og að fá t.d. viðbrögðin hjá þeim þegar þær föttuðu að maður gat labbað með þeim alveg í kringum forsetaheimilið á Bessastöðum og að enginn vopnaður vörður væri þar. Einnig að fræðast um matarvenjur þeirra, en þær voru trúaðir gyðingar og voru ekki tilbúinn í hvaða kjötmeti sem er :)

Um síðustu helgi var svo haldið með pabba, Óla pabba, Jonna (vinnufélaga pabba) og syni Jonna uppá Fjallabak nyrðra þar sem stoppað var í Landmannahelli og svo farið að veiða í Dómadalsvatni og Ljótapolli. Höfðum nokkra spræka urriða, þó veiðin hefði nú mátt vera betri. Á leiðinni til baka komum við við í Álunum en höfðum einnig lítið þar. Nóg af fiski í ánni, en hann virtist ekki vera að grípa við flugunni og synnti ávallt framhjá góðgætinu. Engu að síður fínasta ferð og veiðidellan er aðeins vöknuð á ný og planið er að hittast á morgun og prufa að hnýta aðeins aftur.

Er búinn að vera að hlusta smá á Moby í kvöld. Lög af diskunum Play og 18. Þegar ég hlustaði á 18 rifjaðist upp fyrir mér enskuskóladvölin í Brighton fyrir margt löngu. Þar gerðist ég einmitt mikill kaupmaður á allskonar tónlist sem var hræódýr þar ytra miðað við heima. Fjárfesti meðal annars í fyrrnefndum disk og hlustaði mikið á hann í walkmaninum þegar maður var í tveggja hæða strætó á leiðinni heim á kvöldin. Good times.

Leave a comment

Your comment