Tónlistargetraun 2009 #1

Þá er komið að því að endurvekja aðeins þessa síðu mína aftur. Ætla að reyna að byrja aftur með tónlistargetrunina mína aftur eftir að hafa verið hvattur áfram af fc bumba getrununum hans Jóa nýlega. Einnig er Maggi búinn að væla í mér lengi að koma með nýtt svona stöff, vonandi að þetta kæti hann.
Í þetta skiptið verður rokk þema á getrauninni, en spurningarnar verða flestar ekki mikið dýpri en að spurja um höfund og lag. Næst mun ég reyna að vera með þetta aðeins öflugara. Svör þurfa að berast fyrir 23:59 næsta sunnudag (25.10), en ég sé til hvort það komi inn ný þraut þá.

Síðast þegar ég var með tónlistargetraun var uppsafnaður árangur úr nokkrum þrautum sem gilti, en núna ætla ég að hafa þetta stakar þrautir þar sem það stendur einn sigurvegari (eða nokkrir ef það er jafnt á stigum) uppi í hvert skipti. Mest er hægt að fá 22 stig fyrir að svara öllu réttu. Fólk þarf að senda svör á thorsteinn [hjá] gmail.com, en ég verð með lokað á comment við þessa færslu.

Let the games begin:

1. Byrjum þetta bara á léttu nótunum, spurt er um lag og flytjanda. (2 stig)

2. Hér er einnig spurt um lag og flytjanda. (2 stig)

3. Það ætti ekki að fara framhjá mörgum að hér er um Beatles lag að ræða. Aftur á móti er þetta cover útgáfa og ég vil vita hver það er sem flytur. Þessi listamaður hefur einnig verið í samstarfi við íslenska aðila og ég spyr einnig hverjir það eru. (2 stig)

4. Spurt um lag og flytjanda (2 stig)

5. Spurt um lag og flytjanda (2 stig)

6. Spurt um lag og flytjanda. Spurningar 4-6 tengast á einn hátt og fæst aukastig fyrir að benda á það. (3 stig)

7. Spurt um lag og flytjanda. (2 stig)

8. Spurt um lag og flytjanda. (2 stig)

9. Hér heyrum við brot úr lagi sem var vinsælt fyrir þó nokkrum árum. Spurt er um lag og flytjanda. Einn meðlimur þessarar sveitar gerði seinna garðinn frægan með sólóferli. Það fæst aukastig fyrir að nefna hann. (3 stig)

10. Spurt um lag og flytjanda. (2 stig)