Tónlistargetraun 2009 #3

Þá er umferð #2 búin af tónlistargetrauninni. Í þetta skiptið voru spurningarnar dálítið í þyngra lagi og því létu svörin kanski aðeins á sér standa, en Steinar, Rúrik og Jói sendu einir inn svör. Jói náði 20 stigum og er því vinningshafi þessarar viku. Vonandi að fleiri sjái sér fært að taka þátt næst til að hafa þetta nú aðeins meira spennandi :)

Jói færeyingur skorar 20 stig og var aðeins með Froðuna vitlausa
Steinar: 18 stig
Rúrik tekur 9 stig, en var þó með sp 3 rétta

Svörin má finna hér að neðan:
1. For What its Worth með Buffalo Springfield
2. Froðan með Geira Sæmundarson
3. Þetta er lagið London með LOG (líka gefið rétt fyrir Stóri Rú)
4. Verkið Polonaise með Chopin
5. Johnny Cash með The night they drove old dixie down eftir Robbie Robertsson úr The Band. Atburðurinn er Civil War, síðustu dagarnir.
6. Woodstock með Crosby, Stills og Nash
7. Jim Croce með I got a name
8. Lagið Graceland með Paul Simon
9. Pray them bars away með Lee Hazlewood, Landið var Svíþjóð
10. Lagið er Spring, Summer, Winter and Fall með grísku sveitinni Aphrodites Child. Coverað af Vilhjálmi Vilhjálmssyni

En að næstu getraun. Reglur eru eins og fyrr:
- Einn sigurvegari eftir hverja þraut, en ekki tournament eins og í fyrra.
- Fólk þarf að senda svör á thorsteinn [hjá] gmail.com, en það verður lokað á comment við getraunar færsluna
- Svör verða að berast fyrir kl 23:59 næsta sunnudag eftir birtingu.
Mest er hægt að fá 23 stig fyrir að svara öllu rétt

1. Hér heyrum við stuttan part af skemmtilega aggressívu rokk lagi sem varð nokkuð vinsælt í byrjun árs 2000. Seinna sama ár fékk annar meistari að nota lagið og uppskar það þá aftur nokkrar vinsældir. Spurt er um höfund og nafn lags og í hvaða öðrum tilgang þetta lag var notað sem jók vinsælir þess aftur. (3 stig)

2. Þetta lag varð mjög vinsælt hér á landi eitt sumarið fyrir nokkrum árum. Hvað er nafnið á bandinu og laginu? (2 stig)

3. Hér kemur ein sem ætti ekki að vefjast fyrir fólki. Spurt er um nafn tónlistarmanns og lags. (2 stig)

4. Þessi hljómsveit gerði garðinn frægan með disknum sem þetta lag er á. Það var þó annað lag sem varð langtum vinsælla og setti bandið eiginlega á stall með one hit wonder sveitum. Það er þó ekki spurt um það lag hér, heldur hvað þetta lag heitir og hver sé artistinn. (2 stig)

5. Ein af frægari sveitum Englendinga síðustu áratugina flytur hér eitt af sínum lögum, spurt er hvert lagið sé og sveitin. Auka stig fyrir að finna hvað þessi síðustu þrjú lög eiga sameiginlegt. (3 stig)

6. Þessi sveit varð þónokkuð stór á Íslandi á sínum tíma, gerði meðlimina að þekktum nöfnum og sópaði að sér nokkrum verðlaunum. Hver er þessi hljómsveit og hvert er lagið. Aukastig fæst fyrir að benda á hvað tengir hljómsveitina, George W Bush, Mel Gibson og Mike Tyson saman. (3 stig)

7. Þetta lag varð crazy banana vinsælt hér í den svo það er ekki langur bútur sem fólk fær að hlusta á í þetta skiptið. Spurt um lag og höfund. (2 stig)

8. Annað lag sem gerði það svipað vinsælt og lagið hér að ofan, ef ekki meira. Gott dæmi um lag þar sem einn pínupartur af textanum varð gífurlega vinsæll en enginn kunni neitt annað af textanum. Spurt um lag og höfund. (2 stig)

9. Þetta er íslenskt gæðadansipopp uppá sitt besta. Ég vil fá að vita hvað tónlistarmaður er á bak við þetta og hvað lagið heitir. (2 stig)

10. Hljómsveitin með einstaklega steikta nafnið er hér á ferð með eitt af sínum vinsælli lögum. Sumir vilja meina að sveitin hafi verið frumkvöðull fyrir stefnu sem seinna kom og varð mjög vinsæl. Spurt um nafn lags og hljómsveit. (2 stig)