Ksí og strippið
Rosalega finnst mér merkilegt hvernig verið er að taka á þessu blessaða stippbúllumáli KSÍ fjármálastjórans. Í bloggheimum er verið að henda þessu upp sem stríði feminista við frjálslynda karlmenn sem eiga að fá að gera það sem þeir vilja. Í versta falli þá hafi þessi umræddi fjármálastjóri bara verið svikinn af strippbúllunni og látinn borga of mikið.
Málið er að þetta er ekki flókið mál.
1) Aðili sem hafði aðgang að kreditkorti stærsta íþróttasambands á Íslandi (sem btw er styrkt mikið af ríkinu) fer inná strippbúllu í Sviss og notar þar kortið fyrir sig persónulega = misnotkun á fjármálum félagsins. Fyrir það eitt ætti honum auðvitað strax að vera vikið úr starfi og kærður til lögreglu fyrir misnotkun á fjármunum félagsins. En nei, stjórn KSÍ ákveður að horfa fram hjá þessu og leyfa honum að borga þetta bara seinna og ákveðið er að þagga málið niður.
2) KSÍ er íþróttasamband sem fær töluverða fjármuni frá ríki og sveitarfélögum og félagið gerir sig út á að styðja við heilbrigða æsku, forvarnir etc. Er einhver sem sér andstæðu í þeirri hugmyndarfræði og að eyða milljónum í að kaupa sér aðgang að kvennlíkömum og áfengi á reikning félagsins?
Og að fólk sé að verja þetta vegna þess að hann var fullur og hafi hugsanlega álpast þarna inn. Bíddu nú við, er núna fólk allt í einu hætt að bera ábyrgð þegar það er fullt? Þessi röksemdarfærsla gengur ekkert of langt, hvað með að einstaklingur x muni ekkert eftir því þegar hann keyrði fullur, rændi hús eða nauðgaði?
Ef fólk vill standa á þeim gildum að fólk megi alveg gera það sem það vill, hvort sem það sé að fara inná strippbúllu eða ekki, þá hlýtur það að taka undir að frelsi fylgir ábyrgð og það að drekka sé gert á eigin ábyrgð, sem leiðir til að fullur einstaklingur inná strippbúllu ætti að bera ábyrgð á því hvað hann gerir þar inni.
Að endingu má deila um það hvort stjórn KSÍ ætti einnig að segja af sér varðandi svona þöggun. Mér finnst það alveg mál sem mætti spurja sig að. Þeir ættu allavega að sjá sóma sinn í að hætta að reyna að verja þennan fjármálastjóra og biðjast afsökunar á þessum mistökum (þ.e. að fela þetta og víkja fjármálastjóranum ekki úr starfi).
Þetta mál er ekkert stríð feminista við karllægu öflin. Hér hefur feministahópurinn bara bent á einfalt atriði sem smá skynsemi ætti að vera sammála. Það að úthúða málinu vegna þess einstaklings/félags sem benti á það er dæmi um ad hominem rökvillu sem við skulum ekki falla í.
