Tónlistargetraun 2009 #4

Pínu seinnkun hér á ferð, lennti í veseni með tölvuna á sunnudaginn sem varð til þess að ég náði ekki að setja saman nýtt quiz í tíma. Þetta kemur því sólarhring of seint sem leiðir til þess að skilatími fyrir næsta quiz styttist um einn dag. Það ætti nú samt ekki að koma að sök, enda ágætis tímamörk á þessu.

En varðandi getraun nr #3, þá voru svörin eftirfarandi:

1. Oasis – fuckin in the bushes. Lagið kom fram í Snatch eftir hann Guy Richie seinna þetta sama ár.
2. Viking giant show – party at the white house
3. Bod dylan – tambourine man
4. Crash test dummies – Afternoons & Coffeespoons
5. Cure – Never enough. Það sem lögin þrjú eiga sameiginlegt er að söngvarar sveitanna (tónlistarmaðurinn) heita allir Robert.
6. Todmobil – Stúlkan. Það sem tengir Todmobil við þessa herramenn er ölvunarakstur, en Eyþór Arnalds, George Bush, Mel Gibson og Tyson eiga það allir sameiginlegt að hafa komist duglega í fréttirnar vegna þessa að hafa keyrt undir áhrifum.
7. Mc Lyte – could rock a party (hér verður ekki gefið rétt fyrir Diana Ross og upside down, þótt stefið sé vissulega tekið þaðan, en það heyrist greinilega í laginu að þetta er önnur útgáfa).
8. Babylon Zoo - Spaceman
9. Berndsen – supertime. Mæli með að allir tékki á video-inu sem Helgi Jóh gerði við þetta myndband, classic.
10. Neatral milk hotel – In the aeroplane over the sea

Í þetta skiptið voru aðeins fleiri þátttakendur, eða alveg 5! Sigurvegari í þetta skiptið var Jói, en það eina sem þvældist fyrir honum voru tengingarnar tvær í lögum 5 og 6.
Jói: 21
Maggi: 18 (tengingarnar tvær, cure lagið og sp 4 að þvælast þarna fyrir)
Davíð Fjölnir:18 (Davíð var sá eini með tenginguna við sp 6 á hreinu. Aftur á móti voru sp 2 og 10 í ruglinu, en á móti kom að Crash test dummies komu sterkir inn).
Diljá: 7 (alveg á síðasta snúning, en skoraði samt 7 stig)
Stjáni: 7 (einhverra hluta vegna náði Stjáni að giska á viðbótina í sp #1, þ.e. Guy richie myndina, en var með lagið vitlaust!)

En að næstu getraun. Reglur eru eins og fyrr:
- Einn sigurvegari eftir hverja þraut, en ekki tournament eins og í fyrra.
- Fólk þarf að senda svör á thorsteinn [hjá] gmail.com, en það verður lokað á comment við getraunar færsluna
- Svör verða að berast fyrir kl 23:59 næsta sunnudag eftir birtingu.
Mest er hægt að fá 27 stig fyrir að svara öllu rétt

Hvet alla til að senda inn svörin sín, þó þeir telji sig ekki vera með mest allt rétt, alltaf gaman að sjá fleiri taka þátt og það verður vonandi til þess að enn fleiri taka þátt þegar fram líður.

1. Fyrsta tóndæmið er þetta angurværa brot úr íslenskri dægurtónlistarsögu. Lagið er kanski rólegt, en textinn er stórbrotinn, enda eftir mikinn meistara. Einfalt í byrjun, hvert er nafn lags og höfundar. – 2 stig

2. Á eftir angurværðinni kemur sækadelið. Þetta lag er spilað eins og það kemur fram á plötunni, ég hvorki hraðaði því né bætti inn furðulegum hljóðum :) Þótt þetta hljómi ef til vill frekar furðulega ættu nú margir að kannast við þetta ef þeir leggja aðeins höfuðið í bleyti. Ég vil fá fram lag og höfund/flytjanda. Einnig er gefið aukastig fyrir nýlega tengingu þessarar sveitar við Ísland. – 3 stig

3. Þetta lag varð nokkuð vinsælt einhverstaðar kringum 2005 og kom hljómsveitin nokkrum lögum á lista. Spurt er um lag og höfund, auk þess sem gefið er eitt aukastig fyrir að nefna þær sveitir sem meðlimir hljómsveitarinnar komu frá. – 3 stig

4. Þá er það kósý stemmningin. Spurt um lag og höfund. – 2 stig

5. Flutt sig í aðeins meira rokk, en sem fyrr er spurt um lag og höfund. – 2 stig

6. Þetta lag fer að slaga í 15 ára afmælið fljótlega. Vill fá að vita hvert lagið er og hvaða sveit er höfundur þess. – 2 stig

7. Hér er þekkt lag sem ætti ekki að blekkja marga. Einfalt, lag og höfundur. 2 - stig

8. Þetta er sveit sem byrjaði með því að vera rægð niður í skítinn fyrir fyrstu smáskífurnar og diskana en skutust svo allt í einu uppá stjörnuhimininn þegar þau skiptu um stefnu. Síðan þá hafa komið út einhverjir 6 diskar og sveitin verið dugleg að taka stefnubreytingar og koma á óvart. Þeir eru þó yfirleitt nokkuð óheflaðir og duglegir við að henda fram pólitískum skoðunum sínum. Spurt um lag og höfund. – 2 stig

9. Þetta rólyndisstef ættu margir að kannast við. Hér er spurt um höfund og lag. Það er þó eitt atriði sem tengir saman þetta lag og lögin tvö á undan, þótt mismunandi séu. Þetta atriði kemur flutningnum á lögunum við að miklu og er gefið aukastig fyrir að benda á þessa tengingu. – 3 stig

10. Hér kemur einn slagarinn í viðbót hjá hljómsveit sem átti þá í bunkum. Vil fá að vita lag og höfund. – 2 stig

11. Aukaspurning : Þetta er örugglega nokkuð erfið spurning og því ætla ég að gefa 4 stig fyrir rétt svar við bæði flytjanda. Þetta er all or nothing spurning og því fást bara 4 stig eða ekkert. - 4 stig

Leave a comment

Your comment