Svör við tónlistargetraun 2009 #4

Afsakið biðina með þessi úrslit. Pínu busy helgi hjá mér og svo kíkti maður í flug með Guðgeiri í kvöld þannig að ég hef ekki enn haft tíma til að gera nýja þraut. Ætli ég stefni ekki bara frekar á að það komi ný næsta sunnudag, þannig að þessari viku verði sleppt.
En að úrslitunum, sex skiluðu inn svörum að þessu sinni, Jói færeyingur, Robbi, Júlli, Davíð Fjölnir, Halldór Berg og Pálmar. Mest var hægt að fá 27 stig, en enginn náði toppskorinu. Jói náði aftur á móti 23 stigum og skuttlaði sér þannig í verðlaunasætið að þessu sinni. Næstu honum var Davíð með 19 og Robbi með 17. Júlli var svo með 12 stig, Pálmar 11 og Halldór með 10.

Svörin:
1. Bjartmar Guðlaugsson – Týnda Kynslóðin. Þetta voru allir með, nema Júlli sem giskaði á Graffík með þúsund sinnum segðu já. Eftir á að hyggja ekkert svo vitlaust gisk þótt það hafi verið vitlaust
2. Beatles – Tomorrow never knows - varðandi aukastigið mátti nefna Yoko Ono, friðarsúluna etc. Þetta voru margir í vandræðum með, enda átti þetta að vera frekar erfitt. Sveitin sem allir þekkja, en erfiður partur úr lagi sem ekkert of margir þekkja alveg.
3. Fræ – Dramatísk rómantík – Meðlimirnir komu úr skyttunum og Maus, en söngkonan Mr. Silla sem söng í nokkrum lögum hafði meðal annars verið í Múm. Þetta gat enginn, en Júlli var nálægt því. Virtist alveg vita hvaða sveit þetta væri þótt hann væri ekki með nafnið á henni né lagið. Tveir vildu svo tengja þetta við Alice Cooper
4. 10cc – im not in love
5. Allannah Myles – Black Velvet.
6. Luniz – I got 5 on it
7. Cat Stevens – father and son.
8. Primal scream – rocks. Nr. 4-8 voru flestir með rétt. Ekkert mikið um það að segja annað en að ég bjóst við að fleiri væru með nr 6 rangt.
9. Tracy chapman – Baby can i hold you. Það sem 7-9 eiga sameiginlegt er að fræg Boybönd hafa coverað þessi lög og fengið nokkra athygli út á það, þ.e. komið þeim nokkuð hátt á vinsældarlista.
10. Mannakorn (Magnús Eiríksson) – Þorparinn
Auka: Neneh Cherry – Woman. Þetta gátu báðir stigahæstu mennirnir og var þetta aðalástæða þess að þeir enduðu efstir. Einhverjir bentu á Portishead og er það ekkert skrítið, enda var hún töluvert í kringum trip hop senuna og sama fólkið og var að umgangast portishead liða á sínum tíma.

edit: bætti við Halldóri Berg í stigalistann. Hann sendi mér svörin í pm en ekki á pósti og ég steingleymdi að telja þau með áðan. Það er hér með leiðrétt.

Comments (2)

Bjarni ÓlafurNovember 18th, 2009 at 14:17

Djöfull ég ætlaði að vera með í þessari, en fannst svo stutt síðan síðasta var að klárast.

Jæja ég verð að vera duglegri að kíkja hingað inn.

steiniNovember 18th, 2009 at 15:24

ég reyni að henda inn vikulega/tveggja vikna fresti. Set inn nýja á mánudögum, þú kíkir bara við með það í huga :)

Leave a comment

Your comment