Tónlistargetraun 2009 #5

Getraunin komin aftur eftir viku hlé.

Reglur eru eins og fyrr:
- Einn sigurvegari eftir hverja þraut, en ekki tournament eins og í fyrra.
- Fólk þarf að senda svör á thorsteinn [hjá] gmail.com, en það verður lokað á comment við getraunar færsluna
- Svör verða að berast fyrir kl 23:59 næsta sunnudag eftir birtingu.
Mest er hægt að fá 29 stig fyrir að svara öllu rétt

Hvet alla til að senda inn svörin sín, þó þeir telji sig ekki vera með mest allt rétt, alltaf gaman að sjá fleiri taka þátt og það verður vonandi til þess að enn fleiri taka þátt þegar fram líður.

1. Fyrsta brotið ætti að vera kunnuglegt. Var geysivinsælt hér fyrir nokkrum árum. Spurt um höfund og lag. – 2 stig.

2. Það eru nokkuð mörg ár síðan þetta lag var aftur á móti ofarlega á lista. Spurt um flytjanda og lag. – 2 stig.

3. Þessi glaðværi fýr sem þetta lag leikur hefur verið mjög stórt nafn í tónlistinni í mörg ár. Þetta lag kom út fyrir rúmlega 2 áratugum en skýtur alltaf upp nefinu við og við og því fylgir venjulega nokkur hressleiki. Nafn flytjenda og lags. – 2 stig.

4. Hér heyrum við enda á mjög þekktu lagi sem hefur nokkra áratugi á bakinu í vinsældum. Spurt um lag og höfund og auk þess tengingu laga 2-4. Tvö stig fást fyrir að benda á það. – 4 stig.

5. Hér heyrum við íslenskan tónlistarmann syngja hugljúfa dægurperlu um tómstundir íslendinga fyrr á tímum (og reyndar enn), hið ómótstæðilega framhjáhald. Spurt um flytjanda og lag. – 2 stig.

6. Þessi sveit var nokkuð fyrirferðarmikil í uppgangi tónlistarstefnunnar sem hún tilheyrði og má jafnvel flokkast til frumkvöðuls. Búturinn sem við heyrum hér er úr byrjun lags sem kom út á fyrsta disk sveitarinnar og var t.d. valinn singúll ársins hjá sumum. Forsprakki sveitarinnar hefur komið til Íslands og spilað í einhver skipti þó hann hafi nú ekki vakið of mikla lukku þegar hann kom síðast. Spurt er hver þessi sveit er, hvert lagið sé og hvaða ár þessi forsprakki hafi síðast komið til landsins til að spila. – 3 stig.

7. Hér er hljómsveit sem allir ættu að kannast við. Spurt er um lag og flytjanda, auk þess sem ég vil fá að vita hvaða íslenska sveit hefur oft verið líkt við þessa ágætis hljómsveit uppá síðkastið. – 3 stig.

8. Byrjun á lagi sem flestir kannast við, en byrjunin sker sig aðeins úr restinni af laginu. Spurt um lag og flytjanda. – 2 stig.

9. Aftur förum við nokkur ár aftur í tímann í þessa eðal tónlist. Hvert er nafn sveitarinnar sem flytur og lagsins? – 2 stig

10. Þetta lag er aftur á móti mun nýrra en öll login hér að ofan. Var t.d. notað í vinsælli kvikmynd fyrir nokkru síðan þar sem tveir stórleikarar léku aðalhlutverkin í siðferðilegum spennitrylli. Spurt um lag og flytjanda. – 2 stig

11. Aukaspurningin: Þetta lag ætti að vefjast fyrir flestum og ég efast reyndar svo stórlega að nokkur hafi hugmynd um þetta að ég er tilbúinn að setja 5 stig fyrir rétt svar við bæði höfundi og lagi. En eins og áður. Allt eða ekkert, 0 stig eða 5 stig.