Svör við nr #5

Surprise surprise… svörin komin næstum viku of seint :) Til að byrja með er ágætt að það komi fram að aukaspurningin með fjölmörgu stigin var aum tilraun hjá mér til að gera rickroll en sumir tóku því full hátíðlega og voru hneykslaðir á léttu lagi hjá mér, plús að lag heitið kom auðvitað fram í spilaranum. Það verða engin stig gefin fyrir að hafa það rétt. Heildarstig voru því 25 en ekki 29.
Svörin voru eftirfarandi:

1. Fatboy slim – praise you
2. Mama‘s and the papas – Dedicated to the one i love
3. George Michael – faith
4. Gary Glitter – Rock and roll part 2 - Tenging þessara laga er óviðeigandi (bönnuð) kynferðisleg atvik. Eitt svarið orðaði þetta vel “óviðeigandi atvik tengd kynlífi, gary glitter með strák í víetnam, george michael með löggu á klósti í beverly hills og John Phillips (Mamas & the papas) fyrir að nauðga dóttur sinni á giftingardegi hennar.” Reyndar var það víst nokkuð oftar en á giftingardaginn, en líka þá.
5. PÉTUR W.KRISTJÁNSSON - Kalli Kvennagull
6. Stone Roses – Fools gold - Ian Brown söngvari sveitarinnar kom til landsins árið 2000 á Reykjavík Music Festival þar sem hann hélt að margra mati einhverja lélegustu tónleika sem hafa sést. Komst að því í svörunum að Palli Dj var víst guidinn hans, þannig að hann var alveg með þetta á hreinu :)
7. Cardigans – Sick and Tired
8. Metallica – Battery
9. Roxy Music – Love is the Drug
10. Groove Armada - Hands of Time
Auka Rick Astley - Never gonna give you up

Úrslit voru eftirfarandi:
Palli Steinars: 14 (vantaði eitt og eitt stig hér og þar, en 2 og 10 voru vitlaus)
Jói 21 (aðeins með nr 5 vitlaust og ártalið hjá Ian brown)
Maggi 12 (hefur oft verið sterkari, en kom með ágætis gisk á tenginguna í nr 4 “öll lögin hafa verið coveruð af Alvin & the Chipmunks”)
Davíð F.: 18 (sp 2, 9 og 10 að þvælast aðeins þarna fyrir).
Bjarni 13,5 (sagði Reykjavík Music Festival, talaði um ian brown og frammistöðu hans og annað tengt þessari aðeins einusinni hátíð, en sagði ártalið 1999

Það er því ljóst að Jói landar sigri aftur, en stutt þar á eftir kom Davíð. Palli kemur svo sterkur inn með 14 og Bjarni og Maggi þar á eftir.

Verð á ak. næstu helgi svo e´g veit ekki hvenær næsta verður ready. Læt bara vita á facebook, held að það sé ágætishugmynd.

Comments (1)

Bjarni ÓlafurDecember 3rd, 2009 at 21:08

Ánægður með tilkynningar á Facebook, var reyndar byrjaður að fylgjast reglulega með síðunni, er miður mín með ártalið.

Leave a comment

Your comment