Tónlistarárið 2009

Nenni ekki að gera best of lista yfir tónlist á árinu, hef hreinlega ekki verið nógu duglegur að hlusta á heilu diskana. Aftur á móti er hér listi yfir top 30 hljómsveitir sem ég hef hlustað á í ár. Flestar sveitirnar hafa verið í nokkuð jafnri hlustun, en ég set inn smá comment þar sem við á.

1 James
2 John Mayer - 90% í kringum vinnslu á Ba ritgerðinni. Einhver besta lærdómstónlist sem ég hef fundið
3 Amadou & Mariam
4 Goldfrapp
5 Arcade Fire
6 Kings of Leon
7 Neil Young
8 Paul Simon
9 Emilíana Torrini
10 MGMT - aðallega fyrri hluta árs.
11 Death Cab for Cutie
11 The Rolling Stones
13 Bob Dylan
14 Air - mjög jöfn hlustun, enda alltaf 1-2 lög í svefnlistanum hjá mér
15 Vampire Weekend
16 Pink Floyd
17 The Flaming Lips
17 Eddie Vedder
19 Spoon - þetta er bæði um nýju US sveitina Spoon og svo Spoon sem Emiliana Torrini var í.
20 Fleet Foxes
21 Simon & Garfunkel
22 Bon Iver
23 Beirut
24 Girl Talk - tekið í törnum
24 Turin Brakes
26 The Last Shadow Puppets - mest fyrri hluta árs.
27 Roxy Music
28 Led Zeppelin
29 Cut Copy
30 Jurassic 5

Efstu diskarnir eru í nokkru samræmi við hljómsveitirnar, en efstu 5 eru þessar:

1 Amadou & Mariam – Welcome To Mali - Fáránlega góður diskur
2 John Mayer – Continuum
3 Various Artists – Late Night Tales: The Flaming Lips - einhver besti safndiskur sem ég hef heyrt.
4 Goldfrapp – Seventh Tree
5 James – Hey Ma

Topp lögin eru flest úr svefnlistanum sem ég er venjulega með og þau skora ansi hátt þar sem ég hef verið latur við að breyta þessum lista.
Hæstu lögin á lista sem ég held að hafi ekki verið í neinum þannig lista hjá mér eru þessi gömlu lög:
Neutral Milk Hotel – In the Aeroplane Over the Sea
Arcade Fire – Rebellion (Lies)

Ég hef því greinilega ekki verið mjög mikið inní nýrri erlendri tónlist þetta árið, en á móti var ég duglegur í íslensku senunni (reyndar hefur maður verið duglegastur að fara á tónleika og hlusta í bílnum, en ekki í tölvunni þar sem maður er oft seinn að redda sér digital útgáfu af lögunum.
Uppáhalds íslenskuböndin í ár voru: Pascal Pinon, Sometime, Útidúr, Fm Belfast, Mammút, Ljósvaki og svo í lok ársins komu Seabear og Árstíðir sterkar inn.

Bestu tónleikarnir: FM Belfast/Retro Stefson á Airwaves, Sometime á Menningarnótt (þegar ég heyrði fyrst í þeim) og Útidúr á Airwaves. Fljótlega þar á eftir koma Seabear og Múm í Iðnó og Mannstu ekki eftir mér með Ensíma á Nasa.

Er eiginlega bara nokkuð sáttur með tónlistarárið í heild, sérstaklega hvað það er margt spennandi að gerast í íslensku senunni. Vonandi að 2010 komi manni jafn mikið á óvart.

Comments (3)

Ólafur Örn NielsenFebruary 18th, 2010 at 10:00

Hef verið að hlusta aðeins á John Mayer eftir að hafa lesið þetta og verð að segja að ég er nokk hrifinn. Platan Battle Studies er líka nokkuð góð með honum.

steinarApril 25th, 2010 at 3:31

Ég las John Mayer fyrst sem John Mayall, þekki ekki Mayerinn en Mayallinn er eðall. Lýst vel á þennan lista - þarf greinilega að koma í heimsókn og fá eitthvað af þessu stuffi hjá þér

Hafrún AnnaMay 19th, 2010 at 21:46

nú þarf ég að fara vel yfir listan hjá þér og dánlóda eitthvað af þessari músík.. eftir að ég missti svona mikið contact við þig og herra Júlíus og þar af leiðandi hætt að fá músíkina yfir á usb lykil þá hef ég hreinlega ekki hlustað á neitt af viti :)

segi þér seinna hvað af þessu mér líkar best við.. Knús á þig strákur :)

kv. Hafrún

Leave a comment

Your comment