|
Posted on 11.13.08 by steini @ 1:48
Merkilegt hvernig sumir fréttamenn/dálkahöfundar eigna sér efni sem aðrir hafa nýverið skrifað um. Á bls 18 í fréttablaðinu á þriðjudaginn (pdf - html)er t.d. Freyr Gígja Gunnarsson með stuttan pistil um Tékkóslóvakíu 1989 og flauelsbyltinguna og fann út úr því nýtt orð sem passar við íslenskar aðstæður “Flísbylting”. Eða var þetta kanski eitthvað sem hann tók upp hér. Fólk á endilega að skiptast á skoðunum, dreifa skoðunum og hugmyndum sem það telur vera góða eða áhugaverða, en það ætti að vera almenn vinnuregla að geta heimilda. Þetta mætu margir fréttamett taka til sín — Á sunnudaginn hélt Heimsliðið í víking til Selfoss til að etja kappi við Selfyssinga í handknattleik. Eftir mikla baráttu og framúrskarandi karakter stóðu heimsliðsmenn uppi sem sigurvegarar og lönduðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu (eftir töp gegn Víking og Júmboys). Lokatölur voru 27-28 og hálfleikstölur 17-13 (fyrir Selfoss). Þeir austanmenn náðu hæst 6 marka forystu í stöðunni 24-18, en þá fór maskínan í gang, Ástþór átti t.d. 3 heimsklassamörk - slánna inn allt saman og Heimsliðið kláraði síðustu 10-12 min leiksins með 10 mörkum gegn 3 hjá Selfoss. Í kvöld var svo annar leikur gegn Aftureldingu B. Í framhaldi af góðum sigri á sunnudaginn voru allir tilbúnir í annan slíkan og því var byrjað af krafti gegn Mosfellingum og strax var komist í um 5 marka forystu sem hélst út fyrri hálfleik (16-11). Í seinni hálfleik misstum við reyndar aðeins einbeitingu og hleytum Aftureldingu í jafna stöðu (22-22) þegar um 15 min voru eftir. Þá var tekið stutt leikhlé, mannskapurinn róaður og strengir stilltir og uppfrá því var leiðin bara uppá við. 10 mörk gegn 2 hjá Mosfellingum og lokaniðurstöður 32-24. Heimsliðið er því komið með 4 stig af 8 mögulegum og ætti að vera í kringum 5-6 sætið þegar umferðinni verður lokið. — Segja eitthvað um hrunið? Nei, pass. — Á föstudaginn ákváðum ég, Árný, Stjáni og Sandra að skreppa uppá Bifröst og kíkja á hátíðarkvöldverð HHS deildarinnar. Halló halló, djöfull var það gaman. Nostalgía, góður matur og mikið skrall. Mjög sáttur með ferðina og þynnkulaugardag í sveitinni. Held að ég muni áfram kalla Bifröst “heima” í smá tíma, frábær staður. — Spurning hvað eigi svo að gera þessa helgi. Grill hjá Stjána, afslöppun, ræktin og heilsusamlegt húllumhæ (og reyna að vinna að því að taka við af Krumma sem aðallínumaður liðsins), bíó (Bond), djamm eða eitthvað allt annað? Held ég reyni allavega að troða Bond og ræktinni þarna einhverstaðar. — Vá hvað þetta hefði verið mikið stærri frétt ef þetta hefði gerst fyrir 2 mán síðan (þ.e. fréttin komið fram) — Það má margt gott segja um þær hugmyndir að taka upp einhliða aðra mynt en krónu hérlendis, en hefur fólk ekkert velt því fyrir sér að með tilheyrandi hækkunar lána vegna verðbólgunnar undanfarið, þá mun slæm gengisstaða gera það að verkum að hækkunin á lánum verður töluvert meiri ef farið verður út í þessar aðgerðir. Djöfullsins, gat ekki setið á mér að nefna eitthvað tengt hruninu — Langar í lokin að benda á nokkra áhugaverða tengla sem maður hefur ratað á með netvafri síðustu daga: Africa, skattar í us, mcdonalds, god - a god?. og nokkur fyndin: rational?, skrípó, kveðjur frá nördum, wtf?, us forsetar, it’s the hat, indy, fail, kandídatar, svekkjandi að sjá þetta svona Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og grín og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 09.02.08 by steini @ 1:01
Stundum gerir maður alveg hræðileg mistök. Í gær horfði ég á nýju X-files myndina (elskaði gömlu þættina) og það er eitthvað sem ég get því miður ekki tekið til baka. Ekki bara að þetta hafi verið tímaeyðsla, þá eyðilagði þetta rosalega nostalgíuhugsunina við X-files hjá manni - ekki sniðugt. Fyrir utan slappt handrit, lélega díaloga og ótrúverðuga persónusköpun, þá var Gillian Anderson alveg hræðileg í þessari mynd. Hvað hefur eiginlega komið fyrir, hún var alltaf fínasta leikkona í gömlu þáttunum, en þarna er hún bara plain slæm. Mæli öllum frá að sjá þessa hörmung. *1/2/***** — Byrjaði í dag að vinna hjá Landsbankanum í Hamraborg. Verð þar gjaldkeri í þessu nýlega sameinaða útibúi (Hamraborgin og Háaleitið). Get ekki sagt annað en að mér lítist ágætlega á þetta, hresst fólk og þægileg staðsetning. Dagurinn í dag var reyndar frekar busy (fyrsti mánaðarins) þannig að ég komst ekkert vel inní neina hluti, en það kemur vonandi í vikunni. — Næsta helgi verður helguð útskriftarveislum. Helgina eftir það er pæling um að kíkja á Upplyftingarball á Bifröst. Helgina eftir það verður svo HHS partý hérna heima þar sem nýir og gamlir hhs-ingar munu hittast og vonandi skemmta sér frameftir nóttu. Þannig að nóg að gera næstu helgar. — Heimsliðið er komið á stjá aftur. Komnir með tíma í mýrinni og stefnan er sett á utandeildina í ár. Ef fram heldur sem horfir þá verður þetta massa lið hjá okkur sem ætti að geta ýtt frá sér og látið önnur lið finna aðeins fyrir því. Stefnir í góðan vetur Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Kúltúra og íþróttir Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 08.14.08 by steini @ 7:53
Jæja, tapaður leikur gegn Kóreu. Ekki mikið við því svo sem að segja. Vantaði smá neista í sókninni og færin voru ekki að detta með okkur. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árina eins og maður hefur verið að sjá hjá öðrum og um það sem lýsandanum fannst, að dómararnir hafi verið hroðalegir. Auðvitað áttu þeir sín mistök og allt það, en þeir voru alls enginn auka leikmaður fyrir Kóreu eða algjör úrslitavaldur í leiknum. — Annars er síðasti dagurinn minn á Bifröst að renna upp núna. Merkilegt að vera að fara héðan núna eftir 2 góð ár. En allt tekur víst enda og nú er komið að næsta kafla. Hver hann svo verður kemur bara í ljós. Helgin er svo frekar full bókuð, en hún inniheldur matarboð, partý, landsleik, grillun í gæsaveislu o.fl. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Netið Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 07.24.08 by steini @ 17:11
Í gær fórum við Árný og Stjáni í Jafnaðarstaðaskóg þar sem ég og Árný ákváðum að stökkva hjá fossinum. Stjáni beilaði þá, en sagðist ætla að stökkva í dag í Paradísarlaut. Þannig að í dag fórum við þangað og í lokin voru þetta 2 stökk hjá Stjána og eitt hjá Árnýju. Afraksturinn má sjá hér í þessu video Skráð sem: Bifröst Svör: It´s all happening! - (8) |
|
Posted on 07.09.08 by steini @ 13:18
Var að taka myndir af símanum mínum í fyrsta skiptið um daginn, auk þess sem myndavélin var tæmd inná vélina. Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum og mánuðum. Hægt er að stækka myndirnar með að smella á þær. Sápuboltinn að byrja. Júlli, Helgi og félagar að teygja á og gera sig tilbúna. Hér er svo sigurlið ársins 2007, en í þetta skiptið fóru dómararnir illa með okkur og við fengum ekki að halda áfram eftir 2 sigurleiki í röð! Komnir inní Kollubúð á föstudagskvöldið og tilbúnir í smá sull fyrir veiðiskapinn sem átti að hefjast á laugardaginn. Aflinn á sunnudaginn. Á myndinni má sjá crewið - háseta, skiptstjóra og stýrimenn. Hópurinn fyrir utan Kollubúð Grillið góða með blómunum. Sagan um þau kemur hér inn fljótlega. Doddinn kominn með framhaldslíf, eftir að hafa verið mest notaða grill síðasta sumars á Bifröst. Hér á eftir eru myndirnar úr símanum, auðvitað í mjög lélegum gæðum. Hér má sjá mynd frá því að Fúsi var steggjaður í fyrra Hér er vel yfirlýst mynd af Chuck cup liðinu á mýrarboltamótinu á Selfossi 2008 Og svo mynd frá Paul Simon tónleikunum í Höllinni (btw, takk kærlega strákar). Eins og sjá má er meistarinn baðaður í ljósi og glampa, svo svipar til sjálfs Jesú Krists! Og svo myndir frá göngunni á Baulu, en þær eru teknar af Sigrúnu Hermannsdóttir. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Myndir og Veiði Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 06.27.08 by steini @ 1:49
Eftir 7 klst byrjar síðasta prófið mitt á Bifröst. Síðasti tíminn var á þriðjudaginn, en þá var líka síðasta verkefnaskilið. Svo er auðvitað BA ritgerðin eftir, en annars er allt að klárast. Flestir flytja af svæðinu eftir lokaprófin á morgun og þá verðum við örugglega frekar fá eftir hér sem verðum í því að skrifa. Maður eiginlega fattar ekki hvað þessi 2 ár hafa verið fljót að líða. Þegar maður sagði bless við fullt af fólki í dag var það eitthvað svo óraunverulegt, því það er eitthvað svo skrítið að vera ekki að fara að hitta alla hér aftur núna næsta haust. Og þá kemur auðvitað enn áhugaverðari spurning. Hvað er ég að fara að gera næsta haust? Hingað til hefur allt einhvernvegin bara reddast hjá mér. Lífið hefur leitt mig áfram á einhvern undraverðan hátt, en núna er ég í einhverri óvissu hvað muni gerast næst og treysti ekki alveg jafn mikið á þessa slembilukku mína um að allt reddist bara. Ég hreinlega er pínu mát, ætlaði að sækja um kúrsa í HÍ, en ruglaðist á lokadagsetningum og endaði uppi með að hafa ekki sótt um neitt. Þannig að hvað á maður að gera? Bara vona hið besta og fara aftur í bæinn og flytja inn til mömmu og pabba í einhvern tíma? Nú hefur maður verið í burtu í næstum 2 ár og það er frekar skrítin tilfinning að fara aftur. Þessi tími hefur nefnilega verið yndislegur og Bifröst hefur verið frábær staður fyrir mig. Ég hef kynnst fullt af góðu og skemmtilegu fólki sem maður vildi helst hafa áfram í svona nálægð við sig, en ekki að þetta verði að fólki sem maður hittir nokkrum sinnum á ári og spjalli við á msn þess á milli. Spilakvöldin í Bollakotunum, kubbur á kvöldin, borðtennis, labb á Grábrók, fimmtudagspartý, hrekkir við aðra íbúa svæðisins, póstar frá Öldu, potturinn og allt annað sem gerir Bifröst að þessum stað sem ég elska. Þetta er örugglega allt á leiðinni að hverfa og svo mun eitthvað nýtt taka við. Ég hef hingað til ekki verið smeykur við breytingar og venjulega verið bara nokkuð sáttur með að skipta um stað í lífinu og prufa eitthvað nýtt. En í þetta skiptið held ég að ég sé ekki alveg tilbúinn í það. Þessi tvö ár voru svo stuttur tími að ég hefði alveg viljað vera hér eitt ár í viðbót. Ég er nefnilega ekki nógu viss um að það nýja sem muni koma geti komið í staðin fyrir það sem hverfur þegar maður fer héðan. Ég hef meira að segja verið duglegur að slaka á hérna uppá Bifröst um helgar og vona í leiðinni að ég nái að eyða nægjanlega miklum tíma hér til að “fá nóg” eða allavega vera tilbúinn að sættast við að hafa eytt nægjum tíma hér og haldið áfram. En sú stund hefur ekki enn komið. Ég hef alltaf bara orðið hrifnari og hrifnari af staðnum. Það eru t.d. nokkrar svipmyndir sem ég held að maður eigi eftir að sakna rosalega héðan. Að horfa frá endanum af Hamragörðum upp meðfram pottunum og á Grábrók, sjá yfir leiksvæðið og Aðalból þegar það er vetur og allt frosið og í snjó, svæðið milli Kotanna og Garðanna- hvort sem það er sumar eða vetur. Eins rosalegt og þetta svæði verður á fimmtudögum kemur alltaf rosaleg ró yfir það flest önnur kvöld þegar kemur yfir miðnætti. Paradís og Hreðavatn eru auðvitað alltaf fallegir staðir líka, en það er eitthvað við ásýndina við þessa fyrrnefndu svæði sem gerir mig pínu dreyminn. Það er eitthvað við Bifröst sem hefur náð til mín. Miklu meira en bara námið, fólkið og djammið. Þetta er eiginlega í fyrsta skiptið sem ég hef virkilega fengið þá löngun að vilja eyða miklum tíma á ákveðnum stað, að ég eigi virkilega heima einhverstaðar (fyrir utan að eiga heima hjá m&p). Bifröst hefur allavega gefið mér svo miklu meira en mig hefði getað grunað nokkurntíman. Hvort sem manni líkar það betur eða verr, þá held ég að hægt sé að segja að ég hafi þroskast töluvert. En já, hvað á maður að gera eftir þetta nám? Jú ég stefni á master, annaðhvort í alþjóðastjórnmálum eða einhverskonar hagfræði, en það má bíða í eitt ár. Í millitíðinni hlýtur eitthvað skemmtilegt að koma upp í hugann. Enskukennsla í Japan? Internship einhverstaðar, vinna í bænum, auka skólanám eða bara eitthvað annað sem vekur áhuga og löngun. Held það verði bara að koma í ljós. Núna er það bara helgin sem skiptir máli. Veiðiferð með strákunum og pabba í Kolluvatn. Allt annað verður að ráðast eftir það. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Hugleyðingar Svör: It´s all happening! - (5) |
|
Posted on 06.25.08 by steini @ 0:31
Allt er þegar þrennt er. Komst loksins áfallalaust uppá fjallið Baulu í kvöld, í þriðju tilraun. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 06.24.08 by steini @ 1:34
Rökræður verða sjaldan svona nördalegar. — Baula á morgun? Hugsanlega — Mig langar í svona ! — Southpark er stundum svo mikil snilld! Góð biblíusaga Skráð sem: Bifröst og Netið og grín Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 06.18.08 by steini @ 19:49
Þegar ég kom uppeftir á Bifröst núna á sunnudagskvöldið beið mín lítið skemmtileg sýn. Júlíus nokkur Arnarson í slagtogi við Ebba Sand voru búnir að skríða inn um gluggann hjá mér, plasta fullt af dóti, læsa hurðinni að innan með sellofan, láta sellofan í kranann og trappa baðtjöldin, gluggatjöldin og fleira auk þess að festa stólinn minn með hjólalás við ofninn. Ofan á þetta voru þeir svo búnir að krota dálítið með blýant á vegginn og loftið og setja kókópuffs í koddann minn. Sem sagt, ekki skemmtilegt að koma heim. Ég gerði mér reyndar fljótt grein fyrir því hverjir hefðu verið að verki og hringdi í Júlla til að biðja hann um að opna hjólalásinn. Hann reyndar svaraði ekki þannig að ég endaði með að rölta heim til hans, sækja mac tölvuna hans (sem honum þykir næstum vænna um en stelpuna sína) og ákvað að semja um að skipta á tölvunni og lyklum. Þeir komu svo með mér í herbergið og við töluðum aðeins um þennan hrekk. Ég ákvað reyndar mjög fljótlega meðan á þessu stóð að ég ætlaði að hefna mín eitthvað. Bjó til hjá mér einhverja hugmynd um að fá einhvern í lögreglunni til að hringja í hann og tala við hann um húsbrot og eitthvað þannig og ákvað því að vera frekar sár út í þá og haga mér eins og ég væri í fílu útí Júlla. Sagði einnig öllum sem vildu heyra að ég ætlaði að fara að hunsa Júlla og ekki tala við hann. Þetta þróaðist svo í aðra átt og í dag fór ég til hennar Öldu sem sér um húsnæðismálin. Ég fékk hana til liðs við mig og hún hringdi í Júlla og vildi fá hann á fund hjá sér vegna kvörtunar sem hann hefði fengið fyrir skemmdir á húsnæði annars nemenda. Hún tók svo fram þegar Júlíus kom að skrifstofunni að hún ætlaði að sækja rektorinn þar sem Júlíus væri verðandi starfsmaður skólans (á alþjóðaskrifstofunni) og þau væru ekki sátt við neitt svona. Júlíus var víst búinn að vera nokkuð viss um að þetta væri djók hjá henni þangað til einmitt hún kom frekar reið útaf skrifstofunni og sagðist ætla að blanda rektor í málið. Þá fóru hann og Ebbi að pæla hvernig þeir ættu að koma sér úr klípunni og pæla hvort þeir ættu að taka að sér að stroka út blýantsteikningarnar. Þetta var því frábær hefnd og allir sem sáu svipinn á mér þegar ég vissi af Júlla inná skrifstofu geta vitnað um hvað mér var skemmt. Allavega var ég búinn að skemmta mér töluvert með að vera „fúll“ við þá og byggja þannig upp stemmningu fyrir mómentið. — Á morgun er sumarhátíð handhafa skemmtanavalds hér á Bifröst og verður sápuboltamót, grill, bjór, ball og Linda í heimsókn. Sigurliðið frá því í fyrra, með mig innanborðs, mun að sjálfsögðu stefna á titilvörn og lúskra öllum andstæðingum. Stefnir því í góðan morgundag. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir Svör: It´s all happening! - (3) |
|
Posted on 06.13.08 by steini @ 17:20
Þessir síðustu dagar og vikur hafa verið frábær hér á Bifröst. Vikan sem er að líða innihélt t.d. hátíðarkvöldverð HHS, þríþrautakeppnina Hroka og ball sama kvöld, risa vatnsstríð á fimmtudaginn þar sem yfir 30 manns tóku þátt og skemmtu sér konunglega, lautarferð í paradís, frekar sérstaka en áhugaverða tíma í kostnaðar og nytjagreiningu og svo fullt af EM leikjum. Já og gleymdi ég því að það er búið að vera frábært veður alla vikuna, sól og hiti. Næsta vika verður svo (fyrir utan venjulegan skóladag og verkefni) notaður í sápuboltamót og annað skemmtilegt. Annars er ég orðinn svo rauður af allri sólinni að ég held ég sé eiginlega brunninn. Reyndar er mér hætt að svíða í brunasár vegna þess hversu vanur ég er því, þannig að ég vil reyna að meina að ég ´se ekki brunninn Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
| previous posts » |


