|
Posted on 06.13.08 by steini @ 17:20
Þessir síðustu dagar og vikur hafa verið frábær hér á Bifröst. Vikan sem er að líða innihélt t.d. hátíðarkvöldverð HHS, þríþrautakeppnina Hroka og ball sama kvöld, risa vatnsstríð á fimmtudaginn þar sem yfir 30 manns tóku þátt og skemmtu sér konunglega, lautarferð í paradís, frekar sérstaka en áhugaverða tíma í kostnaðar og nytjagreiningu og svo fullt af EM leikjum. Já og gleymdi ég því að það er búið að vera frábært veður alla vikuna, sól og hiti. Næsta vika verður svo (fyrir utan venjulegan skóladag og verkefni) notaður í sápuboltamót og annað skemmtilegt. Annars er ég orðinn svo rauður af allri sólinni að ég held ég sé eiginlega brunninn. Reyndar er mér hætt að svíða í brunasár vegna þess hversu vanur ég er því, þannig að ég vil reyna að meina að ég ´se ekki brunninn Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 06.05.08 by steini @ 2:31
ef þessi frétt reynist alveg rétt eru þetta frábær tíðindi. Vonandi að það bætist bara við þessi 80% sem eru tilbúin að nota lýðræðið frekar en vopnin. — HHS hátíðarkvöldverður næsta þriðjudag. Hroki einnig í þeirri viku og svo sápuboltamótið rosalega, þar sem sigurliðið frá því í fyrra* mun gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda titlinum. Sem sagt, góð dagskrá framundan. *ég, palli kvaran, tryggvi og raggi lú Skráð sem: Bifröst og Heimsmálin Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.28.08 by steini @ 21:54
ég missti af Bob Dylan um daginn þar sem ég var í útlöndum. Aftur á móti upplifði ég fínustu tónleika á leiðinni uppá Bifröst núna áðan þegar ég keyrði hingað. Skellti tónleikadisknum Familiar to Million með Oasis í græjurnar hækkaði vel og þvílík stemmning. Byrjar með látum á Fuckin’ in the Bushes og eftir það kemur hvert gæða lagið á fætur öðru. Diskurinn er tvöfalldur og um miðjan seinni disk taka þeir svo Hey Hey my my eftir Neil Young og er það eina lagið á disknum sem ég er ekki alveg sáttur með, en það er einungis vegna þess að upprunalega lagið er betra plús að ég á aðra útgáfu af laginu flutta af Oasis bræðrum sem er mun betra. Engu að síður okey lag. Champagne Supernova, Rock ‘n’ Roll Star koma svo áður en lokalagið Helter Skelter eftir Bítlana er tekið, en Bítlarnir eru víst meðal uppáhalds sveita og miklir áhrifavaldar á bræðurna. En þetta var allavega mjög öflugt og langt síðan ég hef verið í jafn miklum fíling í bílnum. Kæmi mér ekki á óvart að margir bílstjórar sem sáu mig hafi rekið upp stór augu ef þeir sáu mig þar sem ég var að missa mig í söngnum, svo ekki sé minnst á gangandi vegfarendur í Mosfellsbæ og Reykjavík sem gætu hafa séð mig á einhverjum ljósum Ferðasaga auk smá bjórrýni úr ferðinni kemur svo inn innan skamms. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Ferðalög og Tónlist Svör: It´s all happening! - (2) |
|
Posted on 05.17.08 by steini @ 6:25
Veit ekki alveg hvernig maður eigi að fá útrás fyrir reiði sem byggir eiginlega töluvert á eigin klúðri, þó það fléttist samt inní það einnig klúður annara (tölvunnar). Ég sem sagt notaði alla nóttina í að klára að skrifa lokaritgerð í trúarbragaða og stjórnmálakúrsinum sem ég var í. Þegar klukkan var að verða 23:55 (skilatíminn) sá ég alveg að það var ekkert að fara að gerast að ég næði að skila. Þannig að ég opnaði námskjáinn (skólakerfið þar sem maður skilar verkefnum) þar sem ég vissi að ef ég opnaði skilagluggann gæti ég skilað eitthvað fram á nóttina. Svo hélt ég áfram að vinna í þessu þangað til svona 2:30 þegar ég var búinn að skrifa allt nema helvítis abstract og heimildaskrá. Ákvað samt fyrst að fara´i heimildaskránna og klára hana. Þar sem ég var á gamalli lánstölvu frá skólanum sem er yndislega hæg þá tók þetta frekar langan tíma, en auk þess var ég ekki með nein verkefni með heimildaskrá þar sem ég var ekki með neitt annað en þetta verkefni á lánstölvunni. Jæja, fyrir utan hægfara umhverfi og gamalt word, þá var ég greinilega ekki alveg búinn að merkja inn nægjanlega vel hvar ég hafði fundið allt og því tók það mig um 3 klst að merkja ásættanlega 37 fótnótur og gera heimildaskránna. Þegar ég var á síðustu heimildinni og alveg að klára krassar samt Internet explorerinn!!!! (hvað haldið þið að firefox sé á svona lánsrusli). Ég þar með í panici yfir að námskjárinn sé farinn í fuck og að ég geti ekki skilað. En bíddu nú við, það kemur bara upp þessi “debug, send msg to microsoft” gluggi en ekkert lokast. ÉG kemst þá að því að námsskjás glugginn virkar enn. Frábært! En þessi eina heimild sem ég átti eftir var einmitt vefheimild og ég þorði eiginlega ekkert að fikta umfram þörf í browsernum. Sem betur fer var Ægir einnig í sama tímarugli og ég og því vakandi og gat gegnum MSN sagt mér hver væri höfundur og heiti greinarinnar sem var á netinu. Ég kláraði því heimildaskránna og hennti inn abstracti (átti uppkast af því ready), save-aði skjalið og ætlaði að skila. En nei, þegar ég reyni að hengja skjalið við skilagluggann þá frís allt!$”#$”#$”#$ og þannig endaði það með að ég þurfti að restarta IE og komast að því að ég gat ekki skilað lengur. Sendi reyndar póst á kennarann fullur iðrunar og bað hana að taka við skjalinu. Vonum að hún geri það. En já, get ég verið reiður við tölvuna, svona fyrst ég átti að vera löngu búinn að skila þessu?? Mér finnst það allavega pínu, þetta var allavega mjög svekkjandi. — To do listi síðustu daga: Ritgerð - check Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: 1 svar komið |
|
Posted on 05.08.08 by steini @ 14:00
HHS grill í kvöld hér í bollakotinu. Mæting um 7 leitið í Bollakot 3 og fólk kemur sjálft með á grillið. Ef þú ert HHS-ingur sem ekki hefur enn fengið skilaboðin þá ertu velkominn í kvöld. Skráð sem: Bifröst Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.07.08 by steini @ 18:28
Er aðeins byrjaður að vinna í BA-ritgerðinni minni, þ.e. pæla hvernig ég framkvæmi þetta og að hafa samband við fólk og fyrirtæki sem gætu veitt manni aðstoð. Commentin sem ég fæ frá nánast öllum sem ég tala við um þetta efni eru á þá leið að þetta sé mjög áhugavert og spennandi efni, en á móti að þetta sé töluvert mikið umfangs og geti verið erfitt í framkvæmd… En er það ekki bara það sem maður á þá að fást við? Eitthvað sem verður mikið basl en skilar svo einhverju sem maður hefur áhuga á að vita hvernig fer. Ég allavega ætla ekki að leggja þetta efni frá mér vegna þess að það verði töluverð vinna, frekar að það geri mann ákveðnari í að klára þetta — Austurríki, sviss, s-þýskaland, hljómar vel Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 05.04.08 by steini @ 16:14
Mér finnst mjög gaman að uppgötva nýja tónlist sem mér líkar vel við og leikur vel um eyrun. Reyndar finnst mér eiginlega skemmtilegast þegar þessar uppgötvanir eru um nýja-gamla tónlist, þ.e. tónlist sem er orðin meira en 5-10 ára gömul en fór einhvern vegin fram hjá mér á þeim tíma (eða var gerð áður en ég fæddist eða fór að pæla í tónlist). Um daginn uppgötvaði ég eina hljómsveit sem hefur gert mikið af góðri tónlist en hefur einhvern vegin farið fram hjá mér. Þetta er breska hljómsveitin Lush sem var í fullu fjöri í kringum 1990, eða alveg þangað til trommari sveitarinnar svipti sig lífi 1996 og sveitin leystist upp. Tvö lög hafa sérstaklega fangað athygli mína, en það eru lögin Monochrome og Ladykillers. Það fyrrnefnda var einmitt það lag sem kynnti mig fyrir sveitinni, en það fann ég á safndisknum Late night tales: Flaming Lips (sem er mjög góður diskur btw). Hennti hér inn báðum lögunum svo fólk geti tékkað á sveitinni, en hún spilar draumkennt indí-britpop. Ég reyndar tel mig einhvern tíman hafa heyrt Ladykillers lagið áður, en kem engan vegin fyrir mig hvar eða hvenær það var. Allavega, góð tónlist og mæli með að fólk tékki á þessu. — Á að skila inn rannsóknaráætlun fyrir Ba-ritgerð á þriðjudaginn…. Gunnar, farðu að svara póstinum. Þarf að vita hvort þetta sé gott ritgerðarefni — Ferðatölvan er í fucki! Búinn að fá blue screen of death núna 4x á síðustu 2 dögum og hún er orðin geðveikt hæg og vesen. Held að það sé kominn tími á format. Hef þó engan tíma í að gera eitthvað þannig - nenni ekki! Damn. — Tryggvi og Sigga Lóa voru svo að koma með hugmynd um útilegu í sumar fyrir HHS liðið. Það er klárlega eitthvað sem þarf að skoða betur. Alveg kominn tími á að skella sér í útilegu og sofa í tjaldi — Ef Josef Fritzl er hataðasti maður í Austurríki eins og er, þá er verjandinn hans örugglega næst hataðasti maðurinn þar akkúrat núna Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Tónlist og Vesen og tölvur og nördismi Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.29.08 by steini @ 11:03
Kannski er ég bara svona narrow minded á allt sem tengist nýöld og allskonar kukl fræðum, en mér finnst það mjög kaldhæðnislegt þegar “detox drottningar” (sjá fréttablaðið í dag bls 22) tala um að kasta steinum úr glerhúsi. Að vera að halda einhverju fram sem hefur ekkert staðfast á bakvið sig og vilja svo meina að aðrir sem geri það sama séu að kasta steinum úr glerhús… Fyrir mér er þetta svipað og þegar trúaðir einstaklingar upphefja sinn guð, en á sama tímapunkti útiloka þeir að aðrir gætu verið til. — Var með smá hitting fyrir garðabæjar og verslóliðið á föstudaginn. Held að það hafi bara heppnast ágætlega. Allavega var fólk fram eftir nóttu og spjallað var um allt milli himins og jarðar. Langt síðan maður hefur hitt flest af þessu fólki. Þakka allavega gestunum fyrir komuna. — Kúrsinn Trúarbrögð og stjórnmál er byrjaður. Þetta er 3 vikna kúrs með lokaritgerð uppá 15 bls. Áhugavert efni, en ég get ekki sagt að ég sé orðinn ready til að pæla í ritgerðinni enn, eða að maður sé mjög áhugasamur að fara að lesa á fullu. Það hlýtur samt að koma. — Það byrjaði svo að snjóa smá í dag hér uppfrá. Þ.e. það komu nokkur snjókorn, þó ekkert þeirra hafi enn náð að festa sig á jörðina. Vonum að það gerist ekki. — — Finnst dálítið fyndið að heyra og lesa um alla vera að tala um hvað hitt og þetta geti verið ógn við stöðugleikann (í efnahagsmálum). Hvernig væri nú að fólk færi að tala um þetta á réttan hátt. Það er ekkert stöðugleiki og allar breytur sem einhverju skipta í því samhengi hafa áhrif á óstöðugleikann, en ekki stöðugleikann. Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Fréttir og Tónlist Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.21.08 by steini @ 19:50
Jæja, bara jákvæðar fréttir núna. Einkunnir fyrir vorönn (fyrir utan missó) voru að koma í hús og ég held að ég geti bara verið mjög sáttur. Allavega náði ég öllu og einkunnir úr prófunum eru jafn góðar eða betri en ég bjóst við. — Kolluvatn 27-29 júní!
Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Veiði Svör: Ekkert ennþá |
|
Posted on 04.21.08 by steini @ 6:34
6:33, prentun, plöstun og gormun að klárast. Búið að skila skýrslu. Loksins! Mikil ánægja og gleði. Fundur um sumarönnina á morgun kl 12, fæ að sofa í rúmlega 4 klst og svo eftir fundinn verður málsvörnin undirbúin. Málsvörn á þriðjudaginn kl 15:30 og viðvera á miðvikudaginn kl 8:30. Þá búið !!! ég búinn… Skráð sem: Bifröst Svör: It´s all happening! - (2) |
| « newer posts | previous posts » |





