sitt lítið af hverju
Posted on 11.13.08 by steini @ 1:48

Merkilegt hvernig sumir fréttamenn/dálkahöfundar eigna sér efni sem aðrir hafa nýverið skrifað um. Á bls 18 í fréttablaðinu á þriðjudaginn (pdf - html)er t.d. Freyr Gígja Gunnarsson með stuttan pistil um Tékkóslóvakíu 1989 og flauelsbyltinguna og fann út úr því nýtt orð sem passar við íslenskar aðstæður “Flísbylting”. Eða var þetta kanski eitthvað sem hann tók upp hér. Fólk á endilega að skiptast á skoðunum, dreifa skoðunum og hugmyndum sem það telur vera góða eða áhugaverða, en það ætti að vera almenn vinnuregla að geta heimilda. Þetta mætu margir fréttamett taka til sín

Á sunnudaginn hélt Heimsliðið í víking til Selfoss til að etja kappi við Selfyssinga í handknattleik. Eftir mikla baráttu og framúrskarandi karakter stóðu heimsliðsmenn uppi sem sigurvegarar og lönduðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu (eftir töp gegn Víking og Júmboys). Lokatölur voru 27-28 og hálfleikstölur 17-13 (fyrir Selfoss). Þeir austanmenn náðu hæst 6 marka forystu í stöðunni 24-18, en þá fór maskínan í gang, Ástþór átti t.d. 3 heimsklassamörk - slánna inn allt saman og Heimsliðið kláraði síðustu 10-12 min leiksins með 10 mörkum gegn 3 hjá Selfoss.
Góðum sigri var svo fagnað á Kaffi Kidda Rót í Hveragerði þar sem góðum búrger var torgað.
kiddi rot

Í kvöld var svo annar leikur gegn Aftureldingu B. Í framhaldi af góðum sigri á sunnudaginn voru allir tilbúnir í annan slíkan og því var byrjað af krafti gegn Mosfellingum og strax var komist í um 5 marka forystu sem hélst út fyrri hálfleik (16-11). Í seinni hálfleik misstum við reyndar aðeins einbeitingu og hleytum Aftureldingu í jafna stöðu (22-22) þegar um 15 min voru eftir. Þá var tekið stutt leikhlé, mannskapurinn róaður og strengir stilltir og uppfrá því var leiðin bara uppá við. 10 mörk gegn 2 hjá Mosfellingum og lokaniðurstöður 32-24. Heimsliðið er því komið með 4 stig af 8 mögulegum og ætti að vera í kringum 5-6 sætið þegar umferðinni verður lokið.

Segja eitthvað um hrunið? Nei, pass.

Á föstudaginn ákváðum ég, Árný, Stjáni og Sandra að skreppa uppá Bifröst og kíkja á hátíðarkvöldverð HHS deildarinnar. Halló halló, djöfull var það gaman. Nostalgía, góður matur og mikið skrall. Mjög sáttur með ferðina og þynnkulaugardag í sveitinni. Held að ég muni áfram kalla Bifröst “heima” í smá tíma, frábær staður.

Spurning hvað eigi svo að gera þessa helgi. Grill hjá Stjána, afslöppun, ræktin og heilsusamlegt húllumhæ (og reyna að vinna að því að taka við af Krumma sem aðallínumaður liðsins), bíó (Bond), djamm eða eitthvað allt annað? Held ég reyni allavega að troða Bond og ræktinni þarna einhverstaðar.

Vá hvað þetta hefði verið mikið stærri frétt ef þetta hefði gerst fyrir 2 mán síðan (þ.e. fréttin komið fram)

Það má margt gott segja um þær hugmyndir að taka upp einhliða aðra mynt en krónu hérlendis, en hefur fólk ekkert velt því fyrir sér að með tilheyrandi hækkunar lána vegna verðbólgunnar undanfarið, þá mun slæm gengisstaða gera það að verkum að hækkunin á lánum verður töluvert meiri ef farið verður út í þessar aðgerðir.
Það vantar alveg að einhver taki fyrir þessar aðferðir allar sem talað er um og listi niður kosti og galla svo fólk sjái um hvað málið snúist. Finnst eins og sumir séu fljótir á sér til að öskra strax og eitthvað nýtt kemur upp “jájá, gera þetta núna, ekkert hangs, NÚNA”, án þess að vita neitt meira um málið. Allar gjörðir íslendinga síðustu misseri hafa haft áhrif á það hvernig umheimurinn horfir á okkur. Ef það er ekki vegna skítamála í fjármálaheiminum, þá er það vegna “lauslætis” í því að finna sér vinaþjóðir og vera tilbúinn að hoppa uppí ból með hverjum sem er (ástandið einhver?).
(spurning hvort hækkun lána sé réttnefni yfir þetta, allavega er það hærri afborgun og minni kaupmáttur)

Djöfullsins, gat ekki setið á mér að nefna eitthvað tengt hruninu :)

Langar í lokin að benda á nokkra áhugaverða tengla sem maður hefur ratað á með netvafri síðustu daga: Africa, skattar í us, mcdonalds, god - a god?.

og nokkur fyndin: rational?, skrípó, kveðjur frá nördum, wtf?, us forsetar, it’s the hat, indy, fail, kandídatar, svekkjandi að sjá þetta svona


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og grín og íþróttir
Svör: 1 svar komið

af moskum og hhs djammi
Posted on 09.22.08 by steini @ 21:03

Það hefur í nokkurn tíma verið til skoðunar að leyfa byggingu mosku í Reykjavík. Eitthvað eru þó skipulagsmál að flækjast fyrir og hugmyndir um flatarmál lóðar og hæð turna er eitthvað sem er endalaust verið að fara yfir. Í dag hefur töluverð umræða verið á netinu og víðar um hvort gott og gilt sé að veita múslimum hérlendis leyfi til byggingar á þessari mosku. Sjálfur sé ég ekkert að því að aðrir en kristnir fái að byggja sér safnaðarhús (svona fyrir utan að mér finndist mun gáfulegra ef engin safnaðarhús yfir höfuð væru byggð), en það er þó eitt sem ég vona svo sannarlega að fái ekki að ganga í gegn. Bænastundir í kallkerfi fyrir utan moskur væru eitthvað sem ég teldi algjört klúður. Við skulum alls ekki vera að bæta óþarfa hljóðmengun við það sem kirkjuklukkurnar valda nú þegar.
Annars má fólk trúa því sem það vill fyrir mér. Það eina sem ég set algjör mörk við er að ég er ekki hlynntur því að farið verið að gera sér dómstóla eða dómskerfi fyrir mismunandi trúar/lífsskoðunar hópa og ég vil að allir lúti almennum mannréttindum og fái ekki í krafi trúarsannfæringar að kúga aðra, hvernig sem sú kúgun á sér stað. Auk þess á að ríkja gagnkvæm virðing milli fólks með mismunandi skoðanir. Ég á ekki að öskra fyrir utan kirkjur eða moskur meðan bænarhald stendur og á móti kemur að ég tel að kirkjur og moskur eigi ekki að varpa hávaða sínum utandyra þannig að heyrist í hundruða metra fjarlægð.

HHS djammið á laugardaginn tókst held ég bara frábærlega. Mætingin var töluverð og ég held að ég geti fullyrt að fólk hafi almennt skemmt sér konunglega. Partýið stóð til svona hálf þrjú þegar síðustu gestir fóru í bæinn. Ég kíkti með fríðum hóp djammara á Sssól ball á NASA og komst að því að ég þekki eiginlega ekkert af lögunum þeirra. Ekki alveg nógu sniðugt, samt ágætt.

Á föstudaginn kíkti ég aftur á móti í staffadjamm í Hafnarfjörðinn þar sem ég ætlaði nú bara að stoppa stutt við og fara heim þegar aðrir færu í bæinn. Veðrið var aftur á móti mjög slæmt þannig að enginn vildi fara niður í bæ. Ég fór því heim á sama tíma og aðrir, í kringum 5 leitið. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, en varð svo bara að fínustu skemmtun.


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Fréttir og Pólitík og Trúmál
Svör: 1 svar komið

mótmæli í Kóreu og thai matur á Siam
Posted on 09.18.08 by steini @ 19:24

Alltaf áhugavert að heyra fréttir frá Kóreu. Sérstaklega finnst mér fréttir um mótmæli þarlendis vera áhugasöm, en Kóreubúar hafa verið iðnir við kolann í þeim efnum og oftar en ekki fengið athygli erlendis frá fyrir sérstakar leiðir til að mótmæla. Hér má t.d. sjá nokkur dæmi um það.

Á eyjunni í dag er svo ný frétt um blinda nuddara, en blindir eru víst þeir einu sem mega nudda í Kóreu (þetta vissi ég ekki) og mótmæli þeirra gegn því að aðrir en blindir og sjóndaufir megi starfa við það að nudda. Til að leggja áherslu á baráttu sína hótuðu þeir t.d. að hoppa fram af brú! Hvað getur maður sagt, alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

Fór með Lóu frænku á tælenska veitingastaðinn Siam í Hafnarfirði í gær. Þjónustan var nú ekkert til að hrópa húrra yfir. Það voru ekkert mjög margir í salnum, þó eitthvað hafi verið um fólk sem kom að sækja mat, en sú sem var að afgreiða var ekkert að fylgjast um of með kúnnunum svo við þurftum t.d. að bíða töluvert eftir að fá drykki, glös o.s.frv. Maturinn aftur á móti bætti það heldur betur upp og ég hef aldrei smakkað svona góðan thailenskan mat hér á íslandi áður. Fékk mér Pad Thai sem ég bað um að yrði gert töluvert sterkara en venjulega og djöfull hitti kokkurinn í mark með því sem ég fékk - vel sterkt, en enn pad thai bragðið. Rétturinn hennar Lóu var einnig rosalega góður og báðir réttirnir voru ríflega skammtaðir þannig að ekki var séns fyrir mig nema að klára tæplega 2/3 af matnum þó ég væri glorhungraður. Verðið er svo ekki neitt neitt, en rétturinn var á held ég 1290 með hrísgrjónum og salati. Þetta er allavega staður sem ég mun fara aftur á og get hiklaust mæla með fyrir alla þá sem finnst thailensk matargerð góð. Annars, mæli með þessu fyrir alla hina líka, frábær matur.

Það er vonandi að það verði æfingaleikur á föstudaginn hjá Heimsliðinu og svo á laugardaginn verður heljarinnar HHS-partý. Allt bara að gerast.


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og matur og íþróttir
Svör: Ekkert ennþá

Hrekkurinn
Posted on 06.18.08 by steini @ 19:49

Þegar ég kom uppeftir á Bifröst núna á sunnudagskvöldið beið mín lítið skemmtileg sýn. Júlíus nokkur Arnarson í slagtogi við Ebba Sand voru búnir að skríða inn um gluggann hjá mér, plasta fullt af dóti, læsa hurðinni að innan með sellofan, láta sellofan í kranann og trappa baðtjöldin, gluggatjöldin og fleira auk þess að festa stólinn minn með hjólalás við ofninn. Ofan á þetta voru þeir svo búnir að krota dálítið með blýant á vegginn og loftið og setja kókópuffs í koddann minn. Sem sagt, ekki skemmtilegt að koma heim. Ég gerði mér reyndar fljótt grein fyrir því hverjir hefðu verið að verki og hringdi í Júlla til að biðja hann um að opna hjólalásinn. Hann reyndar svaraði ekki þannig að ég endaði með að rölta heim til hans, sækja mac tölvuna hans (sem honum þykir næstum vænna um en stelpuna sína) og ákvað að semja um að skipta á tölvunni og lyklum. Þeir komu svo með mér í herbergið og við töluðum aðeins um þennan hrekk.

Ég ákvað reyndar mjög fljótlega meðan á þessu stóð að ég ætlaði að hefna mín eitthvað. Bjó til hjá mér einhverja hugmynd um að fá einhvern í lögreglunni til að hringja í hann og tala við hann um húsbrot og eitthvað þannig og ákvað því að vera frekar sár út í þá og haga mér eins og ég væri í fílu útí Júlla. Sagði einnig öllum sem vildu heyra að ég ætlaði að fara að hunsa Júlla og ekki tala við hann. Þetta þróaðist svo í aðra átt og í dag fór ég til hennar Öldu sem sér um húsnæðismálin. Ég fékk hana til liðs við mig og hún hringdi í Júlla og vildi fá hann á fund hjá sér vegna kvörtunar sem hann hefði fengið fyrir skemmdir á húsnæði annars nemenda. Hún tók svo fram þegar Júlíus kom að skrifstofunni að hún ætlaði að sækja rektorinn þar sem Júlíus væri verðandi starfsmaður skólans (á alþjóðaskrifstofunni) og þau væru ekki sátt við neitt svona.

Júlíus var víst búinn að vera nokkuð viss um að þetta væri djók hjá henni þangað til einmitt hún kom frekar reið útaf skrifstofunni og sagðist ætla að blanda rektor í málið. Þá fóru hann og Ebbi að pæla hvernig þeir ættu að koma sér úr klípunni og pæla hvort þeir ættu að taka að sér að stroka út blýantsteikningarnar. :D

Þetta var því frábær hefnd og allir sem sáu svipinn á mér þegar ég vissi af Júlla inná skrifstofu geta vitnað um hvað mér var skemmt. Allavega var ég búinn að skemmta mér töluvert með að vera „fúll“ við þá og byggja þannig upp stemmningu fyrir mómentið.

Á morgun er sumarhátíð handhafa skemmtanavalds hér á Bifröst og verður sápuboltamót, grill, bjór, ball og Linda í heimsókn. Sigurliðið frá því í fyrra, með mig innanborðs, mun að sjálfsögðu stefna á titilvörn og lúskra öllum andstæðingum. Stefnir því í góðan morgundag.
Ef einhver annar hefur hug á að mæta á síðasta alvöru djamm sem ég get lofað hér á Bifröst, endilega hafið samband. Alltaf hægt að redda einhverri gistingu. Bara að redda sér fríi fyrir hádegi á föstudaginn :D


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir
Svör: It´s all happening! - (3)

partý!
Posted on 04.19.08 by steini @ 17:14

Orðið ágætlega langt síðan maður hefur hitt allt fólkið sem maður þekkir í bænum og hef því ákveðið að halda partý fyrir vini og kunningja úr Verzló og Garðabæjarliðið næskomandi föstudag. Mæting einhverntíman uppúr 21 og vonandi bara skemmtilegur hittingur og djamm fram eftir kvöldi. Verður haldið heima á Garðaflötinni. Engar veigar í boði þannig að fólk verður sjálft að mæta með áfengi.
Vonast til að sjá sem flesta og endilega látið vita hvort þið getið mætt.

Missó í þetta skiptið er að ljúka og málsvarnir bíða handan við hornið á komandi viku. Á fimmtudaginn verður svo opinn dagur hér uppfrá og verð ég að leiða komandi Bifrestinga um svæðið og sýna þeim hvað þetta er allt flott og frábært. :)


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir
Svör: It´s all happening! - (4)

úrslit, uppgjör vikunnar og helgin
Posted on 02.22.08 by steini @ 12:17

Jæja þá eru úrslit ljós úr fyrstu tónlistargetrauninni. Þátttaka var ekkert rosaleg, en margir kvörtuðu víst yfir því að þetta væri of erfitt. Það verður fólk bara að eiga við sig og bíða bara eftir næstu getraun og sjá hvort þær spurningar hennti þeim betur.
Allavega, svör við spurningunum voru:

sp1: Devil went down to Georgia með Charlie Daniels Band og það er Johnny Cash sem er sögumaðurinn á einum stað í laginu.
sp2: Depeche Mode með lagið People are people.
sp3: Verve - Sonnet
sp4: Harvey Danger með Flagpole Sitta (gef líka rétt fyrir að segja I’m not sick but i’m not ill)
sp5: Datarock með lagið FaFaFa
sp6: Hér er byrjunin á Gus Gus laginu Why? og er það Emiliana Torrini sem syngur.
sp7: Starland Vocal Band og lagið Afternoon Delight

Stig:
Róbert - 14 stig
Steinar - 14 stig
Þórður - 11 stig
Ísak - 5 stig

Geri svo ráð fyrir að henda inn nýrri getraun í næstu viku og byrja þá einhverskonar keppni þar sem stig frá nokkrum keppnum verða lögð saman og krýndur verður getrauna meistari.

Ræðukeppnin búin, við töpuðum naumlega fyrir frumgreinadeildinni og lítið meira um það að segja. Við stóðum okkur mun verr heldur en á síðasta ári, fruman var mjög góð og það var ekki dæmt eins og við bjuggumst við. Rökin okkar fóru greinilega ekki í dómarana plús að okkur fannst þeir gefa andstæðingunum aðeins of hátt fyrir viss atriði. Þetta er samt bara búið og gert og lítið hægt að gera í þessu. Ég óska því bara frumunni til hamingju og vona að þau standi sig í næstu keppni.

Þrátt fyrir mikla törn í þessum ræðumálum hafa samt verkefnin gengið vonum framar jafnvel þótt maður hafi verið að gera þau á frekar litlum tíma og ekki búist við neinum rosalegum árangri. Það er þó jákvætt við þessa viku :)

Verð í bænum um helgina og ætla að nýta kvöldið í kvöld með fjölskyldunni. Ætlum að fara saman út að borða og það verður væntanlega bara frábært. Svo er Bifrovision á morgun (árshátíð skólafélagsins) og þá verður slett úr klaufunum á hótel loftleiðum.

Þetta er svo ræða sem ég mæli með að fólk kíki á. Þvílík ræða, þvílíkur sannfæringarkraftur og bara þvílíkur maður. Ég fékk allavega gæsahúð og það oftar en einu sinni.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og quiz
Svör: Ekkert ennþá

langþráð færsla
Posted on 01.24.08 by steini @ 18:34

Vá, það er orðið langt síðan maður lét heyra í sér. Það var þó ekki meiningin, helduru hefur bara verið mjög mikið að gera hjá manni síðustu 2-3 vikurnar.
Fyrsta vikan hérna uppfrá byrjaði reyndar frekar rólega ef frá er dregið fínasta fyllerí sem maður skellti sér á á fimmtudaginn. Ákvað reyndar að skrá mig í fimmta kúrsinn og er því að taka 18 einingar samtals yfir önnina. Það verður eitthvað gaman. Verkefni, tímapróf eða eitthvað álíka fyrir hvern kúrs einu sinni í viku (nema auðvitað að það sé stórt verkefni sem taki nokkrar vikur… en það kemur niður á sama stað). Ákvað að slaka á uppá röstinni þá helgi og ná aðeins áttum. Vikuna eftir byrjaði svo að snjóa mjög mikið og enn í dag snjóar (rétt kom smá rigning í gær, en annars er fannfergi). Vikan var samt eins og vikan á undan, mikill lærdómur og lítið merkilegt að segja, nema auðvitað að em byrjaði (sem er búið núna fyrir okkur). Bifrestingar ákváðu reyndar að skreppa til Akureyrar í bretta og djamm ferð þá helgi. Ég krassaði hjá Lindu og Ernu uppí Giljahverfinu. Hitti svo Völu og Gulla (var í sveit hjá foreldrum þeirra forðum) þar og var helgin eiginlega bara eitt stórt djamm + handboltagláp. Náði að týna myndavélinni hennar Ernu en hún fannst svo daginn eftir af stelpu sem reyndi að hrækja á mig kvöldið áður. Ástæðuna fyrir því má væntanlega skrifa á mikla almenna ölvun og þá sérstaklega þessarar ungu snótar. Erna var reyndar ekkert of sátt með mig eftir þessa helgi. Í fyrsta lagi auðvitað útaf þessari myndavél og svo vegna þess að ég sýndi fram á að vera lang versti kúrufélagi ever fyrri nóttina þegar ég togaði öll teppi eða sængur af henni og krafðist þess svo að glugginn yrði opnaður í skítkaldri stofu. Ég fékk allavega Lindu rúm kvöldið eftir og Linda svaf í Ernu rúmi :) Stefni svo að vera hér uppfrá aftur þessa helgi og læra og slaka á. Fer reyndar að vera 1 mánuður síðan maður hitti móður og föður eininguna, en þau hafa nú lifað það verra.

Um daginn smakkaði ég kóreska hrísgrjónavínið sem ég kom með frá DMZ svæðinu í Kóreu. Það smakkast eins og Tequila og viský blandað saman, algjör óþverri. Greinilegt að Kóreubúar eru ekki bestu bruggarar í heimi, þó þeir geir Soju sem smakkast hræðilega fyrst en verður svo eiginlega ávanabindandi.

Hvað er eiginlega að gerast í pólitíkinni á Íslandi samt? Allt að verða crazy, nýr meirihluti, Bingi hættur og ég veit ekki hvað og hvað. Verð þó að segja að mér finnst þessi nýja meirihlutamyndun frekar léleg eitthvað. Ólafur ekkert að láta sína meðframbjóðendur vita og svo er allt í einu stokkið fram og tilkynnt um niðurstöðuna. Líka skrítið að Vilhjálmur láti fá sig út í þetta. Held að löglegt en siðlaust eigi ágætlega við um þetta. Sjallar hefðu betur átt að koma sterkir inn í andstöðunni, vinna sig inn hjá fólki og rústa næstu kosningum.

Hlutlægt, huglægt, er eitthvað hlutlægt yfir höfuð? Er stærðfræði bæði hlutlæg og huglæg? Verður einhverntíman hægt að gera huglægan mælikvarða og fá eitthvað hlutlægt? Er eitthvað alveg víst nema þessi setning Descartes “Ég hugsa, þessvegna er ég”?
Merkilegt með svona pælingar, að þótt þær séu mjög súrar eitthvað, þá finnst mér mjög gaman að þeim :)
Það er kanski ein af ástæðum þess að mig hlakkar einstaklega mikið til fyrir næsta verkefni í stjórnmálaheimspeki, “málsvörn fyrir nytjastefnuna”. En nytjastefnuna er einmitt hægt að gagnrýna á svo ótal vegu. Þetta verður challenge og þetta verður gaman.

Júlíus nokkur Arnarsson kom undir lok síðasta árs með skemmtilegan árslista af því tónlistar efni sem hann hafði haldið mest uppá á síðasta ári. Hafði þó áður heyrt í Radiohead og Beirut, en hitt var alveg nýtt fyrir mér. Og þvílík uppgötvun. Allir diskarnir, fyrir utan Arcade fire sem ég hef ekki enn hlustað á, eru gargandi snilld. Frábært frábært frábært. Verð þó að segja að Robert Plant & Alison Kauss diskurinn skarar fram úr. Hrein unun að hlusta á þann disk.
Öll þessi tónlist passar svo vel við hvað sem er. Síðustu tvær vikurnar hef ég t.d. lært, sofnað og slakað á við hana, alla dagana. Sést vel á þessum lista hvað þetta kom sterkt inn hjá mér í síðustu viku. Verður samt væntnalega mun stærra þegar þessi vika verður gerð upp á sunnudaginn.
Plús á Júlla fyrir þetta, jafnvel þótt ég hafi séð að margt af þessu er einnig á öðrum topplistum víðsvegar um heim.

Hér eru svo nokkrir áhugaverðir linkar:
Hillllaríus myndband af virkilega vitgrannri ljósku í spurningaþætti sem vissi ekki að Evrópa væri heimsálfa… Kjánahrollur
Er þessi mynd svo sæt eða sorgleg?
Svo er hér ein sæt jólamynd sem lætur okkur hugsa smá.
Þetta er svo skemmtileg lesning um p2p, hackers, útgáfufyrirtæki og hræsnara sem missa allt niður um sig. Er ekki frá því að maður hafi hugsað smá “victory is near” þegar maður las þetta.
Enda svo á skemmtilegum lista yfir bíómyndir sem er ekkert of líklegt að maður hafi séð á síðasta ári, en eru engu að síður mjög góðar. Mæli með þessum lista, hef séð svona 8-10 myndir þarna og þær voru allar mjög góðar (nema sunshine, hún var hryllingur).

Svo eru það stóru spurningarnar… hvað á ég að skrifa BA ritgerðina um, en ég þarf að skila inn hugmynd að ritgerð og beiðni um tútor fyrir 7 feb. Hef satt best að segja ekki hugmynd um hvað ég á að gera. Svo er það hvað maður á að gera í missó. Þetta helvítis skrímsli sem tekur alla orku manns í allavega 3 vikur, en maður lærir mjög vel á, færist nær og nær og maður er eins og venjulega í einhverju móki og veit ekkert hvernig hópaskiptingin verður eða hvað maður á að skrifa um. Loka spurningin er svo hvort maður eigi að taka sér eitt ár í frí og borga upp skuldir eða reyna að komast í skóla úti. Og ef maður fer í master úti, hvað á ég nákvæmlega að fara í? Hagfræði (sem mig langar mest í, en ég þarf væntanlega aðeins meiri stæ fyrir það), alþjóða samskipti, eða bara eitthvað allt annað. Úfff… erfitt að velja.

Ég er alltaf að lofa myndum. ég ætla bara að halda áfram að lofa þeim, þær koma einhverntíman :)

Ef einhver á svo lagið Hótel Jörð (helst í flutningi Pálma Gunnarssonar), þá má sá hin sami hafa samband við mig sem fyrst :D


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Hugleyðingar og Pólitík og Tónlist og Vesen
Svör: It´s all happening! - (2)

brjálaða lið
Posted on 11.12.07 by steini @ 5:13

Í gær meðan ég sat á mjög notalegu kaffihúsi og var að vinna í kynningu, sem ég flutti svo í dag um áhrif ýmissa efnahagssamninga í norð austur asíu, þegar síminn minn hringdi allt í einu. Ég svaraði eins og lög gera ráð fyrir og eins og svo oft áður var kóresk rödd á hinum endanum. Ég bara rólegur yfir þessum tíðindum reyndi að gera mig skiljanlegan á ensku og segja viðkomandi konu að þetta væri væntanlega rangt númer, ég talaði ekki ensku o.s.frv. Konan stoppaði reyndar ekkert að tala svo ég skellti á hana eftir svona 1 min. Það virtist eitthvað hafa farið í hennar fínustu því það liðu varla nema 10 sek og þá hringdi síminn aftur og sama númer. Ég ákvað af góðmennsku minni að svara henni aftur og reyna að koma henni í skilning um að þetta væri rangt númer. Það virkaði ekki heldur í þetta skipti svo ég skellti aftur á. 10 sek seinna hringdi síminn aftur og ég ákvað að svara ekki og lét hann hringja út. Svona 30 sek seinna hringdi síminn aftur, sama númer og ég lét hann hringja út. Í fimmta skiptið ákvað ég að svara og reyna í síðasta skiptið. Það varð úr að áður en ég svo mikið sem náði að koma upp orði byrjaði sú gamla að öskra á mig í símanum þannig að fólk á næsta borði leit upp vegna hávaðans. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég ákvað bara að skella á. Labbaði svo til stelpna á næsta borði og bað þær um að svara símanum ef hann hringdi aftur og segja konunni að þetta væri væntanlega vitlaust númer og að biðja hana um að hætta að hringja í mig. Það gerðu þær og síminn hringdi ekki í svona 5 min, en þá var aftur hringt. Nú var mér byrjað að finnast þetta dálítið fyndið og fór því með símann til Palla og leyfði honum að hlusta á öskrin í konunni. Nema hvað að nú var þetta ekki konan sjálf, heldur einhver karlmaður sem greinilega var undir heraga frá konunni sem öskraði bakvið hann. Skelltum á hann eftir svona 30 sek. 2 min seinna hringdi svo síminn aftur og það var konan úr öðru númeri…. Ég skellti á hana og ætlaði aftur að fara til kóresku stelpnanna sem höfðu hjálpað mér áður og fá þær til að tala meira við konuna. Þær voru því miður farnar svo aðrar stelpur urðu fórnarlömbin. Svo þegar síminn hringdi svaraði ný stelpa í símann sem endaði í 5 min spjalli við konuna. Fékk svo að vita eitthvað um að konan væri annaðhvort að reyna að ná í fyrrum eiganda símanúmersins, eða þá að hún væri sjálf fyrrverandi eigandi símanúmersins, veit ekki alveg. Engu að síður, hún er núna hætt að hringja í mig og ég gat klárað að gera verkefnið.

Seinna um kvöldið kíktum við Palli auk finnsku stelpnanna á jazz bar þar sem reyndar var spilaður frekar lítill jazz, en bandið (sem samanstóð af 2 gítarleikurum, fiðluleikara, trommara, píanista, söngkonu, bongótrommara sem söng líka og bassaleikara) spilaði engu að síður fínustu tónlist. Allt frá gömlum Frank Sinatra lögum og rólegum jazz yfir í eagles, Norah Jones, Neil Young, Simon and Garfunkel og miklu meira. Sem sagt frábært kvöld og það er alveg á hreinu að ég mun kíkja á fleiri svona live music staði hér í framtíðinni.

Stefnan er svo sett á að kíkja á landamæri norður og suður kóreu um helgina. Spurning hvort maður fái að fara inn á no mans land svæðið :) Það væri töff.

Vision of students today. Veit ekki, en mér fannst þetta dálítið töff video plús að tónlistin undir er snilld.
Jamendo er snilld. Afhverju var enginn búinn að segja mér frá þessu áður??


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og Kúltúra og Sniðugt stöff og Tónlist
Svör: 1 svar komið

Hongdee
Posted on 11.10.07 by steini @ 7:08

Það var aðeins kíkt á djammið í gær, enda Palli að verða gamall drengur eftir nokkra daga. Við héldum smá partý hérna heima og kíktum svo á Hongik (lesið Hongdee). Þar sem partýið var búið eftir miðnætti þá eru allar almenningssamgöngur niðri nema taxi-ar þannig að við tókum einn. Eins og venjulega var helvítis vesen að reyna að segja bílstjóranum hvert ætti að fara og eftir að hafa sagt Hongdee eins of og á sem margbreytilegastan hátt sagði hann allt í einu upphátt “aahhh.. Honggdeee university?” og við auðvitað á nóinu “yesyesyes”. Þannig að hann byrjaði að keyra okkur í áttina að Honggdeeeí gegnum borg sem er svo svipuð hvar sem maður kemur að erfitt er að koma auga á nein almennileg kennileiti, allavega svona við fyrstu kynni. Svo líður og bíður og þegar mælirinn er kominn uppí um 10.000 Won og við ekkert að kannast við þetta hvefi ákveður sá gamli að stoppa og segir upphátt “Honggdeee”. Við sáum alveg að hvar sem við værum stödd, þá væri það ekki í þeirri Hongdee sem við vildum vera í og reyndum því að fá þann gamla til að keyra okkur til HONGDEE. Þá varð hann bara reiður og sagði “Honggdeee, honggdeee, honggdeee”, benti á mælinn og svo út. Við enduðum því með að borga honum rúmar 10.000 won og fara út. Sáum svo einhvern business klæddan mann sem var líklegur til að tala ensku og spurðum hann hvar við værum. Hann tók lítið metro kort upp úr vasanum sínum og benti á stað nákvæmlega hinu megin í borginni og sagði “Kongdee” (efsta örin er þar sem ég bý, vinstri örin Hongdee og hægri Kongdee). Á þessum tímapunkti fékk ég alveg svona skemmtilegan geðshræringarhlátur og ég vissi ekki alveg hvort ég ætti að andvarpa og fara á bömmer eða hlægja bara. Endaði með að hlægja að þessu og kaupa mér pulsu að éta. Fórum svo í næsta leigubíl og fengum loks far til Hongdee og skelltum okkur á klúbb sem við ætluðum að fara á.
Enduðum svo með einhverjum 6 öðrum á þvílíkt fancy karaoke stað þar sem við föttuðum klukkan 7:10 í morgun að klukkan væri kanski heldur margt. Palli ákvað svo að vera dólgur í leigubílnum á leiðinni heim.

Stefnan er svo sett á jazz kvöld í kvöld. Kíkja á einhvern live bar og slaka á :)


Skráð sem: Dagleg skrif og Djamm og skemmtanir og Kórea og Vesen
Svör: It´s all happening! - (2)

Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
íþróttir
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
matur
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
breytingar?
hundraðföldun og kveðjur til Færeyja
aðeins of mikið af hinu góða
allir geta verið hetjur
sitt lítið af hverju
góð hugmynd
207 and counting
hryðjuverk og kosningar
Er þetta björgunaraðferðin?
nýja ísland í boði baggalúts
banka húmor
gamall
varúð, hámarks sársauki á líkamlegri og andlegri heilsu!
Litli verðbréfadrengurinn
kóresk ölvun

Eldra efni
November 2008
October 2008
September 2008
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér